Fréttatíminn - 22.12.2014, Síða 60
Þ að er brjálað að gera, er það fyrsta sem Gissur Páll Gissurarson segir þegar
við hittumst. Maður er að þjóna
jólagleðinni, svo hún verður oft
útundan á heimilinu, en mér líður
vel. Það er gefandi að vera í ös-
inni og atinu sem plötuútgáfa er.
Framboðið á jólaviðburðum á Ís-
landi er eins og hjá milljónaþjóð,
segir Gissur sem hefur verið að
syngja alla aðventuna.
Listin finnur sér alltaf vettvang
og í dag eru að spretta upp heilu
hersveitirnar af mögnuðu tónlist-
arfólki um land allt. Krakkar í dag
eru fáránlega klárir, þegar ég var
lítill þá mátti maður ekki trana sér
fram. Ef maður var ánægður með
það sem maður gerði, þá var eitt-
hvað verulegt að manni og ef þú
fékkst athygli út á við, þá varstu
í vondum málum, segir Gissur.
Núna hefur þetta snúist við, sem
gerir ungu fólki tækifæri til þess
að vaxa og dafna í sinni list. Hæfi-
leikar ná alltaf í gegn.
Gissur Páll nam óperusöng á Ít-
Maður er
að þjóna
jólagleðinni
Tenórinn Gissur Páll Gissurarson gaf
nýverið út plötuna Aría, þar sem hann
syngur margar stærstu óperuaríur
sögunnar við undirleik Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands, undir stjórn Petri
Sakari. Hann segir þetta einstakt
tækifæri að fá að syngja þessar aríur
með eins stórri og góðri sveit. Plötuna
tók hann upp á þremur dögum og
engar lagfæringar voru gerðar í eftir-
vinnslu. Hann hafði sterkar skoðanir á
því að gera þetta á gamla mátann.
Tenórinn Gissur Páll með eiginkonu sinni, Sigrúnu Daníelsdóttur, og dætrum þeirra. Gissur Páll sendi nýverið frá sér plötuna
Aría. Ljósmynd/Hari
Ilmur af jólum
Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá ykkur
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 10/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00
Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 11/1 kl. 13:00 Sun 1/2 kl. 13:00
Lau 27/12 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00 Lau 7/2 kl. 13:00
Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 8/2 kl. 13:00
Lau 3/1 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00
Sun 4/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Þri 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 4/1 kl. 20:00 4.k. Sun 11/1 kl. 20:00 7.k.
Fös 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 7/1 kl. 20:00 5.k. Fim 15/1 kl. 20:00 8.k.
Lau 3/1 kl. 20:00 3.k. Fim 8/1 kl. 20:00 6.k.
Sígilt meistarastykki Ibsen í nýrri þýðingu Hrafnhildar Hagalín
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 27/12 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
http://www.borgarleikhus.is/syningar/oldin-okkar/
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 27/12 kl. 20:00 aukas. Lau 10/1 kl. 20:00
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Jesús litli (Litla sviðið)
Sun 28/12 kl. 18:00 aukas. Sun 28/12 kl. 20:00
100.sýning
Mán 29/12 kl. 20:00
Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsupplifun!
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Fös 26/12 kl. 14:00 aukas.
Aukasýning 26.des vegna mikillar eftirspurnar.
Beint í æð! – HHHH , S.J. F.bl.
alíu, en áður en hann fór þangað
ætlaði hann að verða leikari. Ég
fór í prufur í leiklistarskólanum
eftir mína afplánun í mennta-
skóla, segir Gissur kíminn, en
hann er alinn upp í Kópavogi og
gekk í MK. Ég komst nokkuð
langt í prufunum, en sem betur
fer datt ég út því annars væri ég
ekki í tónlist. Tónlistin er eins og
sníkill, maður getur ekki hætt,
segir Gissur. Ég ákvað að fara í
söngskólann til þess að læra að
beita röddinni, því mér fannst því
ábótavant hjá öllum leikurum á
Íslandi.
Ætlarðu að verða söngvari?
Ég hóf nám hjá Magnúsi Jónssyni,
sem er einn af okkar frumkvöðlum
í óperuheiminum. Hann var alveg
meiriháttar maður og það tókst
mikill vinskapur með okkur, segir
Gissur. Þegar ég var búinn að vera
í tvö ár hjá honum þá sagði hann
við mig, Gissur minn, nú þarftu að
ákveða hvað þú ætlar að gera. Ætl-
arðu að verða söngvari, eða ertu
að læra söng til að hafa gaman?
Ég tók ekki mikið mark á honum
og ætlaði mér bara að láta hlutina
þróast. Þá sagði hann að ég kæmi
ekki aftur til hans í nám eftir sum-
arið. Hann gaf mér tvo kosti. Annað
hvort færi ég til Ítalíu í nám, eða ég
færi í Háskólann að læra eitthvað
gagnlegt. Hann sá að það bjó eitt-
hvað í mér og vildi að ég tæki þetta
föstum tökum, sem ég og gerði og
flutti til Ítalíu, segir Gissur. Fyrir
tilstilli konunnar minnar, í raun-
inni, því mér fannst þetta fáránleg
hugmynd, en hún hvatti mig áfram.
Gissur er kvæntur Sigrúnu Daní-
elsdóttur Flóventz og eiga þau tvö
börn.
Ég byrjaði að syngja 10 ára gamall
í Kársneskórnum undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur og fann strax að
þetta gerði mikið fyrir mig. Ég fékk
hlutverk í Oliver Tvist hjá Þjóðleik-
húsinu og þá var alveg vitað hvað
ég vildi gera í lífinu, segir Gissur.
Þar var Benedikt Árnason leikstjóri
sem kenndi mér mikið. Hann gaf
mér ómældan tíma og talaði alltaf
við mig eins og ég væri lærður leik-
ari. Gerði topp kröfur til mín, en um
leið kenndi hann mér og sýndi mér
marga hluti. Ég fór með honum í
leikhús og meira að segja í matar-
boð. Í dag mundi þetta samband
þykja í hæsta máta óeðlilegt, segir
Gissur.
Datt í lukkupott Kristjáns
Gissur fór til Ítalíu og í skóla í Bo-
logna, þar sem hann var í námi í 5
ár. Það tekur um það bil 18 mínútur
að verða ástfanginn af þessu landi,
segir Gissur. Ég fékk kennara,
konu sem er mjög umdeild og þykir
hafa sérstakar skoðanir á söngvur-
um, en ég hefði ekki getað hugsað
mér betri kennara. Algert hörkutól.
Ég ætlaði bara að græja þetta nám
„en, to, tre“, eins og venjulega en
hún var fljót að koma mér niður á
jörðina. Allt sem maður hafði gert
áður skipti ekki máli í þessu námi.
Það er bara tekið mið af því hvað þú
getur, ekki hvað þú gast.
Eftir námið tók við áframhald-
andi nám hjá Kristjáni Jóhannssyni
á Ítalíu. Maður þarf að finna sér
mentor eftir nám og ég hitti Krist-
ján á tónleikum og hann spurði mig
hvort ég væri búinn að finna minn,
sem ég hafði ekki gert. Hann rétti
út hendurnar og sagði mig hafa
dottið í lukkupottinn, eins og hann
er, segir Gissur. Við unnum eins
og skepnur og hann kenndi mér
mikið.
Gissur kom heim fyrir 5 árum
og hefur síðan sungið sig inn í
hjörtu þjóðarinnar. Í dag er hann
einn af okkar vinsælustu söngv-
urum. Hann segir söngvara á Ís-
landi ekki geta leyft sér að sérhæfa
sig of mikið. Það er ekki hægt að
syngja bara einhverjar aríur, mað-
ur lifir allavega ekki af því, segir
Gissur. Það sem er best við Ísland
er það að maður getur tekið þátt
í ótrúlegustu uppákomum, öllum
á sama deginum, þess vegna. Það
er svo gefandi. Maður er kannski
að syngja lög eftir Bubba, Bach og
Paul Simon á sama deginum og
gerir bara sitt besta í þeim öllum.
Það er það eina sem maður getur
gert, segir Gissur Páll Gissurarson.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
60 menning Helgin 22.-28. desember 2014