Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2014, Side 62

Fréttatíminn - 22.12.2014, Side 62
V ið ætlum að troðfylla kofann og hafa skemmtilegt ball. Nú er Siggi Hlö loksins að koma í 101 að spila,“ segir plötusnúð- urinn og skemmtikrafturinn Sigurð- ur Hlöðversson, Siggi Hlö. Siggi hefur tekið höndum saman við þrjá aðra plötusnúða fyrir stór- dansleik í Gamla bíói á laugardags- kvöld, 27. desember. Auk Sigga troða upp Ívar Guðmunds, Hlynur Mastermix og Daddi diskó. Þema kvöldsins er Veistu hver ég var? – hinn vinsæli útvarpsþáttur Sigga Hlö á Bylgjunni á laugardögum. „Það er ekki auðvelt að draga fólk á besta aldri út úr húsi en þarna kem- ur þetta skemmtilega laugardags- kvöld milli jóla og nýárs. Þetta er gott kvöld til að hrista af sér jólin og tilvalið fyrir þá sem kannski nenna ekki út á gamlárskvöld,“ segir Siggi. Hann segir að Gamla bíó sé orð- ið mjög flott hús og henti vel fyrir viðburð sem þennan. „Þetta verð- ur í fyrsta skipti sem þarna er al- mennilegur dansleikur eftir breyt- ingarnar. Við erum búnir að leigja sverustu diskókúlurnar og reyk- vélarnar. Mér þykir samt leitt að segja frá því að sápukúluvélin sem við reyndum að fá var ónothæf.“ Þema kvöldsins er eins og áður segir tónlistin úr útvarpsþætti Sigga. Þar er tónlist frá níunda ára- tugnum áberandi en í Gamla bíói mun líka heyrast tónlist frá tíunda áratugnum. Óhætt er að fullyrða að fólk sem stundaði skemmtistaði á borð við Hollywood, Klúbbinn, Broadway, Casablanca, Evrópu, Nelly’s, D14, Traffic, Tunglið og Þjóðleikhúskjallarann muni finna eitthvað við sitt hæfi á dansleiknum. Siggi á sér traustan aðdáenda- hóp sem hlustar á útvarpsþátt hans. „Jájá, þær dvína ekkert vin- sældirnar. Því er mest fyrir að þakka íslenskri kvenþjóð, hvítvíni og sumarhúsum – í þessari röð,“ segir plötusnúðurinn í léttum tón. En fyrst þú ert svo vinsæll, af hverju ertu þá að deila sviðinu með hinum plötusnúðunum þremur? „Ég lít reyndar svo á að þeir séu miklu stærri nöfn en ég í plötu- snúðabransanum, þeir byrjuðu langt á undan mér. Þeir eru líka með metnaðarfullar bítskiptingar meðan ég er meira að keyra lögin áfram og biðja um að sjá hendur á lofti. Það er fínt að deila svið- inu með þessum strákum, þá get ég skálað við fólkið – með menn í vinnu.“ Dansleikurinn er á laugardags- kvöld og opnar húsið klukkan 23. Miðaverð er 2.990 krónur og fer forsala fram á Miði.is. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Siggi Hlö hefur tekið höndum saman við þrjá aðra plötusnúða fyrir stórdansleik í Gamla bíói á laugardagskvöld. Tilvalið kvöld til að hrista af sér jólin, segir Hlö sem þakkar vinsældir sínar kvenfólki, hvítvíni og sumarbústöðum.  Skemmtanir FyrSti danSleikurinn í endurnýjuðu Gamla bíói Siggi Hlö með diskókúlur og reykvélar í 101 Reykjavík Siggi með aðstoðarmenn sína. Frá vinstri eru Daddi diskó, Hlynur Mastermix og Ívar Guðmunds. Ljósmynd/Hari  tónliSt Plata með klaSSíSkum SönGlöGum Flakkar á milli Íslands og Ameríku Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran- söngkona gaf nýlega út geisladisk- inn Í dag skein sól. Á diskinum eru bæði íslensk sönglög í bland við þýskar aríur Wagners. Ingibjörg segist lengi hafa ætlað að taka þessi lög upp. „Þetta eru lög sem ég hef verið að syngja í gegnum tíðina og langaði að gefa út,“ segir Ingibjörg. „Ég hef svo undanfarið aðeins verið að gæla við Wagner og fannst því til- valið að hafa nokkur lög eftir hann með á diskinum,“ segir hún enn fremur. Ingibjörg nam sópransöng í Söng- skólanum og svo í Þýskalandi. Í dag syngur hún innanlands sem utan, milli þess sem hún starfar sem kennari við Klettaskóla í Reykjavík. „Ég hef mikið verið að fara til Bandaríkjanna undanfarið og er með nokkrar ferðir á prjónunum á nýju ári, sem og tónleikaröð í Seattle árið 2016,“ segir Ingibjörg. „Markaðurinn hér heima er svo lít- ill að maður verður að leita á fleiri mið.“ Ingibjörg er barnabarn Sigurveig- ar Hjaltested óperusöngkonu og er platan tileinkuð henni. „Hún studdi mig og hvatti á tónlistarbrautinni og mig langaði til þess að tileinka henni og afa, Ólafi Beinteinssyni tónlistarmanni, þessa plötu,“ segir Ingibjörg. Í dag skein sól er gefin út af Rödd- um Reykjavíkur og fæst í öllum verslunum Eymundsson, og Nettó. -hf Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir er barna- barn Sigurveigar Hjaltested óperu- söngkonu og tileinkar plötu sína henni. Mynd/Gunnar Freyr Steinsson Sveitabók Eggerts slær í gegn Síðustu dagar jólabókaflóðsins eru nú að renna upp. Ekki kemur á óvart að metsöluhöfundarnir Arnaldur Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir eiga mest seldu bækur landsins en í flóðinu leynast þó nokkrir spútnik- höfundar. Þar á meðal er Eggert Þór Bernharðsson sem sendi frá sér bókina Sveitina í sálinni. Forlagið pantaði endurprentun af henni áður en fyrsta upplag kom í hús eftir að hafa skynjað mikinn áhuga á bókinni. Sá áhugi reyndist sannarlega vera til staðar því alls eru átta þúsund eintök af bókinni farin í bókaverslanir. Sam- kvæmt upplýsingum frá Forlaginu reyndist ekki unnt að prenta meira af henni vegna pappírsskorts. Annar spútnikhöfundur er Ófeigur Sigurðs- son með bók sína, Öræfi. Frétta- tíminn greindi frá því á föstudag að bókuð hefði verið neyðarprentun á bókinni og skilaði hún sér í hús á laugardag. Áhuginn var slíkur að allt upplagið er nú komið í verslanir. Orðbragð í pakkanum RÚV gaf starfsmönnum sínum jólagjöf fyrir helgina. Í pakkanum leyndist bókin Orð- bragð sem heitir eftir samnefndum þáttum sem notið hafa mikilla vinsælda – einmitt á stöð starfsmannanna. Heitir aðdáendur Greinilegt er að tónleikar Dimmu og Bubba Morthens, sem verða haldnir í Hörpu þann 6. mars, hafi hitt í mark hjá rokkþyrstum Bubbaaðdáendum. Klukkutíma eftir að miðasala opnaði fyrir helgina voru strax 500 miðar seldir. Einhverjir rokkarar mega því búast við miða í jólagjöf. fridaskart.is Strandgötu 43 Hafnarrði íslensk hönnun í gulli og silfri 62 menning Helgin 22.-28. desember 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.