Fréttatíminn - 17.10.2014, Qupperneq 55
jólahlaðborðHelgin 17.-19. október 2014 55
Jóhannes Steinn Jóhannesson,
matreiðslumeistari Slippbarsins,
leggur áherslu á að jólin á Slipp-
barnum séu öðruvísi en á hinu
venjulega hlaðborði þar sem
Slippbarinn verði með hátíðar-
matseðil fyrir tvo eða fleiri til að
deila. „„Sharing is caring“ eru
orð sem við höfðum að leiðarljósi
í jólamatnum á Slippbarnum,“
segir Jóhannes Steinn. „Við elsk-
um að hafa gaman og gleðina við
völd. Við elskum að njóta og deila
matnum, sem matreiðslumeist-
arar okkar útbúa af metnaði.
Jólamaturinn er óhefðbundinn
og skemmtilegur og er borinn
beint á borðið þitt. Jólaklukk-
urnar klingja í takt við kokteilana
okkar og jólahjólið stendur beint
fyrir utan barinn. Við viljum bara
eiga gleðileg jól með ykkur,“
segir Jóhannes Steinn um leið og
hann listar upp fyrir okkur hve-
nær Slippbarinn hringir inn jólin:
Jólahlaðborðið okkar hefst að
kvöldi föstudagsins 21. nóvem-
ber,
kr. 7900.-
Jólahádegið okkar hefst mánu-
daginn 24. nóvember frá kl.
11.30 - 14 alla virka daga, kr.
3900.-
Jólabrunchinn okkar hefst
laugardaginn 22. nóvember frá
kl. 12 - 15 allar helgar fram að
jólum, kr. 3900.-
Börn 6-12 greiða hálfvirði og
0-5 ára greiða ekkert.
Borðapantanir:
S. 560 8080 eða á slippbar-
inn@icehotels.is
Á Hilton Reykjavík Nordica
er boðið upp á jólastemningu
í margvíslegum myndum.
Páll Hjálmtýsson, veitinga-
stjóri VOX, segir jólin á
Hilton og VOX vera sérlega
hátíðleg. „Við njótum þess
að koma þér í jólaskap og
hér eru margir möguleikar í
boði,“ segir hann.
„Í fyrsta lagi er það
Jóladýrðin á Hilton. Þar fer
saman ævintýraleg umgjörð
og unaðslegar kræsingar
frá matreiðslumeisturum
VOX. Jógvan Hansen, Pálmi
Sigurhjartar og Erna Hrönn
skemmta gestum yfir borð-
haldi og í lok kvölds sláum
við upp alvöru dansleik sem
stendur til kl. 01.
Opnað verður inn í forsal-
inn kl. 19 og er fólk velkomið
á „happy hour“ fyrr, milli kl.
17 og 19 á VOX Lounge og
VOX Bar, en VOX Lounge
er nýtt og skemmtilegt rými
hér í alrými hótelsins á jarð-
hæðinni, mjög huggulegt,“
segir Páll. „Hilton getur
einnig tekið á móti stærri
hópum í sérsal á annarri hæð
hótelsins sem rúmar allt að
200 manns og hafa fyrirtæki
nýtt sér það að vera út af
fyrir sig.“
Jólahlaðborðið hefst 21.
nóvember og lýkur 13. des-
ember og er öll föstudags- og
laugardagskvöld. Verðið er
það sama og síðastliðin ár,
kr. 9.400,-
VOX Restaurant mun sem
áður taka þátt í jóladýrðinni
en jólabrunchinn á VOX er
orðinn ómissandi hluti af
aðventunni. „Jólabrunchinn
og jólahádegishlaðborðið
okkar á virkum dögum eru
orðin mjög þekkt enda bæði
hátíðleg og sérlega gómsæt.
Fyrsti brunchinn okkar
Gleðileg jól á Slippbarnum
Jóladýrðin á
Hilton og VOX
er 22. nóvember og er þó
nokkuð síðan að fólk fór að
bóka sitt borð í brunchinn,“
segir Páll.
Nýr valkostur um jólin
VOX Club er nýtt og spenn-
andi rými sem opnað var í
vor og þar verður hægt að
vera með skemmtileg jóla-
partý, bæði með standandi
og sitjandi borðhaldi og veit-
ingum við allra hæfi. „Þetta
er öðruvísi en Jóladýrðin í
hátíðarsalnum, umhverfið
er hrárra og veitingarnar
léttari. Við köllum þetta
Jólapartý VOX Club,“ segir
Páll og bætir við að verði sé
stillt í hóf þar, aðeins 7.200
kr. á manninn fyrir mikla og
skemmtilega veislu.
Jólin í fyrirtæki, jólafund-
ir og fjölskyldujólaboð
Fyrir utan þetta allt bjóða
Hilton og VOX upp á að
koma með jólin í fyrirtæki.
„Meistarakokkar okkar bara
snara upp jólahlaðborði og
jólastemningu á staðnum,
eftir uppskrift sem hentar,“
segir Páll. Frá 17. nóvember
bjóðum við fyrirtækjum
einnig upp á jólalega fundi
á Hilton. Heitt súkkulaði
og jólasmákökur og fundar-
pakkar í jólabúningi. En það
eru ekki bara fyrirtæki sem
njóta góðs af þessari þjón-
ustu því við bjóðum einnig
fjölskyldum og vinahópum
að koma saman á Hilton í
stað þess að halda jólaboð í
heimahúsi. Að njóta jólanna
með þínu fólki og láta okkur
sjá um undirbúninginn,“
segir Páll og bætir við að það
sé sívinsælli kostur sem fjöl-
skyldur og vinahópar séu að
nýta sér við mikla ánægju.
Borðapantanir á Jóla-
dýrð Hilton og á VOX: s.
444 5050/ hilton@hilton.
is og vox@vox.is
Iceland
Airwaves
Jólin á Slippbarnum 2014
FORRÉTTIR
Jólasúpa með graskeri og appelsínu
Chorizo, Serrano, reykt andabringa,
síld með brúnuðu smjöri, sinnepi, lauk og
eggjum. Tempura þorskur með tartarsósu og
límónu. Dökkt súrdeigsbrauð, kúmenlaufa-
brauð og smjör
AÐALRÉTTIR
Kalkúnabringa í trönuberjagljáa ásamt salt-
bakaðri seljurót og rósakáli, purusteik með
sítrónu og salvíu, sultuðum plómum, sýrðum
laukum og jólasósu ásamt jólasalati
Slippbarsins 2014 og róstuðum kartöflum í
andafitu með kryddjurtum
EFTIRRÉTTUR
Tanariva mjólkursúkkulaðimús, frosinn sítrus-
frómas, möndlumarsipan svampur í karamellu
og kirsuberjamarengs
Hefst mánudaginn 24. nóvember 2014
Kl. 11:30 - 14:00 alla virka daga.
Verð kr. 3.900,- á mann.
JÓLIN - HÁDEGI JÓLIN - KVÖLD
KALDIR RÉTTIR
Tómatsúpa með eldpipar, nýbökuðu brauði og pestó
Grísk jógúrt með hunangi, berjasultu og músli
Heilsuskot
Blandaður ávaxtabakki
Síldarsalat með eggjum
Chili rækjur
Grafinn lax með sætri sinnepssósu
Chorizo pylsa og Serrano skinka
Flatbökur að hætti Slippbarsins
Sneiddar kalkúnabringur með jólasalati og
trönuberjagljáa
HEITIR RÉTTIR
Grillaður reyktur grísakambur „BBQ!”
Djúpsteiktar pylsur á priki!
Osta ommeletta
Róstaðar sætar kartöflur
Steikt brokkolí með sesam og chili
Purusteik og sveppasósa
EFTIRRÉTTIR
Stökkar vöfflur með Golden sýrópi og súkkulaðismjöri
Marengsterta
Jólafrómas
Lagkaka
Sætir bitar
Ávaxtasafi og uppáhellt kaffi fylgir með hlaðborðinu
Hefst laugardaginn 22. nóvember - Kl. 12:00 - 15:00
Verð 3.900 - Laugardagar og sunnudagar.
LYSTAUKAR
Chorizo, Serrano, Reykt andabringa,
Stökkt grísaflesk með ídýfu
Kremaðar sveppakrókettur með perlubyggi
Kjúklingalifrarfrauð með villtum berjum
Sætkartöflusnakk með reykostakremi
Dökkt súrdeigsbrauð, kúmenlaufabrauð og smjör
FORRÉTTIR
Rauðrófusalat með geitaosti, lakkrís, brómberjum og sætu ediki
Heitreyktur lax á spjóti með piparrót, sítrónu, einiberjum og dilli
Síld með brúnuðu smjöri, sinnepi, lauk og eggjum
Tempura þorskur með tartarsósu og límónu
AÐALRÉTTIR
Kalkúnabringa í trönuberjagljáa ásamt saltbakaðri seljurót og
rósakáli, purusteik með sítrónu og salvíu, sultuðum
plómum, sýrðum laukum og jólasósu ásamt jólasalati Slippbars-
ins 2014 og róstuðum kartöflum í andafitu með kryddjurtum.
EFTIRRÉTTUR
Tanariva mjólkursúkkulaðimús, frosinn sítrusfrómas, möndlu-
og marsipansvampkaka í karamellu og kirsuberjamarengs
Hefst föstudaginn 21. nóvember 2014 - Kl. 18:00 - 22:00
Verð kr. 7.900,- á mann
JÓLIN - BRUNCH