Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 2
SUMARTILBOÐ
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
Opið laugardaga til kl. 16
98.900
Niðurfellanleg
hliðarborð
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Kveiking í öllum rofum
• Auka steikarplata fylgir
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Efri grind
• Bakki fyrir fitu
• Hitamælir
• Fáanlegt í fleiri litum
Er frá Þýskalandi
Ó lafur Ragnar Gríms-son, forseti Íslands, átti
síðastliðinn mánudag fund
með Li Congjun, forseta
kínversku Xinhua frétta-
stofunnar og sendinefnd
starfsmanna fréttastofunnar,
um vaxandi áhuga í Kína
á fréttum frá Íslandi og
norðurslóðum. Fréttastofan
hefur, eins og fram kemur
á síðu forsetaembættisins,
ákveðið að hafa sérstakan
fréttaritara starfandi á Ís-
landi. Huang Xiaonan stýrir
fréttastofu Xinhua hér á
landi.
Á fundi forseta Íslands
með Li Congjun og sendi-
nefnd fréttastofunnar var
fjallað var um þróun samfé-
lags og efnahagslífs á Íslandi
á undanförnum áratugum,
nýtingu hreinnar orku og
samvinnu við Kína á því
sviði sem og samstarf á sviði
rannsókna.
Aðalstöðvar Xinhua eru
í Peking en fréttastofan
starfar í 107 löndum. - jh
Li Conjun, forseti
kínversku fréttastof-
unnar Xinhua, fundaði
á mánudaginn með
Ólafi Ragnari Gríms-
syni, forseta Íslands
og Örnólfi Thorssyni
forsetaritara. Auk
þeirra var á fundinum
sendinefnd starfsmanna
kínversku fréttastof-
unnar en ákveðið hefur
verið að hafa fréttarit-
ara stofunnar starfandi
hérlendis.
fjölmiðlar forseti kínversku fréttastofunnar fundaði með forseta íslands
Xinhua með fréttaritara hérlendis
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands og Li
Conjun, forseti kín-
versku fréttastofunnar
Xinhua.
a ðgerðin gekk mjög vel en ég er enn með mikla verki,“
segir Karen Helenudóttir
sem á mánudag fór loks í
langþráða aðgerð vegna
hryggskekkju. Læknirinn
hennar hafði neitað að
gera aðgerðina og því tók
Hermann, bróðir Karenar,
þátt í hæfileikakeppninni
Ísland got talent til að
reyna að vinna sigurpottinn
þannig að Karen gæti farið
í aðgerðina í Svíþjóð, en
heildarkostnaður var áætl-
aður um 8 milljónir. Her-
mann vakti þannig athygli á
erfiðri stöðu systur sinnar
en fyrir aðeins sex vikum
hittu þau annan íslenskan
lækni sem ákvað að gera
aðgerðina hér heima.
Helena Levisdóttir, móðir
þeirra, segir fjölskylduna
afar þakkláta enda hafi upp-
haflega staðið til að spengja
hrygg Karenar fyrir tveim-
ur árum eftir misheppnaða
meðferð með spelku, en
Karen gekk með spelku um
hrygginn 22 tíma á dag í
heilt ár án þess að það bæri
árangur. „Við fengum neit-
un frá lækninum hennar
sem sagðist ekki geta gert
aðgerðina. Við vorum í raun
alveg að gefast upp. Eftir að
Hermann byrjaði að safna
fyrir aðgerðinni í Svíþjóð
sóttum við um styrk hjá
Sjúkratryggingum til að
fara út en var synjað á þeim
forsendum að það væri
hægt að gera aðgerðina hér
heima. Það eru síðan um 6
vikur síðan við komumst í
samband við annan lækni
sem ráðfærði sig við lækna
í Svíþjóð og ákvað síðan
að gera sjálfur aðgerðina.
Hryggurinn á henni var
loksins spengdur á mánu-
daginn. Þessir fyrstu dagar
hafa verið erfiðir en hún
er öll að koma til,“ segir
Helena.
Karen segist hafa verið
bæði hissa og glöð þegar
hún komst að því að hún
fengi að fara í aðgerðina hér
heima. Hún stóð í fæturna í
fyrsta skipti á miðvikudag
og er byrjuð í sjúkraþjálfun
á Barnaspítala Hringsins.
Eftir að hún fer heim felst
endurhæfingin fyrst og
fremst í því að ganga.
Hermann bar ekki sigur
úr býtum í Ísland got talent
en hefur sýnt töfrabrögð
víða og allar greiðslur fyrir
sýningar hafa farið inn á
styrktarreikning Karenar.
Þegar hefur hann safnað
um 400 þúsund krónum en
Hermann og Lovísa, yngri
systir hans, halda áfram
að sýna þó Karen sé þegar
búin að fara í aðgerð sem
íslenska heilbrigðiskerfið
borgar. „Karen getur ekk-
ert unnið næstu tvö árin
þannig að við ætlum að
safna áfram fyrir hana,“
segir Hermann. Karen er
nemandi við Menntaskól-
ann í Kópavogi og var að
vinna með skóla þrjá daga
í viku á kassa í Bónus en
þurfti að hætta því vegna
verkja. „Fyrst og fremst
erum við ánægð og þakklát
fyrir að hún er búin að fara
í aðgerðina,” segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Systir töframannsins
búin í aðgerð
Karen Helenudóttir fór loks í langþráða aðgerð vegna hryggskekkju á Barnaspítala Hringsins
á mánudag. Vegna þess að læknirinn hennar neitaði að gera aðgerðina fór bróðir Karenar,
Hermann, að sýna töfrabrögð til að safna fyrir aðgerðinni í Svíþjóð. Fjölskyldan komst í samband
við annan íslenskan lækni fyrir aðeins 6 vikum sem gerði aðgerðina sjálfur.
Hermann á spítalanum með Karen systur sinni sem er að jafna sig eftir aðgerðina. Karen er enn veikburða en öll að koma til. Mynd/Hari
Lovísa og Hermann
Helenubörn styðja
við bakið á systur
sinni og koma
áfram saman fram
á töfrasýningum til
styrktar henni.
Mynd úr einkasafni
Við vorum í
raun alveg að
gefast upp.
heilbrigðismál karen helenudÓttir fékk að fara í aðgerð á íslandi
Foreldrafélag gigtveikra barna bauð
upp á sumargleði með grilli, gjöfum og
skemmtiatriðum á Barnaspítala Hringsins í
gær, fimmtudag.
„Foreldrafélagið hefur núna í fimm ár í
röð haldið grillveislu á Barnaspítalanum
með hjálp Vífilfells, MS og Góu og svo
hafa Simmi og Jói alltaf verið með okkur
í þessu. Svo hafa líka ýmis fyrirtæki gefið
leikstofunni á Barnaspítalanum gjafir og
fært þeim ýmiskonar skemmtiatriði. Núna
komu Lína langsokkur, Sveppi og Villi í
heimsókn við mikinn fögnuð barnanna,“
segir Fríða Kristín Magnúsdóttir, einn
af meðlimum félagsins. Foreldrafélagið
hefur sett á fót styrktarsjóð og verður nú
hægt í fyrsta sinn að hlaupa til styrktar
gigtveikum börnum í Reykjavíkurmaraþon-
inu í ágúst. „Villi og Sveppi ætla að hlaupa
10 kílómetra fyrir sjóðinn í maraþoninu svo
við hvetjum að sjálfsögðu alla til að heita
á þá.“ -hh
Atvinnuleysi 7,1
prósent í maí
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hag-
stofu Íslands voru í maí 2014 að jafnaði
195.400 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru
171.600 starfandi og 13.800 án vinnu og í
atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85,4%,
hlutfall starfandi 79,4% og atvinnuleysi var
7,1%. Samanburður mælinga í maí 2013 og
2014 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um tvö
prósentustig og hlutfall starfandi jókst um 2,2
prósentustig. Hlutfall atvinnulausra minnkaði á
sama tíma um 0,4 prósentustig.
„Fyrri mælingar sýna að í maí mánuði mælist
atvinnuleysi tímabundið alltaf hæst. Munar þar
mestu um að ungt fólk kemur í auknum mæli
inn á vinnumarkaðinn í leit að sumarstörfum.
Í maí 2014 var atvinnuleysi á meðal 16-24 ára
16,1% á meðan það var 5% hjá 25 ára og eldri,“
segir Hagstofan. -jh
Gjaldþrotum fyrir-
tækja fækkar um 20%
Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu
12 mánuði, frá júní 2013 til maí
2014, hafa dregist saman um 20%
samanborið við 12 mánuði þar á
undan, að því er Hagstofa Íslands
greinir frá. Alls voru 837 fyrirtæki
tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu.
Flest gjaldþrot voru í byggingarstarf-
semi og mannvirkjagerð, eða 157.
Nýskráningum einkahlutafélaga
síðustu 12 mánuði, frá júní 2013
til maí 2014, hefur fjölgað um 3%
samanborið við 12 mánuði þar á
undan. Alls voru 1.929 ný félög skráð
á tímabilinu. Flestar nýskráningar
voru í fjármála- og vátryggingar-
starfsemi, eða 310. - jh
Lína langsokkur var meðal þeirra sem mættu á Barnaspítala Hringsins til að
gleðjast með börnunum. Ljósmynd/Hari
Sveppi og Villi hlaupa fyrir gigtveik börn
2 fréttir Helgin 27.-29. júní 2014