Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 64
 Í takt við tÍmann Þórunn Ívarsdóttir Fer í mat til tengdó fjórum sinnum í viku Þórunn Ívarsdóttir er 24 ára fatahönnuður sem heldur úti vinsælu tískubloggi á Thorunnivars.is. Hún er nýkomin úr fríi í Bandaríkjunum þar sem hún var bitin af pöddu. Staðalbúnaður Fatastíllinn minn er kvenlegur og „plain“. Ég myndi segja að ég væri frekar í fínni kantinum heldur en hitt en ég er samt alltaf í flatbotna skóm og buxum. Ég fer aldrei í kjól því mér finnst leiðinlegt að vera bara í einni flík. Ég vil frekar gera „outfit“ með fleiri flíkum; buxum, bol og jakka til dæmis. Ég skiptist á að elska og hata að ganga með hálsmen. Allt árið 2013 gekk ég með háls- men en ég hef ekki sett á mig hálsmen í ár. Þetta er svolítið sérstakt Hugbúnaður Ég æfi sex sinnum í viku í Sporthúsinu og Crossfit Kötlu. Mig langar frekar að vakna hress á morgnana og fara í ræktina en að fara á djammið. Ég fer mikið í bíó því ég sofna yfirleitt ef ég reyni að horfa á myndir heima. Ég horfi samt frekar mikið á þætti í gegnum Netflix. Ég var að klára Orange is the New Black sem ég gjörsamlega dýrka. Ég er líka að lesa bókina. Svo eru Scandal líka í uppáhaldi og ég get horft aftur og aftur á New Girl. Vélbúnaður Ég er með Macbook Pro sem er eiginlega barnið mitt og svo iPhone 5 sem ég algjör- lega dýrka líka. Svo er ég með tvær Canon- myndavélar sem ég nota til að taka myndir fyrir bloggið mitt. Ég er ekki með mörg öpp í símanum því ég tek svo mikið af myndum að ég enda alltaf á að eyða til að koma þeim fyrir. Ég nota Instagram og Snapchat og svo var ég reyndar að ná mér í app til að læra spænsku. Það gengur samt sjúklega illa og ég kemst ekki yfir fyrsta level. Ég er að spá í að eyða því bara. Aukabúnaður Ég kann ekkert að elda, ég get ekki einu sinni soðið hrísgrjón. Ég hef samt gaman af mat og ég og kærast- inn erum ágætlega dugleg við að fara út að borða. Best er að fara með vin- konunum á Grillmarkaðinn í hádeginu en það gerir maður ekki oft. Svo er ég svo heppinn að tengdamamma eldar rosa góðan mat og býður okkur í mat fjórum sinnum í viku. Ég keyri um á eldrauðum Toyota Auris, 2009 árgerð, hann fer ekki framhjá neinum. Ég var að koma heim úr tveggja vikna fríi í Kaliforníu og á Flórída sem var rosa gott. Ég var í námi í Kaliforníu og var að heimsækja vinkonur mínar þar. Því miður var ég veik eftir ferðina því ég var bitin af pöddu og þurfti að fara á sýklalyf. Besti staðurinn á Íslandi er norður á Ströndum þar sem fjölskyld- an mín á sumarbústað. Þar er gott að vera með fjölskyldunni og hundinum. Ljósmynd/Hari Litlir hlutir sem fegra heimilið, naglalökk, hringar og kerti. Nýja Michael Kors taskan mín fer með mér allt í farþegasætinu. Kemst ekki langt án Mac Book Pro. H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA  appafengur Sleep Cycle Power Nap Sleep Cycle Power Nap er frá framleiðendum hins sívinsæla apps, Sleep Cycle alarm clock, og byggir á sömu tækni. Tækni- búnaður iPhone er hér nýttur til hins ýtrasta, appið fylgist með hreyfingum þínum og notar þær upplýsingar til að meta hvort þú ert vakandi eða á hvaða svefnstigi þú ert. Þú getur valið á milli þess að fá þér 20 mínútuna orkublund og þá vekur appið þig áður en þú ferð í djúpsvefn, blund til að endurnæra þig sem stendur yfir í allt að 45 mínútur, eða þá að þú ferð í gegn um öll svefn- stigin einu sinni og appið vekur þig þegar þú ert komin aftur í léttan svefn. Við höfum öll upplifað að eiga misjafnlega erfitt með að vakna jafnvel þó við ættum að vera úthvíld. Ástæðan er oft sú að vekjara- klukkan hringir þegar við erum í djúpsvefni en ekki léttum svefni. Nú er hins vegar hægt að taka stuttan blund og vakna alltaf endurnærð. Appið kostar 1,99 dollara og er algjörlega þess virði. - eh 64 dægurmál Helgin 27.-29. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.