Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 8
eimskip Nýtt skip afheNt í kíNa
Nýr Lagarfoss til Reykjavíkur 17. ágúst
Eimskip tók fyrr í vikunni við
nýju skipi, Lagarfossi, í Kína.
Við skipinu tók skipstjóri þess,
Guðmundur Haraldsson, ásamt
11 manna íslenskri áhöfn. Á leið
sinni til Íslands mun Lagarfoss
hafa viðkomu í kínversku
hafnarborginni Qingdao til
að lesta gáma, m.a. fyrir við-
skiptavini félagsins í tilefni af
nýjum fríverslunarsamningi
Íslands og Kína. Skipið
mun einnig flytja 200 nýja
frystigáma sem félagið festi
kaup á í Kína. Jafnframt verða
fluttir gámar til Rotterdam
fyrir erlenda viðskiptavini.
Skipið mun sigla um 11
þúsund sjómílur á leið sinni til
Rotterdam sem svipar til vega-
lengdarinnar á milli Norður- og
Suðurpólsins. Áætlað er að
Lagarfoss verði í Rotterdam
12. ágúst næstkomandi og 17.
ágúst í Reykjavík.
Lagarfoss er 875 gámaein-
ingar að stærð, þar af með
tengla fyrir 230 frystigáma.
Burðargeta skipsins er um
12 þúsund tonn, það er 140,7
metrar á lengd, 23,2 metrar á
breidd og ristir 8,7 metra. Tveir
45 tonna kranar eru á skipinu.
Lagarfoss er sjöunda
skipið sem ber þetta nafn hjá
félaginu. Lagarfoss I var þriðja
skipið sem Eimskip eignaðist
og var það í eigu félagsins frá
1917 til 1949.
Samningur var gerður um
smíði tveggja skipa í júní
2011. Í ljósi þess að verkinu
seinkaði var samið um tæplega
11 milljóna dollara afslátt frá
upphaflegu samningsverði
skipanna, að því er segir á síðu
Eimskips. „Mjög ánægjulegt
er að sjá til lands í þessu stóra
verkefni,“ segir Gylfi Sigfússon,
forstjóri Eimskips. „Smíði á
sérhæfðu gámaskipi mun
styrkja þjónustu við viðskipta-
vini félagsins á Norður-Atlants-
hafi. Viðræður um afhendingu
seinna skipsins eru nú í gangi
og niðurstöðu er að vænta á
þriðja ársfjórðungi, en ljóst að
afhendingin mun ekki verða
fyrr en á árinu 2015.“ -jh
Áhöfn Lagarfoss við afhend-
ingu hins nýja skips í Kína.
Mynd Eimskip
e ftir hraða hækkun húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu frá upphafi árs lækkaði það um 0,1% í maí frá
fyrri mánuði. Lækkunina má rekja til
1,2% lækkunar á verði sérbýla en íbúðir í
fjölbýli hækkuðu um 0,2% á sama tíma, að
því er Þjóðskrá Íslands greinir frá.
„Verðbreytingar á íbúðarhúsnæði geta
verið afar sveiflukenndar á milli mánaða
og ekki er óalgengt í hækkunarferli líkt
og hefur verið á þessum markaði undan-
farin misseri að fá einstaka mánuði þar
sem íbúðaverð lækkar,“ segir Greining
Íslandsbanka og bendir á að þrátt fyrir
þessa lækkun hafi verð íbúðarhúsnæðis
hækkað um 9,6% að nafnvirði síðustu
tólf mánuði. Hefur hækkunin verið hröð
síðustu mánuði en frá áramótum hefur
verðið hækkað um 4,6%.
„Þessi lítilsháttar lækkun nú í maí
breytir ekki þeirri skoðun okkar að
húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu,
og raunar landinu öllu, haldi áfram að
hækka nokkuð hratt á næstu misserum.
Hækkunin mun vera, líkt og undanfarið,
drifin áfram af auknum kaupmætti launa,
bættu atvinnuástandi, fólksfjölgun og
sögulega lágu raunvaxtastigi. Til við-
bótar kemur vöxtur í ferðaþjónustu, en
talsvert af íbúðum á höfuðborgarsvæðinu
er komið í útleigu til ferðamanna. Einnig
hafa áhrif til hækkunar væntingar vegna
skuldaaðgerða ríkisstjórnarinnar,“ segir
greiningardeildin.
Samhliða hækkandi íbúðaverði hefur
velta á íbúðamarkaðinum aukist. Þing-
lýstir kaupsamningar með íbúðarhús-
næði á höfuðborgarsvæðinu voru 8,2%
fleiri í maí en í sama mánuði í fyrra.
Veltan var 11,2% meiri en í sama mánuði
í fyrra. Það sem af er ári er veltan á þess-
um markaði komin upp í 92,4 milljarða
króna sem er 21,6% aukning frá sama
tímabili í fyrra. Fjöldi samninga hefur
aukist um 8,8%.
„Velta og fjöldi kaupsamninga á
íbúðamarkaðinum á höfuðborgarsvæð-
inu hefur nú aukist umtalsvert frá því að
þessi markaður náði botni eftir hrunið.
Þrátt fyrir vöxtinn er umfang markaðar-
ins ekki mikið í söguleg ljósi og umtals-
vert minna t.d. en það var þegar bank-
arnir komu inn á þennan markað 2004.
Vöxturinn undanfarið er því ekki merki
um þenslu á þessum markaði að okkar
mati, heldur frekar að hann sé að losa
sig við slakann sem þar hefur verið og að
færast nær eðlilegu árferði,“ segir deildin
enn fremur.
Hækkun húsnæðisverðs hefur verið
umfram hækkun byggingarkostnaðar. Þá
hefur leiguverð hækkað hratt undanfarið,
samhliða hækkun íbúðaverðs.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Verðhækkun spáð þrátt
fyrir lækkun í maí
Hröð verðhækkun frá áramótum ekki merki um þenslu heldur frekar að
íbúðamarkaðurinn sé að losa sig við slakann, að mati Greiningar Íslandsbanka.
fasteigNir sérbýli lækkaði í verði eN íbúðir í fjölbýli hækkuðu
Áfram er gert ráð fyrir hækkun fasteignaverðs – en mat Greiningar Íslandsbanka er
þó að ekki sé þensla eða bóla á fasteignamarkaði.
Hækkun húsnæð-
isverðs hefur verið
umfram hækkun
byggingarkostn-
aðar.
Fararstjóri: Kristín Jóhannsdóttir
Sumar 14 7. - 14. ágúst
Hamborg & Lübeck
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sumarfrí á döfinni? Hér er frábær ferð sem tvinnar
saman sögu, menningu og töfrandi náttúrufegurð.
Lübeck er sannkölluð perla Norður-Þýskalands
„Drottning hafsins og marsipangerðar“.
Verð: 189.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
Vor/Sumar
2014
Útsala
Útsala
Útsala
fjöLskyldUhátíðiN
í galtAlæKjarskóGi með
18.–20. júlí
FaceboOk.cOm/gaLtalaEkjarSkoguR
stúTfull dagsKrá af sKemmtIatriðUm fyRir allA
FjöLskylduNa!
miðAsala fer Fram á midi.iS
8 fréttir Helgin 27.-29. júní 2014