Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 62
sumarkaffið 2014: afríkusól - veitir gleði og yl Afríkusól frá Rúanda. Dökkir Afríkuskuggar eru mjúkir og yndislegir í þessu kaffi. Hentar í allar gerðir uppáhellingar. kaffitar.is Gítarleikarinn Andrés Þór þykir einn af fremstu djassgítaristum hérlendis af sinni kynslóð og hefur hann fengið góða umfjöllun víðsvegar að um plötur sínar og tónleika. Á nýjustu plötu sinni, sem nefnist „Nordic Quartet“, leiðir hann nor- rænan kvartett saman. En hvernig hófst þetta samstarf? „Þegar ég var í námi í Hollandi fyrir nokkrum árum kynntist ég dönskum bassa- leikara sem heitir Andreas Dreier. Undanfarin ár hef ég nokkrum sinnum farið til Noregs þar sem hann býr, til þess að spila með honum. Þegar ég svo ákvað að gera plötu með norrænum hljóðfæra- leikurum þá var hann fyrsti maður á blað, ásamt norska saxófónleikar- anum Anders Lønne Grønseth sem hafði spilað með okkur í Noregi,“ segir Andrés sem undanfarin ár hefur ferðast víðsvegar um heiminn til þess að kynna tónlist sína. „Ég hafði svo fylgst með sænsk- um trommara sem heitir Erik Ny- lander, hafði samband við hann og hann var til, svo ég fékk þá alla til þess að spila með mér á Jazzhátíð Reykjavíkur 2012 og í Noregi þar sem við fórum í hljóðver og tókum upp þessa plötu sem er að koma út núna.“ Í vikunni hafa Andrés og félagar haldið tónleika á Akur- eyri, í Grindavík og á Egilsstöðum og hefur ferðalagið gengið vel. „Trommarinn komst því miður ekki með í þetta sinn. Við fengum Einar Val Scheving til þess að hlaupa í skarðið, sem er frábært því hann er bæði norrænn og kann sitthvað fyrir sér í trommuleik,“ segir Andrés. Tónleikarnir eru opnunartón- leikar Jazzklúbbs Hafnarfjarðar og verður öllum Hafnfirðingum og þeim sem vilja heimsækja Hafnar- fjörð þetta kvöld boðið ókeypis á tónleikana á meðan húsrúm leyfir. „Ég var útefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar á dögunum og af því tilefni langaði mig að borga til baka og hafa frítt inn. Við hlökkum mikið til og vonandi sjáum við sem flesta.“ Platan er gefin út af útgáfufyrir- tækinu Dimmu á Íslandi. En henni verður einnig dreift um Þýskaland, Austurríki og Sviss. Þess má geta að næstu tónleikar Jazzklúbbsins verða 21. ágúst en þá stígur á stokk kvartett fær- eyska píanóleikarans Magnus Johansen. -hf  TónlisT Andrés Þór með úTgáfuTónleikA í HAfnArfirði Bæjarlistamaður gefur til baka Útgáfutónleikar gítarleikarans Andrésar Þórs Gunnlaugssonar í tilefni af útgáfu hljómdisksins „Nordic Quartet“ verða haldnir í Bæjarbíó í Hafnarfirði sunnudaginn 29. júní klukkan 21 í sam- starfi við Menningar- og listafélag Hafnarfjarðar. Andrés Þór og félagar spila í Bæjarbíói í Hafnarfirði á sunnudagskvöld. Með honum leika Andeas Dreier, Anders Lønne Grønseth og Einar Valur Scheving. Ljósmynd/Hari fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420 Heimilistæki Dýnudagar STARLUX OG MEDILINE HEILSURÚM Stærðir: 80 x 200 cm 90 x 200 cm 100 x 200 cm 120 x 200 cm 140 x 200 cm 160 x 200 cm 180 x 200 cm Yfirdýnur 20% afsláttur Svampdýnur 20% afsláttur Starlux springdýnur 20% afsláttur Dýnur og púðar sniðnir eftir máli eða sniðum. Með eða án áklæðis. Mikið úrval áklæða 20% afsláttur Eggjabakkadýnur mýkja og verma rúmið, þykktir 4-6 cm. Tilvaldar í sumarhúsið, ferða- bílinn og tjaldvagninn 30% afsláttur Mikið úrval af svefn- stólum og sófum í stöðluðum stærðum eða skv. máli 20-40% afsláttur Dýnudagarstanda til lok júní. 62 menning Helgin 27.-29. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.