Fréttatíminn - 27.06.2014, Side 4
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
FLOTTAR VÖRUR Í STÆRÐUM 14-28
Sjáðu úrvalið í netverslun www.curvy.is eða
kíktu við í verslun okkar að Fákafeni 9
Afgreiðslutímar eru alla virka daga frá
kl. 11-18 og laugardaga frá kl. 11-16
Fákafeni 9, 108 RVK
Sími 581-1552
www.curvy.is
NÝ SENDING AF
SUNDFÖTUM
í stærðum 14-24
( Euro stærð 42-52 )
Afgreiðslutímar í verslun okkar að Fákafeni 9
Alla virka daga frá kl. 11-18
Laugardaga frá kl. 11-16
Ég held að Fjara
gæti vel komið
í staðinn fyrir
Gunnars majónes
og orðið aðal-
majónesið á
Íslandi.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Hæg V-læg átt. Skýjað með köflum en
Víða SíðdegiSSkúrir.
HöfuðborgarSVæðið: Hægviðri
og skýjað.
Hæg V-læg átt. Skýjað með köflum og lítilS-
Háttar Súld V-til en SíðdegiSSkúrir a-til.
HöfuðborgarSVæðið: vestlæg átt,
skýjað en úrkomulítið.
SuðVeStan 3-10 m/S, Skýjað með köflum og
þurrt Sa-landS annarS lítilSHáttar Væta
HöfuðborgarSVæðið : suðvestan 3-8 m/s,
skýjað á köflum
úrkoma víða um land
en þó sólarglennur
suðlægar áttir, víðast hvar
hægar. sólarglennur hér og þar en
úrkoma víða um land, þokuloft með
ströndinni sunnan- og vestantil,
en síðdegisskúrir fyrir
norðan og austan. Hiti
yfirleitt 10 til 20 stig,
hlýjast na-lands.
14
16 17
16
14
14
13 15 16
17
13
13 14 16
16
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Fjólublátt heilsumajónes
úr sólþurrkuðu þangi
Heilsumajónesið fjara er unnið úr þangi sem er sólþurrkað á íslensku hrauni og hentar vel fyrir
grænmetisætur. Páll arnar Hauksson, sem þróaði majónesið ásamt skólafélaga sínum í matvæla-
fræði, segir það henta vel með steiktum fiski og kartöflum. Fjara en enn ekki komin á markað og
leita þeir félagar að fjárfestum.
Páll arnar Hauksson með majónesið fjöru. Þar sem það er unnið úr þangi er milt sölvabragð af því. Mynd/Hari
vöruþróun Majónesið er aFrakstur þróunarverkeFnis við Hí
M ajónesið er skemmtilega fjólublátt. Það hafa ýmsir lyft brúnum þegar þeir sjá það en
marga minnir það einfaldlega á bláberja-
skyr þegar þeir sjá það fyrst,“ segir Páll
Arnar Hauksson um heilsumajónes sem
hann þróaði ásamt skólafélaga sínum,
Christopher Melin. Þeir voru að ljúka
BS-gráðu í matvælafræði við Háskóla Ís-
lands og kúrsi um vöruþróun var þeim
gert að þróa matvöru frá grunni. Majó-
nesið Fjara er afrakstur af þeirri vinnu.
Mikil umræða hefur verið um majónes
meðal landsmanna eftir að fregnir bár-
ust af því að Gunnars majónes væri gjald-
þrota en reksturinn færður í nýtt félag.
Þó heilsumajónesið sé enn ekki komið
í framleiðslu hefur Páll Arnar háleitar
vonir. „Ég held að Fjara gæti vel komið í
staðinn fyrir Gunnars majónes og orðið
aðalmajónesið á Íslandi,“ segir hann í
léttum dúr.
Fjólublái liturinn kemur vegna þess að
þari er notaður í majónesið en þangið er
sólþurrkað á íslensku hrauni. Engin egg
eru í majónesinu og hentar það vegan-
grænmetisætum jafnt og öðrum sem
vilja auka hollustu í mataræði sínu. En
er majónes úr þara gott á bragðið? „Þetta
hefur fengið góðar viðtökur. Þeir sem
þekkja bragðið af sölum eru sérstaklega
hrifnir og vilja jafnvel að sölvabragðið
væri enn meira,“ segir Páll Arnar. Sjálfur
segist hann helst borða majónesið með
steiktum fiski, fiskistöngum og jafnvel
ofan á brauð. „Við höfum borið majónes-
ið þannig fram þegar við erum að kynna
það. Oft notum við það nánast bara í
staðinn fyrir kokteilsósu,“ segir hann.
Fjara stóð uppi sem sigurvegari al-
þjóðlegu vöruþróunarkeppninnar EcoT-
rophelia Ísland sem er haldin meðal há-
skólanemenda og fara þeir Páll Arnar og
Christopher til Frakklands í framhaldinu
með majónesið, en keppnin er haldin hér
á landi á vegum Matís, HÍ og Nýsköp-
unarmiðstöðvar Íslands. Þá var Fjara
ein af um 30 matvörum sem kynntar
voru í vikunni á Nordtic ráðstefnunni á
Selfossi, ráðstefnu um norræna lífhag-
kerfið þar sem markmiðið er að finna
leiðir til fullnýtingar afurða án þess að
ganga á auðlindir og minnka þannig
úrgang, auka verðmætasköpun og ýta
undir nýsköpun.
Enn sem komið er verður ekki hægt að
fá Fjöru í matvöruverslunum. „Við höfum
samt unnið ákveðna markaðsvinnu og
leitum að fjárfestum,“ segir Páll Arnar.
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
rétt tæplega helmingur
landsmanna horfði á opn-
unarleik Brasilíu og króatíu
á Hm í knattspyrnu á
RÚV hinn 12. júní. Það er
mun meira áhorf en var
á opnunarleikinn í suður
Afríku 2010, samkvæmt
upplýsingum frá valgeiri
vilhjálmssyni, rann-
sóknarstjóra rúv. Borið
saman við HM 2010 virðist
áhorfið þó vera svipað það
sem af er keppni. mikið
áhorf var á leik spánverja
og Hollendinga í fyrstu
umferð riðlakeppninnar,
32 prósent meðaláhorf og
49 prósent uppsafnað. í
síðustu viku var mest horft
á leik Brasilíu og mexíkó,
en aðrir vinsælir leikir
voru t.d. leikur spánar
gegn Chile og Þýskalands
& gana. valgeir segir að
athygli veki að konur horfa
mikið á Hm. „Hjá konum
voru 7 af 10 vinsælustu
dagskrárliðunum í síðustu
viku útsendingar frá Hm í
fótbolta,“ segir hann. -hdm
tollarar tóku hálft
kíló af steradufti
tollverðir fundu á dögunum
rúmlega hálft kíló af steradufti
í póstsendingu frá Hong kong.
Duftinu hafði verið komið fyrir í
umbúðum utan af vegglími.
í fréttatilkynningu frá toll-
stjóra segir að framleiða hefði
mátt allt að 125 glös, sem
rúma 20 millilítra hvert, af
fljótandi sterum úr þessu
duftmagni.
Þetta er ekki eina
smyglið á ólöglegum
lyfjum sem tollstjóri
hefur stöðvað að undan-
förnu. að stórum hluta
hefur þar verið um ólög-
leg stinningarlyf og stera
að ræða. tollstjóri hefur
kært málin til viðkomandi
lögregluembætta.
konur láta til sín taka á pöllunum í Brasilíu en
kynsystur þeirra hér á landi fylgjast grannt með
gangi mála í keppninni. Mynd/NordicPhotos/Getty
konur horfa mikið á Hm
4 fréttir Helgin 27.-29. júní 2014