Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.06.2014, Síða 23

Fréttatíminn - 27.06.2014, Síða 23
ÚTBÚÐU UPPÁHALDS RÉTTINN ÞINN TAKTU girnile ga INSTAG RAM M YND af rét tinum MERKtu MYNDINA#GOTTiMATINN ogdeildu á FACEBOOK 1. 2. 3. MEÐ HRÁEFNI FRÁ GOTT Í MATINN! Sendu okkur þína girnilegu matarmynd og þú Gætir unnið weber grill! eða glæsilega gjafakörfu Taktu þátt í matarmyndaleik Gott í matinn. Útbúðu þinn uppáhaldsrétt úr ljúffengu hráefni frá Gott í matinn, taktu girnilega Instagram mynd af réttinum og deildu henni með okkur á Facebook. Girnilegasta matarmyndin verður valin úr pottinum og sigurvegarinn hlýtur að launum glæsilegt Weber grill. Sendu okkur þína girnilegu matarmynd H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA E inar Georg var fimm- tugur þegar Ásgeir Trausti fæddist og gæti því auðveldlega verið afi hans í árum talið. Þeim hefur alltaf komið vel saman þó drengurinn hafi þurfti að „burðast með gamlan pabba,“ eins og Einar orðar það. Hann kveðst aldrei hafa þurft að skamma son sinn en Ásgeir segir að hann hafi fengið að ráða sér mikið sjálfur. Við Einar Georg og Ásgeir Trausti mælum okkur mót á Frétta- tímanum. Einar mætir tímanlega, nýkominn að norðan en hann býr á Laugarbakka í Miðfirði þar sem Ásgeir Trausti ólst upp. „Ás- geir verður aðeins seinn en hann hlýtur að fara að koma. Hann býr svo langt frá bænum, alla leið upp í Norðlingaholti. Svo þurfti hann eitthvað að skutlast með kær- ustuna.“ Við Einar setjumst niður með kaffibolla á meðan sonurinn skutlast með kærustuna. Ljóðin undir hjónarúminu Einar Georg Einarsson er ættaður frá Húsavík en hefur kennt víða um land sem íslenskukennari auk þess að hafa verið skólastjóri í nokkrum skólum. Nú er hann 73 ára og sest- ur í helgan stein og getur því al- farið helgað sig skrifunum. „Hvera- fuglar“ er ekki fyrsta bókin hans því árið 1984 gaf hann út bókina „Þá mun vorið vaxa“. „Já, það er nú óhætt að segja að ég hafi alltaf ver- ið að yrkja. Ég byrjaði snemma að semja vísur og hef nú birt eitthvað í blöðunum. En það fór ekki mikið fyrir fyrri bókinni minni. Nokkrir kassar af henni lágu nokkuð lengi undir hjónarúminu.“ Það er ekki bara Ásgeir Trausti sem hefur leitað í skáldabrunn Einars því hálfbróðir hans, Þorsteinn Einars- son í Hjálmum, hefur líka nýtt sér ljóð föðurins. „Hann fann kassana þarna undir rúminu og notaði eitt- hvað af ljóðunum í sína plötu.“ Nú mætir Ásgeir Trausti, með kærustuna sem ætlar að bíða á meðan viðtalinu stendur. „Sæll Ásgeir minn, sástu nokkuð hana mömmu þína á vappi hérna?“ Einar Georg segir mér að ljóðabókin sé einmitt tileinkuð móður Ásgeirs, henni Pálínu. Mörg ljóðanna í bókinni voru hugsuð í aðra bók, „Vatnið í náttúru Íslands“, eftir Guðmund Pál Ólafsson náttúru- fræðing. „Hann var æskuvinur minn, við þekktumst frá því við vorum fimm ára. Hann hringdi í mig þegar hann var að vinna að bókinni um vatnið og bað mig um að yrkja nokkur ljóð fyrir þá bók. Ég var nokkurnveginn búinn að því þegar hann dó. En við höfðum líka talað um það að gefa út minni bók þar sem hálf síða væri ljósmynd og hinn helmingurinn væri ljóð. Svo ég átti nokkuð af þessum ljóðum til þegar hann féll frá. Ég hætti að yrkja í nokkurn tíma eftir það en tók svo upp þráðinn aftur og úr varð þessi bók.“ Vinna hratt og vel saman Í stað ljósmynda Guðmundar Páls prýða teikningar Ásgeirs Trausta bókina. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem feðgarnir vinna saman því á fyrstu plötu Ásgeirs Trausta, „Dýrð í dauðþögn“ sem skaut honum hratt upp á stjörnuhimininn, var faðir hans helsti textasmiður. „Við höfum unnið mikið saman síðast- liðin tvö ár svo ég er kannski að endurgjalda honum greiðann,“ segir Ásgeir. „Það er samt kannski ekki rétt að kalla það greiða því mig langar til að vinna meira með pabba. Það er bara svo gaman að vinna saman. Ég var á leið á fjög- urra vikna túr og hugmyndin var að vera búinn með myndirnar áður en ég færi og gera þær rosalega vel. Svo gafst aldrei tími þannig að ég endaði á að teikna þetta í rútunni á leið milli borga. Ég fylgdi bara nokkurn veginn því sem pabbi var búinn að lýsa fyrir mér.“ „Ég vildi bara að hann myndi ná svona sirka stemningunni,“ segir Einar Georg. Samstarfið gekk á svipaðan hátt fyrir sig þegar platan var unnin. Þá var það Ásgeir sem sendi föður sínum lög og bað hann um að fanga stemninguna með orðum. „Já, það voru alltaf lögin sem komu fyrst,“ segir Ásgeir. „Við tókum öll lögin upp í stúdíói og um leið og „demóið“ að hverju lagið var til þá sendi ég það á pabba. Við töluðum um lagið í einhvern smá tíma en svo vann hann þetta mjög fljótt. En músíkin segir auðvitað eitt- hvað um stemninguna. Það er bara mjög eðlilegt fyrir okkur að vinna saman.“ Gamli pabbinn En ætli það sé svo algengt, að feðgar geti unnið svona vel saman? „Nei, það er örugglega ekki svo eðlilegt fyrir alla,“ segir Ásgeir. „Ég var nú einmitt að ræða þetta við góðan vin minn hér í Reykja- vík,“ segir Einar Georg „ því ég var eitthvað að velta því fyrir mér hvort það væri kannski illa gert af mér að fá Ásgeir til að vinna með mér í bókinni. En hann benti mér á að þetta væri afskaplega gott for- dæmi, að sýna að feðgar gætu unn- ið saman. Ekki síst vegna þess að Ásgeir er lang yngsta barnið mitt og hefur því alltaf þurft að burðast með gamlan pabba. Ég gæti sko verið afi hans í árum og ég hugsa að það gæti verið raun fyrir marga. En okkur hefur alltaf komið voða- lega vel saman. Ég hef bara aldrei þurft að skamma hann.“ „Ég fékk líka alltaf að ráða hlut- unum frekar mikið sjálfur í upp- eldinu,“ segir Ásgeir. „Auðvitað var mér að einhverju leyti vísað í rétta átt, en það var einhver nátt- úrulegur rammi til staðar og innan hans fékk ég frekar mikið frelsi til að dafna sjálfur.“ Tónlistaruppeldið hófst í Hrísey Einar Georg spilar á píanó en segist nú ekki spila svo mikið. Pálína, móðir Ásgeirs, spili meira en hún hefur unnið sem organisti og kennt tónmennt. Hann tekur Framhald á næstu opnu Ég hugsaði tónlistar- námið alltaf sem eitt- hvað sem ætti eftir að hjálpa mér að þrosk- ast til að gera mína eigin tónlist. viðtal 23 Helgin 27.-29. júní 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.