Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 36
Helgin 27.-29. júní 2014
Gleymum
því ekki að
hvítlaukur-
inn kom
til Íslands
um svipað
leyti og
pönkið,
sem kom
til landsins
um svipað
leyti og
það var
búið ann-
arsstaðar.
En við
erum samt
töff, svona
miðað við
höfðatölu.
Dýnudagar
STARLUX OG MEDILINE
HEILSURÚM
Stærðir:
80 x 200 cm
90 x 200 cm
100 x 200 cm
120 x 200 cm
140 x 200 cm
160 x 200 cm
180 x 200 cm
Yfirdýnur
20%
afsláttur
Svampdýnur
20%
afsláttur
Starlux springdýnur
20%
afsláttur
Dýnur og púðar
sniðnir eftir máli eða
sniðum.
Með eða án áklæðis.
Mikið úrval áklæða
20% afsláttur
Eggjabakkadýnur
mýkja og verma rúmið,
þykktir 4-6 cm. Tilvaldar
í sumarhúsið, ferða-
bílinn og tjaldvagninn
30% afsláttur
Mikið úrval af svefn-
stólum og sófum í
stöðluðum stærðum
eða skv. máli
20-40% afsláttur
Dýnudagar
standa til lok júní.
V ið Íslendingar erum lítil þjóð. En við eigum alveg ótrúlega erfitt með að viðurkenna það. Við keppumst við
að mæra allt sem við gerum, allt frá því að
danskur knattspyrnumaður eigi íslenska
langömmu yfir í alla sigra Bjarkar Guð-
mundsdóttur. Alltaf skulum við tileinka
okkur þessa velgengni og þakka almættinu
fyrir það hvað við erum frábær, svona miðað
við höfðatölu.
Okkur finnst við líka töluvert betri en
flestar þjóðir, ekki bara í kringum okkur,
heldur um heim allan. Við gerum óspart grín
að því hvernig aðrar þjóðir haga sér, klæða
sig, tónlist þeirra og matargerð. En af hverju
erum við að þessu? Hvaða minnimáttarkennd
er þetta alltaf?
Við erum ung þjóð, eiginlega það ung að
við höfum ekki unnið okkur inn þann rétt að
gagnrýna alla aðra. Pabbi minn er eldri en
sjálfstæði okkar, hann fæddist í torfbæ en
hann talar samt ekki dönsku.
Þegar hið svokallaða góðæri gekk yfir
landið þá var það hópur Íslendinga sem
keypti rótgróin dönsk fyrirtæki eins og Ma-
gasin du Nord og þeir ætluðu sko aldeilis að
gera það flott og hipp og kúl eins og Íslend-
ingar kunna að gera. Magasin du Nord opn-
aði í Kaupmannahöfn árið 1870. Íslendingar
fengu samt ekki stjórnarskrá með takmark-
aðri heimastjórn frá Dönum fyrr en 4 árum
seinna, og verslun var ekki byrjuð af neinu
ráði hér á landi um þetta leyti. Dönum fannst
mikilvægara að efla verslun heima fyrir áður
en þeir nenntu að sinna þessum hræðum á
Íslandi. Í dag er Magasin du Nord aftur í eigu
Dana, við höndluðum ekki að reka verslun
á Strikinu. Samt finnst okkur Danir smá
hrokafullir.
Á vorin þegar þjóðin keppist við það að spá
okkur sigri í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva hefst alveg magnaður remb-
ingur sem á sér enga hliðstæðu. Við horfum
á kynningarþætti um lög annarra þjóða og
hlæjum dátt að þessum vitleysingum sem
halda að geti sungið betur en við. Sérstak-
lega þjóðum sem liggja austar í álfunni. Við
horfum með fyrirlitningu á framlag Pólverja
og tölum opinskátt um það hvað þeir eru
ótrúlega gamaldags og glataðir. Við erum
svo miklu meira kúl. Pólverjar reistu bygg-
ingar og kastala árið 1025 sem standa enn,
og eru óbreyttir. Þeir drukku úr kristal og
nutu fæðutegunda sem komu ekki til Íslands
fyrr en um 800 árum síðar. Ég veit ekki hvað
var að gerast á Íslandi árið 1025 en ég veit að
fyrsta húsið sem byggt var með steinsteypu
var á Akranesi í kringum 1880. Pólverjar eru
samt gamaldags.
Við eigum bestu kokka heims. Við eigum
kokk sem er með besta matsölustaðinn í
London og auðvitað förum við öll á þann stað
þegar við ferðumst þangað. Það er búið að
opna hamborgarabúlluna á nokkrum stöðum
í Evrópu og auðvitað förum við þangað líka.
Það vita það allir að það gerir enginn betri
hamborgara en við Íslendingar, eða hvað?
Við erum alveg ótrúlega vanþróuð þjóð þegar
kemur að mat. Fram að seinni heimsstyrjöld
þá var eiginlega bara borðaður ónýtur matur
á Íslandi. Það þurfti styrjöld til þess að við
fengum að smakka allskonar krydd, tyggjó
og súkkulaði. Í dag borðum við ónýtan mat
einu sinni á ári, en okkur finnst Kínverjar
skrýtnir af því að þeir borða skordýr, sem er
auðvitað fáránlegt. En ekki að borða kynfæri
af hrútum sem hafa legið í mysu í nokkra
mánuði, það er eðlilegt. Gleymum því ekki að
hvítlaukurinn kom til Íslands um svipað leyti
og pönkið, sem kom til landsins um svipað
leyti og það var búið annarsstaðar. En við
erum samt töff, svona miðað við höfðatölu.
Við erum stórþjóð í huganum. Við erum
best á smáþjóðaleikunum. Best í því að eyða
peningum, engin önnur þjóð í heiminum aug-
lýsir nýtt kortatímabil nema við. Við erum
handviss um það að allir sem fremja brot í
Reykjavík séu innflytjendur og treystum ekki
Tyrkjum vegna þess að það má ekki flytja
með sér grjót þaðan. Við erum sannfærð um
það að við eigum möguleika á gullverðlaun-
um í öllum keppnum sem við keppum í. Við
skiljum ekki af hverju Selma vann ekki Euro-
vision. Við þykjumst vera frjálsleg í fasi og
laus við hroka og fordóma. Við sendum meira
að segja leikskólakennara til Danmerkur til
þess að segja öllum það. Við eigum fyrsta
geimfarann. Fyrstu konuna sem varð forseti.
Fyrsta samkynhneigða forsætisráðherrann
og fyrsta Grafarvogsbúann sem keppir á
HM í knattspyrnu með Bandaríkjunum. Við
gleymum því samt oft að við erum jafn fjöl-
mennt samfélag og Coventry í Englandi.
Í Coventry er samt enginn hamborgara-
staður sem hringir bjöllu þegar nýr einstak-
lingur kemur í heiminn þar. Það er okkar
hugmynd!
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ingólfur
Arnars-
son finnur
Ísland
875
Hjaltlandseyjar
og Orkneyjar
fara undir
krúnu Haralds
hárfagra
Ísland er
að jafna sig
af svarta
dauða
1500
Endurreisnar-
tímabilið í fullum
blóma, madrigalar
sungnir í borgum
Mið-Evrópu
Heima-
stjórn á
Íslandi
1904
Fyrsti nýárs-
fögnuðurinn á
Times Square í
New York
Ísland verður
sjálfstætt ríki og
Sveinn Björnsson
kjörinn forseti.
1944
Þriðja útvarps-
stöðin opnar í
Makedóníu
Enn 3 ár
í það að
íslenskt sjón-
varp verði til
1963
Bítlarnir slá í gegn
Kringlan
opnar í
Reykjavík
1987
Magasin du Nord
hefur verið opið
í 111 ár í Kaup-
mannahöfn
Selma
lendir í
2. sæti í
Eurovision
1999
Svíar verða heims-
meistarar í hand-
bolta
Íslendingar
eru um 320
þúsund
manns
2013
Coventry er 22.
stærsta borg Eng-
lands, 325 þúsund
íbúar
Á
r
ið
Við erum stór,
miðað við
höfðatölu
Íslendingar eru frábærir, klárir og
skemmtilegir. Við höfum afrekað
ótrúlegustu hluti á heimsvísu. En samt
finnst okkur allir eitthvað svo glataðir.
Ís
l
a
n
d
ú
t
l
ö
n
d
36 úttekt