Fréttatíminn - 27.06.2014, Blaðsíða 60
Edda Erlends-
dóttir píanó-
leikari er
búsett í París
og starfar
sem prófessor
í píanóleik
við Tón-
listarskólann í
Versölum.
Sumartónleikar liStaSafn SigurjónS
Edda Erlendsdóttir hefur leikinn
Sumartónleikar Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar hefj-
ast í tuttugasta og sjötta sinn
þriðjudagskvöldið 1. júlí næst-
komandi. Á sínum tíma voru
þeir einu skipulögðu tónleika-
viðburðir sumarsins í Reykjavík,
en þótt margt hafi komið til
síðan sýna vinsældir og aðsókn,
jafnt flytjenda sem gesta, að
þeirra er þörf, segir í tilkynn-
ingu safnsins. Á þessum rúma
aldarfjórðungi hafa margir
helstu tónlistarmenn landsins
leikið eða sungið í safninu og oft
dregið með sér frábæra erlenda
kollega, segir enn fremur.
Fyrstu tónleika sumarsins
tileinkar Edda Erlendsdóttir
píanóleikari tónskáldinu Carl
Philipp Emanuel Bach, en í ár
eru liðin 300 ár frá fæðingu
hans. Edda leikur Rondó í e
moll, Sónötu í F dúr, Sónötu í
c moll og Fantasíu í C dúr eftir
hann. Einnig leikur hún Sónötu
nr. 47 í h moll og Ariettu með 12
tilbrigðum í Es dúr eftir Joseph
Haydn sem var mikill aðdáandi
C.P.E. Bachs. -jh
Á þessum rúma aldar-
fjórðungi hafa margir
helstu tónlistarmenn
landsins leikið eða
sungið í safninu og oft
dregið með sér frábæra
erlenda kollega.
menning ólíkir liStamenn túlka Samtímann í gegnum portrettið
Með kindarhaus í maganum
Yfir 70 íslenskir listamenn sýna samtíðarportrett á sumarsýningu Listasafns Akureyrar en um
300 verk eru á sýningunni. Portrettin eru ýmist málverk, ljósmyndir og teikningar, en einnig
styttur og myndbandsverk. Áhorfendur fá á sýningunni tækifæri til að skoða íslenska samtíð í
samspili portrettmyndanna sem draga fram eins konar mósaíkmynd af samtímanum.
H ugmyndina að þessari sýningu fékk Katrín Matthíasdóttir myndlist-
arkona sem hefur mikinn áhuga
á portrettum og gerði sjálf þrjú
portrett sem eru á sýningunni af
börnunum hennar,“ segir Guðrún
Pálína Guðmundsdóttir, fræðslu-
fulltrúi Listasafns Akureyrar,
um sumarsýningu safnsins sem
ber yfirskriftina „Íslensk sam-
tíðarportrett – mannlýsingar á
21. Öld.“ Þar gefur að líta hvernig
yfir 70 listamenn glíma við hug-
myndina um portrett, á þriðja
hundrað verk eru á sýningunni
og þar eru portrettin ýmist mál-
verk, ljósmyndir og teikningar,
en líka styttur, myndbandsverk
og meira að segja einn bíll. Guð-
rún bendir á portrett af mynd-
höggvaranum Hallsteini Sigurðs-
syni sem Gunnar Árnason gerði.
„Þetta portrett er af manninum
sem átti þennan bíl. Hann fór um
allt á bílnum og menn sáu hann
ekki fyrir sér nema á þessum
bláa bíl,“ segir hún.
Eftir að Katrín fékk hug-
myndina að sýningunni setti
hún sig í samband við Hannes
Sigurðsson, sem var forstöðu-
maður listasafnsins þar til í vor,
og sendi hann boð til útvalinna
listamanna um að senda sér ljós-
myndir af verkum en Guðrún
segir það síðan hafa verið í hönd-
um dómnefndar að velja hvaða
verk voru valin frá viðkomandi
listamanni.
Öll verkin á sýningunni eiga
það sameiginlegt að hafa verið
unnin á síðustu 14 árum, á 21.
öldinni. Meðal þeirra lista-
manna sem eiga á henni verk eru
Ragnar Kjartansson, Erró, Ólöf
Nordal, Halldór Baldursson og
Steinunn Þórarinsdóttir. Sumir
gerðu verk sérstaklega fyrir sýn-
inguna og mörg þeira hafa aldrei
verið sýnd áður.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir,
myndlistarkona sem meðal
annars hefur gert tréskúlptúra
af fólki og kindum sem prýða
flesta Icelandair-hótelin, var
með sjálfsmynd á sýningunni,
tréfígúru með stóran gegnsæjan
maga. „Það sem hér vekur for-
vitni og spennu er hvað er í
maganum,“ segir Guðrún og
bendir á portrettið. „Fyrst dettur
manni í hug fóstur en þegar
betur er að gáð sést að þetta er
kindahaus. Þá er hægt að velta
fyrir sér hvort þetta sé tákn um
sköpunina, en listakonan vinnur
mikið með kinda- og lamba-
skúlptúra.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Sjálfsmynd Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur með kindarhaus í maganum sem tákn fyrir sköpunina.
Verk Hallgríms Helgasonar. Hér
er Halldór Laxness umkringdur
karlkyns rithöfunum sem allir
eru í kvenmannsfötum. Þarna er
síðan ein kona, Guðrún frá Lundi.
Verk Gunnars Árnasonar
af myndhöggvaranum
Hallsteini Sigurðssyni
sem fór um allt á þessum
bláa jeppa.
Birgir Snæbjörns hefur mikið unnið
með ljóskuímyndina og hér má sjá
samansafn ljóskumynda allt frá
lokum sjötta áratugarins.
Portrett Katrínar Matthías-
dóttur af börnunum hennar
þremur.
60 menning Helgin 27.-29. júní 2014
ásamt Jazz at
Lincoln Center Orchestra
Tryggðu þér miða í síma 528 5050, á midi.is og harpa.is
Harpa í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur
www.harpa.is/marsalis
Eldborg
4. júlí kl. 20:00
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MIÐASALA: 412 7711 - WWW.BIOPARADIS.IS
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI Í SAL 1
FRÍTT INN
ANDRI OG EDDA
LAU OG SUN KL. 16:00
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Vönduð vinna
Stofnað 1952
Mikið úrval af
fylgihlutum
Steinsmiðjan Mosaik
Legsteinar