Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.06.2014, Qupperneq 66

Fréttatíminn - 27.06.2014, Qupperneq 66
 TónlisT Harmonikkubræður gefa úT plöTu með lögum nýdanskrar  TónlisT rokkbúðirnar sTelpur rokka! sTarfrækTar í þriðja sinn Hugrakkar og sjálfstæðar stelpur í rokksumarbúðum Harmonikkuleikarar njóta mikillar kvenhylli Bragi Fannar og Andri Snær Þorsteinssynir eru 22 ára tvíburar frá Hornafirði sem hafa spilað á harmonikku frá níu ára aldri. Þeir hafa heillað þjóðina með einlægri framkomu og skemmtilegu harmonikkuspili víða um land, og á dögunum kom út önnur plata þeirra bræðra. Platan nefnist 12 íslensk Nýdönsk lög sem er, eins og nafnið gefur til kynna, harmonikku útsetningar þeirra af vinsælum lögum hljómsveitarinnar Nýdönsk. V ið erum bara tvíburar sem aldir eru upp á Hornafirði, erum til sjós og spilum á nikkur,“ segir Bragi Fannar sem fer fyrir þeim bræðrum sem, þegar viðtalið á sér stað, eru að sigla út á miðin á bátnum Hvammey SE sem þeir báðir eru á. „Við erum með tvö pláss í sumar, en deilum einu plássi í vetur. Við erum nýbúnir að klára Stýrimannaskólann, þar sem við lærðum bæði til skipstjórnar og vélstjóra. Við höfum gert þetta í 6 sumur með námi, svo þetta er bara flott þegar við erum búnir með skól- ann.“ En hvenær kom harmonikkuá- huginn? „Þetta hófst bara þegar við vor- um mjög ungir, við hlustuðum mik- ið á harmonikkumúsík af plötum hjá ömmu og afa. Fengum okkar fyrstu nikkur og fórum að læra í tónlistarskólanum 9 ára gamlir og höfum verið spilandi síðan.“ Af hverju velja ungir drengir sér harmonikku frekar en gítar eða píanó? „Við heilluðumst bara strax og fundum báðir að okkur langaði að spila. Við fengum betri nikkur í fermingargjöf og svo keyptum við okkur nýjar um daginn svo við eigum 6 samtals.“ Það er óvenjulegt að tveir ungir menn spili saman á nikku, hvað þá tvíburar. Eru vinsældirnar farnar að láta taka til sín? „Það er búið að vera mjög mikið að gera hjá okkur. Við spilum í veislum allskonar, brúðkaupum og jarðarförum. Það er mikið um það að við komum fram sem gjöf. Afmælis-, brúðkaups- og tækifær- isgjafir. Það virðast allir hafa mjög gaman af þessu, og við höfum mjög gaman af þessu.“ Hvernig kom það til að gefa út plötu? „Við gáfum út plötu jólin 2012 sem heitir Nikkujól og í haust báðu meðlimir Nýdanskar okkur um að spila á tónleikum sem þeir voru með í Hörpu. Snemma á þessu ári höfðu þeir samband og spurðu hvort við værum ekki til í að gera plötu með þeirra lögum og þeir hjálpuðu okkur mikið við út- gáfuna.“ Nú þykir kannski ekki mörgum 22 ára ungmennum mjög töff að spila á harmonikku, hvernig taka jafnaldrarnir þessu? „Í fyrstu þótti flestum þetta fynd- ið en í dag, þegar við erum búnir að gefa út tvær plötur og spila úti um allar trissur, þá eru allir frekar stoltir af okkur. Við erum sjálfir stoltir af okkur að hafa gert þetta, svo það eru allir bara ánægðir með þetta.“ En hvernig er tónlistarbransinn hjá harmonikkuleikurum, heillast konur að nikkurum? „Við njótum góðs af því að það eru ekki margir ungir og sætir nikkarar á Íslandi“, segir Bragi og hlær. „Þetta er nýtt fyrir fólki og konurnar eru hrifnar af þessu, alveg sama á hvaða aldri þær eru. Stundum líður manni eins og rokk- stjörnu hreinlega. Eldra fólkinu finnst þetta þó aðeins skemmti- legra enda tengir það betur við þessa músík. Þegar við spilum á elliheimilum þá syngja allir með, sem er mjög skemmtilegt.“ Bræðurnir er greinilega mjög rólegir yfir þessu öllu saman. Bragi hefur verið í sambúð í 4 ár en Andri leikur lausum hala. En það breytist örugglega fljótt með auknum vinsældum þeirra bræðra. Hvað er svo framundan í músík- inni? „Við viljum bara spila sem mest, þegar við erum í landi. Það sem ber hæst í sumar er að sjálfsögðu humarhátíðin á Höfn. Þar er nú alltaf mikil gleði.“ Hvor ykkar er betri nikkari? „Við spilum eiginlega alltaf saman, svo það má eiginlega segja að við séum bestir saman. Við erum mjög ólíkir spilarar en við fullkomnum hvorn annan.“ Og með þeim orðum kveð ég þessa nikkandi sjóara þar sem þeir sigla á miðin í kvöldsólinni við Hornafjörð. Platan þeirra 12 íslensk Nýdönsk lög fæst í öllum betri hljómplötu- verslunum, og svo er hægt að panta hjá þeim sjálfum á Facebook síðu þeirra undir nafninu Harmon- ikkubræðurnir. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Bragi Fannar og Andri Snær Þorsteinssynir eru 22 ára tvíburar frá Hornafirði. Þeir bræður spila á harmonikku og gera það gott. Önnur plata þeirra er nýkomin út, 12 íslensk Nýdönsk lög. Hannes Friðbjarnarson hannes@ frettatiminn.is „Við erum búnar að vera með 40 stelpur hjá okkur í ár. Þær hafa myndað 8 hljómsveitir og verið alveg ótrúlega duglegar. Sumar eru vanar því að spila og aðrar koma bara algerlega óundirbúnar. Við reynum oftast að láta þær spila á hljóð- færi sem þær eru kannski ekki vanar að spila á. Þær eru allar mjög hugrakkar, sjálf- stæðar og klárar,“ segir Ás- laug Einarsdóttir rokkbúða- stýra. Stelpur rokka! er tón- listarverkefni sem hefur verið starfrækt undanfarnar tvær vikur í Tónlistarþróunarmið- stöðinni í Reykjavík. Þetta er þriðja skiptið sem stelpum á aldrinum 12-16 ára er boðið upp á rokksumarbúðir. Í rokk- sumarbúðunum fá stelpurnar leiðsögn við að spila á hljóð- færi, spila saman í hljómsveit, semja lög og koma fram á lokatónleikum rokkbúðanna fyrir framan fjölskyldu og vini. Í rokkbúðunum eru ásamt Áslaugu tveir starfsmenn og er þetta sjálfboðastarf. „Við erum alltaf að leita að fleiri konum í þetta og við hvetjum áhugasamar um að hafa bara samband við okkur.“ Lokatónleikar rokkbúð- anna verða í dag, föstudaginn 27. júní, klukkan 17 í Tón- listarþróunarmiðstöðinni að Hólmaslóð 2. Dagana 7.-11. júlí verða rokkbúðirnar svo á Akureyri og allar upplýsingar og skráningu má finna á www.stelpurrokka.org Um fjörutíu stelpur hafa verið í rokk- sumarbúðum undanfarnar tvær vikur. Jogvan Hansen, ásamt þeim Jóhanni Hjörleifssyni, Sigurði Flosasyni, Agnari Má Magnússyni og Gunnari Hrafnssyni, flytur mörg af bestu lögum Frank Sinatra í Salnum í Kópavogi í kvöld, föstudaginn 27. júní, klukkan 22. Jogvan hefur lengi dreymt um að flytja lög gullaldar swing-tímabilsins og lofar mikilli stemningu. Frank Sinatra er án efa einn af þekktustu söngvurum tónlistarsögunnar, fyrr og síðar. Lög eins og My way, Fly me to the Moon, New York New York og Moon River eru mörgum kunn og þau munu án efa heyrast á tónleikunum í Salnum. Miðaverð er 3000 krónur og eru miðar seldir við innganginn. Jogvan syngur Sinatra Þyngir ekki hárið og hefur þykkjandi áhrif með hjálp Collagen þykknis. Vatnsroð hveiti prótín hjálpar við að gera hárið þykkara og heilbrigðara. Frábært fyrir þunnt, fíngert og linnt hár. Ert þú búin að prófa ? Biotin & Collegen sjampó og næring Fjölskylduskemmt- unin Pottapopp verður haldin í annað sinn í gömlu sundhöllinni í Hafnarfirði á morgun, laugardaginn 28. júní. Tónlistin ómar frá klukkan 14 og stendur til 18. Þau sem koma fram eru Kjartan Arnald, Adda og Sunna, Sveinn Guðmunds- son, Fox Train Safari, Vítis- kvalir og Vio. Á milli tónlistaratriða mun Diskótekið Dísa stytta gestum stundir með skemmtilegri tónlist. Ef veður leyfir verða tónleikarnir haldnir úti á pottasvæðinu en annars verða þeir fluttir inn í sundlaugina. Ókeypis aðgangur og frítt popp fyrir börnin. Pottapopp í Hafnarfirði 66 dægurmál Helgin 24.-26. maí 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.