Fréttatíminn - 27.06.2014, Qupperneq 72
ferðalög Helgin 27.-29. júní 20144kynningarblað um ferðalög innanlands
Poppfræðing-
urinn Jónatan
Garðarsson
skrifaði hand-
rit safnsins
og Björn G.
Björnsson sá
um upp-
setningu
sýningarinnar.
Saga íslenskrar tónlistar í Rokksafninu
Í Rokksafninu í Hljómahöll er tón-
listarsögu Íslands gerð góð skil. Þar
má finna ýmsa muni tengda tónlist-
arsögunni, ljósmyndir og hljóðfæri
sem gestum er velkomið að spila á.
R okksafn Íslands er glænýtt safn um sögu popp- og rokk-tónlistar á Íslandi. Safnið er í
Hljómahöll í Reykjanesbæ, þar sem
saga tónlistar á Íslandi er sögð allt frá
árinu 1830 til dagsins í dag. Tómas
Young er framkvæmdastjóri safnsins
og segir hann það mjög viðamikið.
„Hérna er hægt að fræðast um ís-
lensku tónlistarsöguna á lifandi og
skemmtilegan hátt. Hægt er að fylgja
tímalínu íslenskrar tónlistar þar sem
hverju tímabili eru gerð góð skil,“
segir hann.
Safngestir spila á hljóðfæri
Á safninu er hljóðbúr þar sem gestir
geta sett á sig heyrnartól og leikið
lausum hala án þess að aðrir safn-
gestir heyri og prófað sig áfram á
rafmagnstrommusett, gítar, bassa og
hljómborð. Margir áhugaverðir mun-
ir úr tónlistarsögunni eru á safninu
og má þar nefna trommusett Gunnars
Jökuls sem hann notaði meðal annars
á plötunni Lifun með Trúbroti, raf-
magnsgítar Brynjars Leifssonar úr
Of Monsters and Men, LED-ljósabún-
ing Páls Óskars, tréskúlptúr af reggí-
hljómsveitinni Hjálmum og flugvéla-
búning úr myndbandi Sykurmolanna
við lagið Regínu. Á safninu eru
nokkrar sex metra háar ljósmyndir
af útvöldum tónlistarmönnum eins
og Björk, Sigur Rós, Hljómum og Of
Monsters and Men.
Frægðarveggur íslenskrar tón-
listar
Poppfræðingurinn Jónatan Garðars-
son skrifaði handritið að safninu og
sýningarstjórinn Björn G. Björnsson
setti það svo upp og sá meðal annars
um að safna því ógrynni mynda sem á
safninu er. Á safninu er frægðarveggur
íslenskrar tónlistar þar sem öllum heið-
ursverðlaunahöfum íslensku tónlistar-
verðlaunanna eru gerð sérstök skil. All-
ir gestir fá afhenta spjaldtölvu og geta
öðlast enn dýpri skilning á íslensku tón-
listarsögunni. Með aðstoð rokk-appsins
er hægt að lesa sér til um hvern og einn
tónlistarmann og njóta tónlistarinnar.
Margir þekktir tónlistarmenn koma frá
Reykjanesbæ og má á safninu finna sér-
stakt rokk-kort af bænum. „Gestir geta
þá séð hvar Rúnar Júl, Heiða í Unun og
Brynjar í Of Monsters and Men bjuggu.
Bíó, búð og kaffihús
Í Rokksafninu er glæsilegur bíó-
salur þar sem sýndar eru heimildar-
myndir um íslenska tónlist, eins og
Rokk í Reykjavík, Gargandi snilld,
Bítlabærinn Keflavík og Heima með
Sigur Rós. Salurinn kallast Félags-
bíó, í höfuðið á kvikmyndahúsi sem
lengi var starfrækt í Keflavík. Þá
er þar einnig lítil verslun þar sem
hægt er að kaupa bækur um íslenska
tónlist og geisladiska.
Opið er á Rokksafni Íslands alla
daga frá klukkan 12 til 17. Nánari
upplýsingar um safnið má nálgast á
vef þess: www.rokksafn.is
Á Rokk-
safninu er
trommusett
Gunnars
Jökuls af
plötunni
Lifun með
Trúbroti.
Unnið Í
samvinnU við
Rokksafn
Íslands
Hjólar um
hálendið
Kristín Einarsdóttir fer allra sinna ferða á hjóli
og starfar sem leiðsögumaður í hjólreiðaferðum
á sumrin. Hún segir það sérstaka upplifun að
hjóla um landið.
K ristín Einarsdóttir þjóðfræðingur fer allra sinna ferða á hjóli og nýtir því sumarið til hljólreiða, bæði hér á landi og erlendis. Í ágúst
stendur hún fyrir þriggja daga hjólaferð um hálendið
og er þegar kominn langur biðlisti hjólreiðamanna
sem vilja slást í hópinn. Því er aldrei að vita nema
ferðirnar verði fleiri næsta sumar. „Það er virkilega
skemmtilegt að hjóla yfir hálendið því upplifunin
er miklu sterkari en þegar setið er í bíl. Svo kemst
maður líka hraðar yfir en fótgangandi,“ segir hún.
Kristín er leiðsögumaður í reiðhjólaferðum á sumr-
in og kennir við Háskóla Íslands yfir vetrartímann.
Hún var fyrir nokkrum árum kennari í Smáraskóla í
Kópavogi og kjarninn í hópnum sem hjólar með henni
yfir hálendið í sumar er einmitt fyrrum nemendur
hennar úr Smáraskóla en meðan hún kenndi þar sá
hún um útivistarverkefni nemenda og einn hluti þess
var hjólaferð níunda bekkjar. „Þau er nokkur sem
fóru í slíka ferð með mér fyrir rúmlega áratug og vilja
fara upplifa fjöllin á hjólum á ný.“
Ferðinni er heitið um Fjallabak nyrðra og fer hópur-
inn með rútu að Landmannahelli. Þaðan hjóla þau
saman tuttugu kílómetra í Landmannalaugar og gista
þar. Þá eru hjólaðir fjörutíu kílómetrar í Hólaskjól þar
sem gist er seinni nóttina. Þaðan verða hjólaðir fjöru-
tíu kílómetrar í Eldgjá. Hópurinn gistir í tvær nætur
í skálum í ferðinni og segir Kristín góða stemningu
alltaf myndast við slíkar aðstæður. „Þar hittist fólk
alls staðar að úr heiminum sem búið er að puða allan
daginn á hálendinu.“ Að morgni dags smyrja hjól-
reiðamenn sér svo nesti fyrir daginn og taka með sér.
Á leiðinni er hjólað yfir margar ár og segir Kristín
mikilvægt að vera vel búinn og í góðum sokkum. „Það tekur
því ekki að skipta um sokka eftir hverja á svo við erum í sömu
sokkunum allan daginn og því mikilvægt að þeir haldi fótunum
heitum þó þeir séu blautir.“
Kristín hefur starfað sem fararstjóri í hjólreiðaferðum erlendis
frá árinu 2001 og segir hún dagskrána í þeim ferðum aðeins
notalegri en í ferðum um hálendi Íslands. Hópurinn hjólar rólega
saman og er meðalaldur þátttakenda um 55 ár. „Farangurinn
er fluttur á milli hótela fyrir fólk og svo gistum við á góðum hót-
elum. Það er dásamlegt að hjóla um sveitirnar á Ítalíu. Þar er hjól-
reiðafólki sýnd svo mikil virðing.“ Í ágúst fer Kristín svo til Aust-
urríkis og hjólar með hóp frá Passau til Vínar. Sjálf fer hún allra
sinna ferða á hjóli allt árið um kring og fagnar lagningu nýrra
hjólreiðastíga á höfuðborgarsvæðinu. „Skemmtilegast finnst mér
að hjóla í hvítum snjó. Aðalatriðið er að klæða sig vel og vera á
vel útbúnu hjóli og þá er ekkert mál að hjóla,“ segir Kristín sem
hvetur hjólreiðafólk til að flýta sér hægt og njóta þess að hjóla.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Kristín Einarsdóttir fer allra sinna ferða á hjóli og stendur fyrir hjólreiðaferð um hálendið í sumar. Hér er hún á ferðalagi í útlöndum en hún hefur jafn-
framt hjólað mikið utan landsteinanna. Í ágúst fer hún til að mynda í hjólaferð til Austurríkis.