Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.06.2014, Síða 74

Fréttatíminn - 27.06.2014, Síða 74
ferðalög Helgin 27.-29. júní 20146kynningarblað um ferðalög innanlands L andmannalaugar eru án efa ein af helstu náttúruperlum lands- ins. Náttúrufegurðinni er vart hægt að lýsa í orðum. Alla regnbogans liti er að finna í fjallahringnum umhverfis svæðið. Guli liturinn í líparítinu er þó ríkjandi og magnar hann upp sólargeislana á góðviðrisdögum og gefur svæðinu vinalegt yfirbragð. Það er vegna jarðhitaummyndana sem þessi litadýrð er til staðar, en Torfajökulssvæðið er eitt mesta há- hitasvæði landsins og því er þar að finna kraumandi hveri og laugar. Svæðið er virk megineldstöð, lípar- ítkvikan er bæði seig og köld en við snögga kólnun myndar kvikan svart gljándi gler, þ.e. hrafntinnu. Lípar- ít er oftast grátt, gult, bleikt eða grænt á lit. Þrátt fyrir að vaxtartími plantna sé ekki nema um tveir mánuðir á ári hafa fundist um 150 tegundir af plöntum á svæðinu, s.s. klófífa, grasvíðir, mýrastör og eyrarrós. Gestum sem koma á svæðið gefst kostur á að baða sig í heitri nátt- úrulaug sem er rétt við skálasvæð- ið. Þar er dásamlegt að slappa af og njóta dýrðarinnar. Landmannalaugar eru upphafs- staður Laugavegarins, vinsælustu gönguleiðar landsins sem um 6000 manns ganga á hverju ári. Lauga- vegur hefur nú verið tilnefndur sem ein af 10 bestu gönguleiðum í heimi af National Geographic. „Það var mjög ánægjulegt og viðurkenning á áratuga langri uppbyggingu Ferða- félagsins á gönguleiðinni. Þá voru bæði gönguleiðin sjálf og skála- svæðin tekin út sérstaklega áður en gönguleiðin fékk þessa viðurkenn- ingu. Eins hafa Landmannalaugar komið vel út úr öllum könnunum sem gerðar hafa verið á svæðinu og m.a. 2012 komu Landmannalaugar best út allra ferðamannastaða á landinu hvað varðar heildarupp- lifun ferðamanna í könnun Ferða- málastofu,“ segir Páll Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Uppbygging og þjónusta Árlega kemur fjöldi ferðamanna til þess að njóta þessarar einstöku nátt- úrufegurðar. Páll segir að það sé mikilvægt að ráðast í rannsóknir á gróðurfari og náttúru til að hægt sé að meta þolmörk fyrir svæðið. „Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið hafa snúist um þjónustu og aðstæð- ur og eru að mörgu leyti of takmark- aðar. Öll umræða um þolmörk hefur því verið huglægt mat. Þá hefur um- ræða um svæðið einnig verið einhæf og vitlaus. Til að mynda eru tölur Landmannalaugar vinsælasti ferðamannastaður á hálendi Íslands Náttúrufegurð í Landmannalaugum, Torfajökulssvæðinu og Fjallabaki er einstök. Með fjölgun ferðamanna á svæðið þarf að gera meira af því að stýra umferðinni inn á fleiri svæði. um 120.000 ferðamenn á svæðinu yfir sumartímann rangar og byggð- ar á röngum meðaltalsstuðlum. Hið rétta er að um 70-80.000 ferðamenn sækja Landmannalaugar heim yfir sumartímann og 80 prósent þeirra er dagsdvalargestir sem stoppa í 3-5 klukkustundir.“ Það var árið 1951 sem fyrsti skál- inn á svæðinu var byggður, áður en vegur var lagður um svæðið. Það var því ekki á allra færi að fara í Landmannalaugar. Eftir að vegur- inn var lagður lét Ferðafélagið gera varnargarð við Jökulgilskvísl til að verja svæðið fyrir ágangi árinnar. Það er ein af forsendum þess að uppbygging geti átt sér stað því annars er hætta á að áin hefði flætt yfir svæðið. Nú er þar að finna skálahús á tveimur hæðum sem rúmar 78 manns í rúmum. Uppi eru þrjú svefnloft og lítið kvistherbergi, niðri er stór svefnskáli, eldhús, for- stofa og móttaka fyrir ferðamenn. Auk gistiskála er stórt hreinlætis- hús með sturtum og vatnssalern- um. Nú stendur yfir vinna sveitarfé- laga um skipulag Landmannalauga. „Það er mjög ánægjulegt að sú vinna sé farin af stað og eftir því hefur verið beðið lengi. Við höfum verið nokkrum árum á eftir okkur sem þjóð í skipulagsmálum og ýmsum málum er varða ferðaþjón- ustuna en vonandi verða stjórnvöld búin að klára þá vinnu sem allra fyrst,“ segir Páll. Ferðamynstur einstaklinga hefur breyst mikið síðustu ár. Ferðamenn gera auknar kröfur um þjónustu og aðgengi að áfangastöðum hefur batnað. Vegakerfið er betra og bíla- kostur landans er betri. Allt þetta gerir það að verkum að fleiri eru farnir að ferðast og ekki einvörð- ungu að sumarlagi heldur allan árs- ins hring. Yfir sumartímann ganga áætlunarleiðir daglega á svæðið og því geta allir sem vilja heimsótt það. Langstærstur hluti ferðamanna sem heimsækir Landmannalaugar stoppar þar við í aðeins 4-5 klukku- stundir. Þolmörk og manngert umhverfi Markmið Ferðafélags Íslands er að hvetja til ferðalaga um Ísland og greiða fyrir þeim. Fjöldi ferða- manna hér á landi hefur aukist mikið síðustu ár og að sama skapi inni á hálendinu. Íslendingar hafa einnig sótt í sig veðrið og má greina mikinn áhuga í þjóðfélaginu á útivist og ferðalögum. Sífellt fleiri halda til fjalla til að njóta útivistar og náttúrunnar. Ferðafélagið vill efla þjónustu við þessa ferðamenn og byggja upp betri aðstöðu. Náttúruvernd Ferðafélag Íslands og Umhverfis- stofnun hafa verið í samstarfi um árabil. Sjálfboðaliðar hafa komið hingað til lands erlendis frá og unn- ið að stikun og viðhaldi göngustíga, m.a. á Laugaveginum og á svæðinu í kringum Landmannalaugar. Þetta er mjög brýnt og þarft verkefni því mikilvægt er að viðhalda þeim stíg- um sem fyrir eru og stýra göngu- fólki inn á rétta leið, það lágmarkar ágang á náttúruna og eykur öryggi ferðamanna. Umhverfisstofnun hefur form- lega umsjón með svæðinu og ræður landverði til starfa. Starf landvarða er bæði margþætt og mikilvægt, þeir sjá meðal annars um að ferða- menn fylgi eftir reglum friðlandsins og vinna að annari náttúruvernd. Þörf er á að fá fleiri landverði til starfa á komandi árum til að anna öllum þeim verkefnum sem liggja fyrir. Miklu máli skiptir að þeir sem kjósa að njóta útivistar umgangist náttúruna af virðingu. Mikilvægt er að skilja ekki eftir rusl á víðavangi heldur taka allar umbúðir, klósett- pappír og annað til byggða. Einnig er mikilvægt að fylgja merktum stígum og traðka ekki á viðkvæm- um gróðri. „Ísland er einstakt land, í raun og veru ævintýraeyja fyrir ferðamenn og þá sem unna náttúru og útiveru. Við þurfum að vanda okkur alveg sérstaklega þegar við ferðumst um og njótum náttúrunn- ar og ekki síður þegar við tökum á móti ferðamönnum, þannig að við göngum ekki á auðlindina og getum um leið viðhaldið eftir- spurninni,“ segir Páll Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Unnið í samstarfi við FerðaFélag Íslands Hattur í Hattveri. Á viðkvæmum svæðum þarf að stýra umferðinni og tryggja að ferðamenn haldi sig á stígum. Laugavegurinn, vinsælasta gönguleið landsins. Um 6000 göngu- menn ganga leiðina á hverju sumri. Ferðafélag Íslands, með stuðn- ingi Valitor, hefur sett upp 10 skilti á leiðinni sem sýna gönguleiðina og upplýsingar um öryggisatriði. Glaðvær hópur á góðum degi í Landmannalaugum að leggja af stað á Laugaveginn.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.