Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.06.2014, Síða 79

Fréttatíminn - 27.06.2014, Síða 79
FLJÚGÐU Á FESTIVAL MEÐ FLUGFÉLAGI ÍSLANDS BRÆÐSLAN (26. - 28. júlí) Flugfélag Íslands mælir með því að falla í stafi á Bræðslunni á Borgarfirði eystri. Gamla síldar­ bræðslan hefur öðlast nýtt líf og bræðir núna hjörtu tónleikagesta með heitum tilfinningum og tónlist. Dulúð landslagsins magnar áhrifin í ómfagurt sumarævintýri. Bókaðu flugið ­ Bræðslan er sko ekkert slor. EIN MEÐ ÖLLU (1. - 4. ágúst) Flugfélag Íslands mælir með einni með öllu, rauðkáli og kók í bauk. Höfuðstaður Norðurlands stendur undir nafni með litríkri skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Hátíðin byrjar á útitónleikum sem hrinda af stað bylg ju viðstöðulausrar kátínu sem springur svo út í risaflugeldasýningu yfir Pollinum. Bókaðu flugið strax. VINGUMST: facebook.com/flugfelag.islandsFLUGFELAG.IS ÞJÓÐHÁTÍÐ Í EYJUM (1. - 4. ágúst) Flugfélag Íslands mælir með því að taka flugið á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina. Þar sameinast gleðipinnar allra landa við söng og dans. Fyrir marga er þetta hápunktur sumarsins en ekkert jafnast þó á við að sjá brennuna á Fjósakletti speglast í augum sem þú elskar. Bókaðu strax flug fyrir augun þín til Eyja. MÝRARBOLTI (1. - 4. ágúst) Flugfélag Íslands mælir með því að drulla sér vestur um verslunarmannahelgina og sóða sig almennilega út. Safnaðu liði og njóttu þess að sjá vini þína veltast í forinni. Hjá mörgum er það hápunktur sumarsins að fá að atast með blauta tuðru í leðjunni og skemmta sér með fjörlegasta liði landsins. Sturtan að leik loknum er líka mögnuð andleg upplifun. BÓKAÐU TÍMANL EGA Á FLUGFE LAG.IS EISTNAFLUG (10. - 12. júlí) Flugfélag Íslands mælir með því að losa um bindið, ganga snyrtilega frá jakkafötum eða dragtinni. Grafðu svo upp leðurjakkann, galla­ buxurnar og jarðýtubeltið og reyndu að dratt­ halast á Eistnaflug í Neskaupstað. Flugið til Egilsstaða tekur enga stund og svo tekurðu rútuna á svæðið eins og almennileg rokkskepna. Bókaðu á netinu. NEISTAFLUG (1. - 4. ágúst) Flugfélag Íslands mælir með Neskaupsstað fyrir fjörkálfa á öllum aldri um verslunarmannahelgina. Dansiböll á hverju kvöldi og látlaus skemmti­ dagskrá yfir daginn. Hér koma allar kynslóðir saman og hlátrasköllin óma í logninu. Grill, drullubolti, varðeldur, leikhópar, töfrabrögð og dúndurtónlist. Fljúgðu í fjörið. LUNGA (13. - 20. júlí) Flugfélag Íslands mælir með því að taka flugið í átt að háleitari markmiðum. Listahátíðin LungA er uppspretta sköpunargleðinnar í stórbrotinni náttúru Seyðisfjarðar. Þetta er hátíð sem færir þér sjálfsþekkingu, ást, vináttu og góðar minningar. Ef það freistar þín þá skaltu endilega bóka flugið sem allra fyrst á netinu.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.