Þjóðlíf - 01.01.1988, Blaðsíða 22
LISTI R
• Harpa Björnsdóttir
• Ingólfur Arnarsson
MyndHstasýningar
Á döfinni
í nýja útvarpshúsinu við Efsta-
leiti er verið að sýna 33 myndverk
Guðrúnar Kristjánsdóttur. Hún er 37
ára reykvískur listamaður, hefur m.a.
stundað nám í Axarfurðu í Frakklandi
og sýnt á Kjarvalsstöðum og á ísafirði
auk þess sem hún hefur tekið í sam-
sýningum. Myndlistasýningin er sölu-
sýning og mun standa fram á vor.
Þetta er önnur sýningin í nýja útvarps-
húsinu, Haukur Dór reið á vaðið sl
sumar og stóð sýning hans fram í
nóvember. Opnunartími er alla daga
frá 9 til 18 og geta íslendingar notað
tækifærið og skoðað þjóðareignina,
útvarpshúsið, í leiðinni.
Ásmundarsalur. Þar stendur yfir
sýning átta nýútskrifaðra arkitekta og
lýkurhenni 17.janúar.
Hafnargallarerí. Þann 12. janúar
lauk þar sýningu á skúlptúrum og
teikningum Kistínar Reynisdóttur.
Kjarvalsstaðir. í vestursal opnaði
Baltasar sýningu 9. janúar, en þann
dag varð listamaðurinn fimmtugur og
aldarfjórðungur var liðin frá því hann
sté á land áFróni. Blatarsar hefur kom-
ið víða við í listköpun sinn, hannað
leiktjöld, skreytt bækur og byggingar
auk þess að vera afkastamikill list-
málari. Sýningu hans lýkur 24,janúar.
Sjálfsmyndaýning ýmissa ís-
lenskra listamanna frá upphafi mál-
verks til vorra daga tekur við í Vestur-
salnum um mánaðamótin og lýkur
henni 14.febrúar. í austursal Kjarval-
staða verðu sýning á íslenskum hús-
gögnum frá 26.janúar til 15. febrúar.
Listasafn ASÍ. Þann 16. janúar opn-
ar sýning á verkum safnsins.
Norræna húsið. 24,janúar lýkur sýn-
ingu dönsku textílkvennanna Metta
Zacho, Annette öru og Anette Graae.
Tumi Magnússon tekur svo við í kjall-
aranum 30.janúar.
Gallerí Borg. Engin sýning í janúar
en 4. febrúar opnar Harpa Bjömsdóttir
sýningu sína.
Gallerí Svart á hvítu. Guðmundur
Thorddsen opnaði sýningu 9 janúar
sem stendur til 17. janúar.
Nýlistasafnið. Þar byrjar sýning
Ingólfs Arnarsonar 29.janúar.
22