Þjóðlíf - 01.01.1988, Blaðsíða 29
• Frá höfuðstöðvum EB. starfsmenn eru 25000, pappírsflóðið er gífurlegt og gefið út á níu tungumálum.
NORÐURLÖND OG EVRÓPUBANDALAGIÐ:
Astarsamband í Evrópu
Nýtt tímabil í Evrópupólitíkinni ad hefjast. Norrænu ríkin
hreiöra um sig viö „uppsprettuna “ í Brussel.
- Eftir Einar Karl Haraldsson, ritstjóra samnorræna tímaritsins
Nordisk Kontakt
I nóvember á síðasta ári opnaði Evrópu-
bandalagið upplýsingaskrifstofu í Osló.
Fyrsti sendiherra EB í Osló, Walesbúinn
Aneurin Ryhs Huges sem hefur komið
sér fyrir ásamt sjö starfsmönnum við
götu Hákonar sjöunda, steinsnar frá
norska utanríkisráðuneytinu, getur verið
ánægður með viðtökurnar í Osló. Nýtt
tímabil er hafið í samskiptum Noregs og
EB - tímabil sem flestir álíta að Ijúki með
inngöngu Norðmanna í bandalagið ein-
hverntíma á næsta áratug.
Enn einu sinni neyðast norrænu ríkin til
þess að laga sig að breyttum aðstæðum
á meginlandi Evrópu. Tilraunir þeirra til
þess að mæta slíkum breytingum með
norrænu samstarfi hafa hingað til mistekist.
Eftir síðari heimsstyrjöld var norrænt
vamarbandalag sem mótvægi við skiptingu
Evrópuríkja milli NATO og Varsjárbanda-
lagsins á dagskrá, en niðurstaðan varð sú að
þrjú norrænu ríkjanna gengu í NATO.
Norrænt tollabandalag, eða efnahagsbanda-
lag var einnig sett á dagskrá þegar Efnahags-
bandalag Evrópu tók að skjóta rótum.
VANDAMÁL EB er að langstærstum
hluta gífurlegur halli á fjárlögum Banda-
lagsins sem stafar fyrst og fremst af
miklum framlögum til landbúnaðar sem
var um 60% af öllum útgjöldum á síðasta
ári. Helsta tekjulind EB er 1.4% hlut-
deild í virðisaukaskatti aðildarríkjanna
og vom heildartekjur á síðasta ári um 35
miljarðar Evrópuskildinga (ECU) en út-
gjöídin 41 miljarður. Á næsta ári er
áætlað að fjárlagahallinn verði sem svarar
til 260 miljarða íslenskra króna. Skv.
sameiginlegri landbúnaðarstefnu EB-
ríkjanna er bændum tryggðar lágmarks-
tekjur og þeir jafnframt vemdaðir fyrir
samkeppni frá löndum utan bandalags-
ins. Afleiðingin hefur m.a. verið offram-
Ieiðsla og fer óhemju stór hluti tekna EB
til niðurgreiðslna og birgðasöfnunar. Á
leiðtogafundinum í Kaupmannahöfn í
síðasta mánuði tókst ekki að ná sam-
komulagi um aðgerðir vegna þessara
vandamála sem talið er miklu skipta um
framtíð EB og hvort af frekari samruna
EB-ríkjanna verður á næstu árum eins og
stefnt hefur verið að.
29