Þjóðlíf - 01.01.1988, Qupperneq 35

Þjóðlíf - 01.01.1988, Qupperneq 35
starfar og nefnd háttsettra embættismanna frá báðum aðilunum sem heldur fundi reglu- lega. Loks hefur það tíðkast að Willy De Clercq, sem fer með utanríkismál innan framkvæmdastjórnar EB mætir á ráðherra- fund EFTA á vorin. Þess háttar fundur var t.d. á íslandi í fyrra vor.“ -Hvaða þýðingu hefur innri markaðurinn ? „Fullkomlega frjáls innri markaður mun þýða það að það verða engar hindranir á milli aðildarríkja EB á viðskiptum með vör- ur, á peningastreymi og flutningum fólks. Evrópa innan bandalagsins verður án landa- mæra eins og við þekkjum þau. Hugsanlega kemur þetta til með að ná að einhverju leyti til EFTA-landanna.“ FYRSTA OG ANNARS FLOKKSLÖND -Hvað er það helst sem breytist? „Nú eru tollar og bein höft sú viðskipta- hindrun sem fyrst blasir við og við höfum að sjálfsögðu samningsbundinn rétt um að slíkt sé ekki í vegi okkar útflutnings að því marki sem fríverslunarsamningurinn frá 1972 kveður á um. Að tollum og viðskiptahöftum slepptum eru ýmiss konar tæknilegar við- skiptatálmanir sem koma í veg fyrir að fram- leiðsluvörur eins lands séu seldar á markaði annars. Þessar reglur geta verið tæknilegs eðlis, af heilbrigðisástæðum eða einhverjum öðrum orsökum. Allar þessar reglur verða samræmdar og verða því eins fyrir bandalag- ið allt. Ég held að það séu allir sammála um að hér sé um gífurlega þýðingarmikið mál að ræða og mikið sé undir því komið að fram- kvæmd þess takist.“ -Er nokkur ástœða til að hafa af þessu áhyggjur? Komum við ekki til með að hafa greiðan aðgang að þessum markaði? „Það er mikill munur á því hvað fríðindi varðar að vera aðildam'ki eða standa utan við EB og þannig verður það í framtíðinni. Vafalítið verður slétt úr ýmsum hnökrum hvað viðskiptalífið snertir í gegnum EFTA á þessum markaði en leikurinn verður þó aldrei jafn á milli þeirra sem eru aðilar og hinna sem eru það ekki. Það er mjög at- hyglisvert fyrir okkur íslendinga að líta á þróunina innan þeirra ríkja bandalagsins sem standa utan við miðjuna ef svo má segja. Ég hef t.d. hvorki hitt íra né Skota sem getur hugsað sér að vera utan bandalagsins. Það er fólki greinilega fullkomlega framandi hugs- un. Ég held að það verði að líta svo á að í framtíðinni muni Evrópuþjóðirnar skiptast í fyrsta og annan flokk. Þá sem eru meðlimir í ÉB og þá sem eru utan við. Að hve miklu leyti er hægt að halda sínu og standa utan við verður framtíðin að leiða í ljós.“ -Munu EB-ríkin sætta sig við að EFTA fleyti rjómann ofan af og leggi ekkert að mörkum? „Ég á ekki von á því að það verði dregið úr þeim fríðindum sem við njótum þegar, en EVROPUBANDALAGIÐ hvort allt það sem til fellur í framtíðinni verður aðgengilegt fyrir okkur að sama skapi og aðildarríki bandalagsins, er annað mál. Það er rétt að margir innan EB líta þannig á að EFTA vilji njóta fríðinda og réttinda en ekki taka á sig skyldur eins og aðildarríkin. Það er í rauninni ekki hægt að hugsa sér að lönd sem ekki eru aðilar geri það. Innan EB er mikið efnahagslegt misvægi á milli ríkja í Suður- og Norður-Evrópu. Sérstaklega standa nýju aðildarríkin, Spánn og Portúgal, ásamt Grikklandi höllum fæti. Sú krafa getur alltaf komið upp að EFTA-ríkin, sem eru jú rík lönd, taki einhvern þátt í fjárhagslegum stuðningi við fátækari löndin í Suður- Evrópu. Nú þegar er starfandi á vegum EFTA iðnþróunarsjóður fyrir Portúgal sem íslendingar eru aðilar að..“ -Hafa viðhorf stjórnmálamanna innan EFTA breyst gagnvart aðild að EB? „Ég var nýlega á ferð í Strassborg með utanríkismálanefnd Alþingis og það kom fram hjá þingmönnum á Evrópuþinginu að þeir yrðu mjög varir við aukinn áhuga meðal þingmanna EFTA-landanna á sterkari tengslum við EB. Þingmenn annarra EFTA- landa s.s. Austurríkis og Sviss hafa tjáð sig mjög ákveðið um að það muni ekki tjóa í framtíðinni að þeirra lönd gerist ekki aðilar að EB.“ -Er ekki náið samstarf án aðildar að EB hugsanlegt t.d. á sviði vísinda og mennta? „Þessi mál eru að sjálfsögðu til umræðu og samráðs á milli EFTA og EB. En þetta eru þó fyrst og fremst mál sem sérhvert EFTA- landanna rekur gagnvart bandalaginu innan rammasamnings sem flest þeirra hafa þegar gert við EB. Við íslendingar stöndum einmitt um þessar mundir í samningum af þessu tagi sem ættu að gera okkur kleift að taka þátt í ýmsum verkefnum s.s. Erasmus- áætluninni.“ ÍSLANDOG EVRÓPU- ÞRÓUNIN -Hvernig erum við í stakk búnir til að fylgjast með þessariþróun í Evrópu? „Mér er að vísu ekki órótt innanbrjósts út af þróun þessara mála en hvað okkur íslend- inga snertir þá veldur það mér stundum áhyggjum að við erum ekki í nógu nánum og sterkum tengslum við þessa Evrópuþróun. Höfum kannski ekki beint kröftum okkar nægilega að þátttöku í henni. Marghliða al- þjóðastafsemi er náttúrlega ekki miðuð við þarfir smáríkja heldur hinna stærri sem hafa möguleika á að líta í öll hom. Það getum við íslendingar ekki. Við erum nú þegar með fangið fullt. Auk fríverslunarsamninganna tökum við þátt í samstarfi Norðurlandanna, margvíslegra stofnanna á vegum Sameinuðu þjóðanna og jafnframt á vettvangi Evrópu. Ég tel að það hljóti að blasa við hjá okkur að velja og hafna. Einbeita okkur að því sem við teljum gagnlegast að undangenginni ítalegri athugun." -Telur þú sennilegt að Bandaríki Evrópu eigi eftir að verða að raunveruleika á nœstu áratugum? „Ég er nú frekar vantrúaður á að Banda- ríki Evrópu í þeim skilningi sem Bandaríki Norður-Ameríku eru verði til á næstu tíu eða tuttugu árum. Mér sýnist þróunin hafa stefnt í þá átt að þjóðríkin hafi tekið til sín meira en sameiginlegar stofnanir minna. Ég sé ekki uppi nein sterk pólitísk öfl sem eru líkleg til að breyta þessu í náinni framtíð. Það er hugsanlegt að Evrópuríkin telji aukna þörf á pólitísku samstarfi til að láta vamar- mál meira til sín taka - þær raddir hafa heyrst. Við megum ekki gleyma því að það gengur mjög hægt og bítandi að fá þjóðlönd- in til að taka sameiginlegar ákvarðanir. Einn framkvæmdastjóri EB líkti því við fíl sem lægi út af í hvíld en þegar hann stæði upp og legði af stað þá yrði hann ekki stöðvaður. Þetta er þá spuming um það hversu mikið þessi fíll vill hvíla sig og hversu langt hann fer eftir hvíldirnar. Ég held þó að fólki blandist ekki hugur um að Evrópusamstarfið á grundvelli EB muni auðgast mjög vemlega en tel naumast að ég eigi eftir að sjá það að þjóðþing og ríkisstjómir afsali sér sínum völdum algerlega.“ HVERGI BARIST GEGN AÐILD -Er ekki hætt við að stóru ríkin gleypi þau smáu ísamstarfi afþessu tagi? „Ég tel að minni löndin þ.e. Benelux-lönd in, líti svo á að þau hafi aukið völd sín og áhrif með aðild sinni og hafi tryggt sjálfstæði sitt og sjálfsforræði. Þetta kemur oft fram hjá okkar ágætu vinum í Lúxemborg. Þeir telja það hina mestu firru að ætla að lítið land glati sjálfstæði sínu í shku samstarfi. Minni löndin segja sem svo: „Við höfum hér ágætt tæki- færi og reyndar einstakt, til að sitja við sama borð og deila geði við stærri löndin í Evrópu. Áður var ekki hlustað á okkur, hvorki við undirbúning né afgreiðslu ákvarðana.“ Ég verð að segja að ég hef ekki séð að nýrri aðildarþjóðimar s.s. Grikkir, líti beint á mál- in á þennan hátt. Hugsanlega vegna þeirrar þróunar að stjómir aðildarríkjanna hafa aukið svigrúm til að reka sérhagsmunamál sín. Þetta eilífa samningaþref í bandalaginu hefur held ég dregið mikinn mátt úr Evrópu- hugsjóninni. Ég kem þá aftur að því sem ég sagði að ef stórmenni eins og þau sem ég nefndi í upphafi, rísa upp á stjómmálasvið- inu og vilja sinna evrópskri sameiningu, þá verður hún. En það er tímanna tákn að það er hvergi í stjórnmálum innan EB barist gegn aðild. En þrátt fyrir að hvergi finnist alvarleg andstaða gagnvart aðild að EB innan landa bandalagsins, er hins vegar hvergi barist fyr- ir nánara pólitísku samstarfi.“ • Kristófer Már Kristinsson / Brussel 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.