Þjóðlíf - 01.01.1988, Page 38

Þjóðlíf - 01.01.1988, Page 38
Dr. Helgi Pjeturss var hugmyndafræðing- ur og kenningasmiður á þessum vett- vangi. Hann dó 1949 og var Félag Nýals- sinna, sem byggði á kenningum hans stofnað upp úr því. Sumir telja að Helgi hafi sjálfur verið mjög andvígur því að eitthvert félag yrði til um kenningar hans. En Félag Nýals- sinna varð engu að síður öflugur félagsskap- ur um hríð. Hins vegar urðu átök í félaginu og það klofnaði fyrir nokkrum árum í tvennt; annars vegar hélt Félag Nýalssinna áfram að starfa undir forystu Þorsteins Guð- jónssonar og hins vegar var stofnað nýtt félag -Félag áhugamanna um stjömulíffræði, sem Helgi Guðlaugsson leiðir. Hreyfing Nýals- sinna á tvö hús að Njálsgötu 40 og Álfhóls- vegi 121 í Kópavogi. Síðamefnda húsið er jafnframt stjörnusambandsstöð eins og mun sjást á innviðum þess. Auk þess eiga Nýals- sinnar jörð á Suðurlandi, hluti jarðarinnar Gröf í Laugardal. Sagt er að innan margra þessara félaga hafi verið sterkar tilhneigingar til að binda alheiminn í kerfi - og margir þeirra sem hafa ánetjast hérvistarlegum patentum í pólitík (kommúnisma, fasisma ) hafi haldið áfram með slík kerfi í dulheimspekinni. Hvað um það - fólk úr Félagi Nýalssinna stofnaði félagsskapinn Norrænt mannkyn, sem eins og nafnið gefur til kynna byggir á kenningum um að kynstofn hvíta mannsins sé öðrum æðri og fer skyldleikinn við aðrar kenningar um úrval tegundanna ekki á milli mála. MIÐILSFUNDIR ilraunafélagið heldur nokkuð reglulega miðilsfundi, sem félagsmenn segjast nota skipulega til að afla upplýsinga. Líf á öðrum hnöttum er líklegt að mati þeirra flestra , enda segja þeir að viðmælendur úr samböndunum haldi því statt og stöðugt fram. ísland er að mati þeirra sérstætt land fyrir dulræna hæfileika og margir miðlar á heimsmælikvarða er sagðir vera eða hafa verið hérlendis. Félagarnir segja að þjálfun miðla sé eitt veigamesta atriðið í þessari starfsemi,- margir búi yfir skyggnigáfu, en hún sé sjaldnast ræktuð og þjálfuð eins og hægt væri. Pví þjálfaðri sem miðlamir eru, þeim mun betra samband við líf að loknu þessu, þeim mun öflugri miðilsfundir. „Það þykir einstætt hversu margir miðlar starfa með okkur - við reynum Iíka að finna nýja og þjálfa þessa gáfu með þeim“. Til- raunafélagsmenn segja þá dæmisögu um eftirspurn eftir miðlum, að á dögunum aug- lýstu þeir eftir ritara til að vélritara niður eftir seglubandi samræður á miðilsfundum- þá hringdi fjöldi fólks, ekki til að spyrja eftir starfinu, heldur til að forvitnast um miðlana og leita eftir möguleika á þátttöku í þessu starfi. En hverjir taka þátt í miðilsfundum? Bara við -fólk af öllum toga. Þó er áberandi hversu margir skólamenn eru í þessu, sér- staklega raunvísindamenn. Á síðasta miðils- fundi voru -hérna megin - stjómmálafræði- nemi, menntaskólanemendur, þroskaþjálfi, vagnstjóri, tölvufræðinemi, eðlisfræðingar, fóstri og sagnfræðingur, segja þeir í Tilrauna- félaginu. Hvað gerist á miðilsfundum? Misjafnt. Yfirleitt koma látnir fram í gegnum miðilinn og þátttakendur á fundinum spyrja hinn framliðna. Oft eru menn í þessum félagsskap á þeirri skoðun, að hinir látnu lifi á öðrum hnöttum, stjömum og hafi öðlast æðri skilning á tilgangi lífsins á jörðinni og hafi því beinlínis erindi til þeirra sem ganga á jörðinni í dag. Þeir segja að þeir sem fram koma á fundunum haldi því ævinlega fram að þeir búi á öðmm plánetum. Á fundunum koma fram fomir kappar, spekingar og bardagahetjur og venjulegt fólk sem látist hefur á okkar tímum. Stundum er beðið fyrir skilaboð, kveðjur eða þess háttar til vina eða ættingja, en yfirleitt eru umræður um dul- sálfræðileg málefni á þessum fundum. Stundum sjást litir eða ámr á fundunum 38

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.