Þjóðlíf - 01.01.1988, Síða 53
ERLENT
Á Kúbu er heitt, tæplega 30 stiga hiti og
þröngar götur Gömlu Havana “Habana
vieja“ eru troðnar þótt liöið sé fast að
miðnætti. Götulífið er eitt iðandi mann-
haf af svörtu og hvítu fólki, flestir eru þó
einhverskonar blanda þessa tveggja.
Menn virðast ekki vera að fara neitt,
heldur ráfa á milli kráa, kvikmyndahúsa
og skemmtigarða, drekkandi romm og
bjór eða borðandi ís, að sýna sig og sjá
aðra.
En hvernig er þetta fólk, hver eru
lífskjör þess og tilvera? Frá byltingunni
1959 hefur Kúba ýmist verið álitin hið
lýsandi fordæmi sósíalismans eða dæmi
um eymd og alræði kommúnismans, allt
eftir því frá hvaða sjónarhomi litið hef-
ur verið á málið. Höfundurinn, Runólf-
ur Ágústsson var á Kúbu í lok nóvem-
ber.
• Fidel Kastró einvaldur.
Kastrés á Kúbu
framfarir - en aivarleg mannréttindabrot
STRAX í KJÖLFAR byltingarinnar flýðu
um 600.000 Kúbubúar land. Þetta var aðal-
lega efnafólk sem hafði misst lönd sín og
eignir vegna þjóðnýtingarinnar. Síðan eru
liðin tæp 30 ár og ávallt hefur verið nokkur
straumur fólks úr landi yfir til Bandaríkjanna
þannig að í heild má áætla að um ein miljón
manna eða 10% þjóðarinnar hafi yfirgefið
Kúbu Castros. En hvað hefur byltingin fært
þeim sem eftir urðu?
Frá 1959 hafa orðið stórstígar framfarir á
ýmsum sviðum þjóðlífsins. Ólæsi hefur verið
útrýmt, heilsugæsla er með því besta sem
þekkist utan Evrópu og unnið er að úrbótum
í húsnæðismálum þar sem verið er að koma
upp einskonar Búsetakerfi. Þegar fólk vant-
ar íbúð þá skráir það sig hjá sérstakri ríkis-
stofnun og vinnur síðan kauplaust í frítíma
sínum undir handleiðslu iðnaðarmanna í
byggingarvinnu ákveðinn tímafjölda. Að því
loknu fær fólkið íbúð og greiðir eftir það
hóííega fjárhæð mánaðarlega fyrir búsetu-
réttinn. Mikill fjöldi fólks býr þó enn í mjög
lélegu og þröngu húsnæði, jafnvel heilu stór-
fjölskyldurnar í eins eða tveggja herbergja
íbúðarholum. Þetta skapar ýmis vandamál.
Eitt þeirra hafa stjómvöld leyst á allsérstæð-
an hátt. í Havana er fjöldi lítilla ríkisrekinna
gistihúsa einkenndum með sérstöku hjarta-
laga merki. Þar geta hjón og pör leigt her-
53