Þjóðlíf - 01.05.1991, Blaðsíða 13
MENGUNARVÖRN
SEM SPARAR
✓
Islenskur Breti flytur inn mengunarvörn fyrir bíla og báta sem sparar jafnframt
eldsneyti. Rannsóknir gefa til kynna 7 til 10% sparnað eldsneytis og allt að 50%
minni mengun. Tregða við að fá viðurkenningu opinberra aðila
„Þetta byrjaði eiginlega þannig að ég las
um tækið í bílablaði fyrir tveimur árum“,
segir David Butt innflytjandi í spjalli við
Þjóðlíf. „Fyrir rúmu ári flutti ég inn
fyrstu tækin og síðan hefur þetta smám
saman verið að þróast“.
David Butt hefur átt heima í 14 ár á
íslandi og býr á Akranesi. Um nokkurra
missera skeið hefur hann flutt inn og
kynnt hið nýja tæki sem nefnt er Power-
plus. Þetta tæki kemur í staðinn fyrir eða
sem viðbót við dýran „katalysator“,
hvarfa, -mengunarvarnaútbúnað sem
evrópskar reglugerðir gera ráð fyrir að
verði innan örfárra ára kominn á alla bíla.
Hins vegar er hægt að setja Powerplus á
eldri bíla sem hafa engan mengunarvarna-
útbúnað. Hvarfmn þykir mjög dýr um
leið og hann eykur eldsneytisþörf bílanna.
Nýja galdratækið eyðir mengunarefnun-
um í vélinni sjálfri með því að brenna þau
og nýtir eldsneytið mun betur. Powerplus
er sett á eldsneytisleiðslu milli síu og
blöndungs bifreiðar og segir David að eit-
urefnin úr útblæstrinum eyðist allt að 50%
og allir bílar geti notað blýlaust bensín
með Powerplus tækninni án nokkurra
breytinga.
David segir einfalt að setja tækið í bíl-
vélar og tækið sem er einfaldur hólkur á að
sjá, eigi að endast í 240 þúsund kílómetra
akstur. Tækið kostar 12 þúsund krónur
fyrir venjulega fólksbíla en 15 þúsund
fyrir átta strokka vélar. Þá er tækið einnig
fáanlegt í díselvélar og er þá aðeins öðru-
vísi. Það hefur verið notað í báta- og skipa-
vélar með góðum árangri. Reynslan hefur
orðið sú að eldsneytiseyðslan hefur
minnkað um 5 til 15%, vélaraflið hefur
aukist um 3% og skaðleg efni minnkað um
helming.
Sparnaðurinn er ótrúlegur. Prófanir
hafa sýnt sparnað frá 7 til 14% í díselvélum
og frá 7 til 10% í bensínvélum. Breska
varnarmálaráðuneytið hefur haft ákveðið
frumkvæði í rannsóknum á þessu tæki.
Hér á landi hafa nokkur fyrirtæki og opin-
berar stofnanir reynt tækið. Hjá Sements-
verksmiðju ríkisins á Akranesi var það
reynt fyrst í Scania 112H og leiddi til elds-
neytissparnaðar upp á 10.5%. Síðar varð
sparnaðurinn meiri eða 12.89%. Þá má
nefna að Akraneskaupstaður og Reykja-
víkurborg eru að reyna tækið í nokkrum
bifreiðum og mörg fyrirtæki og stofnanir
hafa fylgt í kjölfarið, segir David.
Hann kveður notkunina fara hægt af
stað hér á landi eins og reyndar erlendis
líka þar sem opinberar stofnanir og nokk-
ur stórfyrirtæki hafa fyrst reynt tækið.
Alls eru svona tæki í 100 til 120 bílum á
Islandi en um 200 þúsund í Bretlandi.
Búnaðurinn hefur verið reyndur í Bret-
landi, Bandaríkjunum, Tyrklandi, Ítalíu,
Chile og á íslandi.
David Butt hefur kynnt tækið opinber-
um aðilum, m.a. umhverfisráðuneytinu
og Hollustuvernd ríkisins og væntir góðra
undirtekta. Hann tekur fram að Power-
plus í Bretlandi tryggi allar vélar sem nota
búnaðinn hjá Accident tryggingafélaginu.
Ýmsar tilgátur eru á lofti um það hvað
það sé í tækinu sem valdi því að eldsneyti
sparist, mengunarefni eyðist og vélarafl
aukist. Sumir telja að hér sé um hvataáhrif
að ræða og enn aðrir að rafseguláhrif hafi
nokkuð að segja. En einmitt þessi ráðgáta
kann að vefjast fyrir opinberum aðilum og
tefja fyrir viðurkenningu og stuðningi við
þessa hagkvæmu tegund mengunarvarna-
útbúnaðs á bifreiðar. ()
Auðvelt þykir að
koma tækinu fyrir
í bílvélum enda er
tækið
fyrirferðarlítið og
einfalt.
ÞJÓÐLÍF 13