Þjóðlíf - 01.05.1991, Blaðsíða 15

Þjóðlíf - 01.05.1991, Blaðsíða 15
YFIR 4000 HRINGINGARI FYRRA Rauðakrosshúsið hefur starfað í fimm ár. Sífellt fleiri börn og unglingar leita aðstoðar af einhverju tagi Rauðakrosshúsið í Tjarnargötu hefur nú starfað í rúmlega 5 ár. Það var formlega opnað 14. desember 1985 eftir að nefnd frá R.K.Í. hafði komist að þeirri niðurstöðu að mikil þörf væri á athvarfi fyrir unga vímuefnaneytendur sem opið væri allan sólarhringinn. Starfsmenn hússins eru 7, allir í 100% starfi. Húsið hefur samstarf við velflesta þá aðila sem vinna með og fyrir börn og unglinga, t.d. Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur og Utideild. Þjónusta sem Rauðakrosshúsið býður upp á er þrenns konar: Neyðarathvarf fyrir börn og unglinga, símaþjónusta og ráðgjöf. Neyðarathvarfið er ætlað þeim sem eru 18 ára og yngri. Þjónusta er ókeypis og börn og unglingar geta komið án þess að gera boð á undan sér. I síma Rauðakrosshússins er hægt að hringja all- an sólarhringinn og hægt er að ræða við- kvæm málefni án þess að segja til nafns. Hægt er að koma í húsið og fá viðtal án þess að óskað sé eftir gistingu. Á þeim 5 árum sem liðin eru síðan húsið opnaði hafa 259 einstaklingar komið 540 sinnum til dvalar. En beiðnir um aðstoð af einhverju tagi hafa verið 9334 og á síðasta ári varð gífurleg aukning, alls 4202 beiðn- ir. Iársskýrslu Rauðakrosshússins fyrir ár- ið 1990 kemur m.a. fram að meðalald- ur gesta var 17,1 ár. Kynskipting var nokkuð jöfn, stúlkur 52,3% en drengir 47,7%. Yfir 80% gesta leituðu til hússins vtTt? ALASKA BÍLAVÖRUR í SÉRFLOKKI Heildsöludreyfing: PRbúðin hf. S: 641418 utan hefðbundins skrifstofutíma og al- gengustu orsakir dvalar voru samskipta- örðugleikar við foreldra eða forráðamenn, vímuefnaneysla gesta og húsnæðisleysi. Ríflega helmingur gesta átti lögheimili ut- an Reykjavíkur og 37,8% þeirra höfðu flosnað upp úr grunnskóla. Af þeim sem notfærðu sér símaþjónustuna var kven- fólk í miklum meirihluta. 50,9% símtala komu utan hefðbundins skrifstofutíma. Meðallengd símtala var 7 mínútur en ef hringjandinn var í sjálfsvígshugleiðingum var meðallengd 17,6 mínútur. Ef allir sem hringdu eru taldir var meðalaldur þeirra 18,2 ár. Ef aðeins börn og unglingar eru talin var meðalaldur þeirra 14 ár. Sími hússins er 91-622266. 0 Eigum allt sem prýtt getur garðinn URVALS GARÐPLONTUR * Tré og runnar * Sumarblóm * Fjölær blóm * Grasfræ * Garðyrkjuáhöld * Aburður TTT¥11i.l ^ ^ * Blómaker Sfi * Rósir GARÐSHORN G viö Fossvogskirkjugarð sími 40500 ÞJÓÐLÍF 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.