Þjóðlíf - 01.05.1991, Blaðsíða 39
The Silencers: Dance to the Holy Man
Eigulegir Skotar
The Silencers er skoskur
kvintett og er leiddur af ná-
unga að nafni Jimme O’Neil
sem er söngvari og aðallaga-
smiður. Þetta er þriðja plata
sveitarinnar og hún geislar af
ferskleika. Hljómsveitin leik-
ur popp og rokk og gætir á
stundum áhrifa frá skoskum
tónlistarvenjum , t.d. i lögun-
um Roseanne og ástarsöngn-
um I want you. Sum laganna
eru mjög grípandi og dæmi um
það er lagið Bulletproof Heart
sem fjallar um hættur stór-
borga, að það sé nauðsynlegt
að vera með skothelt hjarta á
slíkum stöðum. Peningasöng-
urinn Hey Mr. Bank Manager
er líka mjög smellið lag og
skemmtilegt en útgangs-
punkturinn í laginu er vald
bankastofnana til að soga til
sín eignir fólks á uppboðum.
Dance to the Holy Man er
mjög eiguleg plata með góðum
lagasmíðum og textum.
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlíð ræðst ekki á garð-
inn þar sem hann er lægstur.
Það tók til sýninga í vor þetta
stórkostlega verk eftir
Richard O’Brien, RockyHor-
ror Picture Show.
Nú er platan með tónlistinni
komin út. Hún er einfaldlega
mögnuð og alveg frábært hvað
þeim hefur tekist að koma
þessu verki vel til skila því það
liggur í hlutarins eðli að bera
frummyndina saman við út-
gáfu M.H. sem stenst þann
samanburð fyllilega. Hér
standa sig allir frábærlega,
misfrábærlega að vísu en óum-
deilanleg stjarna plötunnar/
sýningarinnar er Páll Oskar
Hjálmtýsson í hlutverki
Frank-N-Furter, klæðskipt-
ingsins ógurlega („sweet trans-
vestite“). Hann er með geysi-
góða rödd sem hæfir vel pers-
ónunni og glæðir hana miklu
lífi. Þetta heyrist t.d. vel í Nú
held ég heim (I’m going
home).
Þýðingin á textanum eftir
Veturliða Guðnason er líka
meistarastykki útaf fyrir sig og
snilldarlega gerð, kemur
stemmningunni óskaddaðri til
skila og gerir stundum betur
en fyrirmyndin. Hér er dæmi
úr laginu Taumlaus transi
( Sweer Transvestite). Frank-
N-Furter hefur Brad og Janet
Leikfélag M.H.: Rocky Horror Picture Show
Magnað, tryllt og villt
i neti sinu en uti 1 rigmngunm
er bíll þeirra með sprungið
dekk. Fyrst á ensku: „Well
you got caught with a flat tire/
how about that/ well babyes,
don’t you panic/by the light of
the night/it’ll all seem all-
right/I will send you a satanic
mechanic.“ Og svo á ástkæra
ylhýra: „Svo dekkið þitt
sprakk/og þú átt engan tjakk/
en greyin mín, ekki þennan
flýti/því gott miðnæturblót/er
meinanna bót/ og ég sendi
ykkur vélsmið úr víti.“ Þetta
er lipurt í meira lagi.
Hér verða ekki talin upp
einstök lög til þess að hæla
þeim en eitt er víst að upp-
færsla og meðferð leikhóps
M.H. og allra sem komu henni
nálægt, leikara, meðsöngvara
og hljómsveitarinnar undir
stjórn Jóns Ólafssonar, svo
einhverjir séu nefndir, er öll-
um til mikils sóma og þessu
fólki hefur tekist að skapa
næstum því meistarastykki.
Aðeins herslumuninn vantar.
Og hann er lítill.
Ýmsir flytjendur: Bandalög 3
Sumarsmellir
Það er orðin venja hjá
„stóru“ útgefendum hér-
lendis, Steinum h/f og Skíf-
unni h/fað gefa út safnplötur
þegar sól hækkar á lofti. Nú
er þriðja platan af Bandalög-
um komin út og á henni
kennir margra grasa. Alls
eru tíu innlendir flytjendur
með lög á henni og fimm er-
lendir. Mín vegna hefðu allir
flytjendurnir mátt vera inn-
lendir en hvað um það.
Eyjólfur Kristjánsson og
Stefán Hilmarsson eru
fyrstir með júrókortið ... af-
sakið, júrólagið okkar um
hana Nínu, sem lenti í 15.
sæti í Róm um daginn. Ágæt
ballaða, dálítið stressuð á
háu tónunum en Stefáni fer
fram í söngnum. Af öðru má
nefna lagið Lengi lifi lífið
með þeim Sigrúnu Evu Ár-
mannsdóttur og Jóhannesi
Eiðssyni úr forkeppninni að
„Júróvisjón". Þau koma vel
út.
íslandsvinir eru hressir og
tónlistin undir sálar/fönk/
djassáhrifum. Galíleo og
Upplyfting syngja létta sum-
arsmelli í lögunum Syngjum
okkur hás (sem er að mínu
mati eitt besta lag plötunnar,
smekklega útsett) og Sumar
og sól. Lofgjörð um ísland
en jafnframt ádeila á gróður-
eyðingu felst í Moldrok(k)i,
tölvupopplagi og Pís ofkeik,
sem er ofhlaðið og yfirkeyrt á
köflum að mínu mati. Plús
og mínus syngja skólapopp í
Skólalaginu.
Þá eru hér endurhljóð-
blöndur á lögunum Sonnetta
(nr.2) og Pöddulaginu (nr.2)
með Bubba og Todmobileen
þær „hannaði“ Þórhallur
Skúlason. Mér finnst fyrr-
nefnda útsetningin betri þó
endinn sé nokkuð ruglings-
legur. Pöddulagið finnst mér
handónýtt og nánast eyðilegg-
ing á góðu lagi.
Síðasta lag Bandalaga (lög-
in eru ekki í réttri röð í um-
fjölluninni) syngur svo Páll
Óskar Hjálmtýsson úr söng-
leiknum Rocky Horror Pict-
ure Show (sjá annarsstaðar).
En Bandalögin eru komin
til að vera allavega í nokkra
mánuði á vinsældalistunum.
Svo kemur væntanlega annar
skammtur að ári.
ÞJÓÐLÍF 39