Þjóðlíf - 01.05.1991, Blaðsíða 49
Nýrufrá
Tyrklandi fil
Nýlega var læknisleyfið tekið af enska
skurðlækninum Raymond
Crockett. Hann rak vel búna einkaskurð-
stofu í London og hafði hagnast vel af
rekstri hennar. Fín íbúð á besta stað í
London, herragarður uppí sveit, einbýlis-
hús í Sviss og sumarhús á Sardiníu. Hann
byggði velmegun sína á því að kaupa nýru
fátækra tyrkneskra bænda fyrir 200.000
kr. stykkið og selja til ríkra viðskiptavina
fyrir tífalt verð. Það var ekki fyrr en einn
„gefanda“ lést á skurðarborðinu sem yfir-
völd gripu í taumana. Það kom líka í ljós
að einn Tyrkjanna vissi ekki að fyrir dyr-
um stæði að fjarlægja annað nýra hans.
Hann hafði farið til London í þeirri trú að
hans biði atvinna þar. í Tyrklandi bönn-
uðu yfirvöld árið 1987 alla verslun með
líffæri en þrátt fyrir bannið auglýsa fá-
tæklingar enn nýru til sölu í dagblöðum.
Seldu nýrað í
Þýskalandi...
Nýru eru sérstaklega eftirsótt. Talið eraðíÞýskalandieinu þurfi um 5þúsundmanns nýra árlega
á sama tíma og aðeins er hægt að framkvæma 2 þúsund aðgerðir vegna skorts á gefendum.
Indland:
Vekjaraklukku fyrir nýra
Ef þú ert gjaldþrota en hefur ekki
taugar til að fremja auðgunarbrot,
þorir ekki að ræna banka eða byrja nýtt líf
erlendis, þá geturðu útvegað þér fjármagn
með því að selja úr þér nýrað.“ Textinn er
úr þýskum bæklingi sem sendur hefur
verið til eigenda fyrirtækja sem farið hafa á
hausinn. Höfundur textans er maður að
nafni Rainer Rene Adelmann von Adel-
mannsfelden, ævintýramaður sem sýslað
hefur með margt á lífsbrautinni. Hann
seldi um tíma aðalstitla til yfirlætislegra
ríkisbubba og útvegaði sér þá sjálfur aðal-
stitil. Þeir sem vilja kaupa eða selja nýra
gerast meðlimir í samtökum Adelmanns
„Félagsskapurinn fyrir gagnkvæma hjálp
manna á milli“ og borga 100 mörk í félags-
gjald. Að sögn geta menn fengið allt að
50.000 mörk eða hátt í tvær milljónir ís-
lenskra króna fyrir nýra sem selt er fyrir
milligöngu Adelmanns. Hann sendir við-
skiptavini erlendis til að fara kringum
þýsk lög sem aðeins heimila nýrnatöku úr
lifandi mönnum ef færa á líffærið í nákom-
inn ættingja.
Ilndlandi er miðstöð nýrnaflutninga við
Jasloka sjúkrahúsið í Bombay. Einn
þeirra sem undirbjó stofnun nýrnamið-
stöðvarinnar var dr. Shantilal Metha.
„Ég harma það núna að ég tók þátt í þeirri
vinnu,“ segir hann. „Ekkert land verald-
arinnar samtvinnar á jafn djöfullegan hátt
hátækni, fátæklinga og siðlaus læknavís-
indi sem hika ekki við að styðja við bakið á
miskunnarlausum sölumönnum nýrna.“
Á hverju ári fá um 70.000 Indverjar
sjúkdóma sem slá út nýrun og þyrftu ný
líffæri. Trúarbrögð hindúa banna líffæra-
flutning úr látnu fólki og því reyna
óprúttnir læknar að fullnægja þörflnni
með því að lokka fátæklinga til að selja
líffæri sín. Greiðslan er smánarleg: samsv-
arar 6.000 íslenskum krónum. Umboðs-
menn læknanna sem lokka fátæklinga til
að selja líffæri sín fá vekjaraklukku eða
ferðaútvarp fyrir hvert nýra sem þeir út-
vega á þann hátt. „Ef þetta verður ekki
stöðvað mun stór hluti fátækra Indverja
hafa aðeins eitt nýra eftir 10 ár“ segir dr.
K. M. Chug, einn þeirra lækna sem berj-
ast gegn líffæraversluninni.
ÞJÓÐLÍF 49