Þjóðlíf - 01.05.1991, Qupperneq 17
DOS WlndbW*
Amí Pro - CHAP2 SAM
909044
909O4S
rile Manaqer
Í)isk liec View Oiiliuus Wiiulu
sjj Duectory Tree
II
_____ C:\AMI
0SSIGN.SDW
Q123.FLT
PiAIRPORT.SD
Drivc M: IGUERNSEV/SYS: has 7602176 byt
Program Manager
Main
Filit View Text
Page Frame Tools
File Qptions Window Mclp
•H*Mi
I
HOS
" Kotxwid
Cor9rdP.v«l
TÖLVUR
EFTIR PÉTUR BJÖRNSSON
GLUGGAUMHVERFIOG MÚS
Núorðið er engin tölva seld án þess að
innihalda Windows 3.0 og mús. En hvað
er þetta Windows?
Windows er grafískt gluggaumhverfi
sem byggist eins og gefur að skilja á glugg-
um og valmyndum sem unnið er í með
mús. Windows kerfinu fylgir ýmis hug-
búnaður, s.s. ritvinnsla, teikniforrit, sam-
skiptaforrit o.fl. Þetta umhverfi var fyrst í
stað einkennismerki Macintosh tölvanna
en seinna voru þróuð svipuð kerfi fyrir PC
tölvur.
Helsti kostur kerfanna, hvort sem um
er að ræða Windows, Makka eða annað, er
einfaldleiki þeirra. Notandinn þarf ekki
að búa yfir nema lágmarks tölvukunnáttu
og leiðbeiningar eru nokkurn veginn
óþarfar. „Merkimiðarnir“ sem notaðir eru
til að ræsa forrit og aðgerðir eru flestir
lýsandi um það sem að baki býr. T.d. er
mynd af penna notuð til að ræsa rit-
vinnslu, skjalaskápur ræsir skráarstjóra
o.s.frv.. Notandinn þarf ekki að kunna á
stýrikerfið því hann velur bara þann miða
sem hann fýsir með músinni í stað þess að
flé, triflé og fromagerétta í hádeginu er
meira en orð fá lýst). Af þessu fæði fá
menn afburðagóðar hugmyndir við skák-
borðið. Milli umferða er hægt að spóka sig
í norskum öræfum og anda að sér samnor-
rænu fjallalofti. Er hægt að biðja um betri
aðstæður?
sögulok bregðum við okkur úr norsk-
um fjallasölum til lágsveita Hollands
þar sem minningarmóti um Max Euwe,
fyrrum heimsmeistara lauk á dögunum.
Urslit mótsins renndu enn stoðunum und-
ir þá skoðun sérfræðinga að einveldi þeirra
skrifa einhverjar langar runur af skipun-
um sem hann botnar kannski ekkert í.
Tölvuspekingar skiptast í tvö horn í af-
stöðu sinni til gluggakerfanna. Ann-
arsvegar eru þeir sem ekki halda vatni yfir
einfaldleikanum og litadýrðinni og hins-
vegar þeir sem vilja ekki sjá neitt annað en
C:0 bendilinn á skjánum og fá að skrifa
sínar skipanir sjálfir. Þeir meðmæltu
benda réttilega á að kerfin auðvelda börn-
um og þeim sem ekkert þekkja til tölva að
læra og jafnvel vinna á tölvum verk sem
ekki var á færi nema kunnáttumanna
áður. Hinir andvígu benda hinsvegar á
það að kerfi eins og Windows eru ekki
sniðug nema á stórum og öflugum tölvum.
VGA litaskjár, 386 eða 486 tölvur með
nokkurra megabæta minni eru þær kröfur
sem Windows gerir til að geta keyrt al-
mennilega og að allir kostir kerfisins nýt-
ist. Á hægvirkari tölvum með minna
minni verður Windows að martröð. Ekki
er hægt að ræsa forrit því minnið er uppur-
ið.
Windows er ekki eiginlegt stýrikerfi
Karpovs og Kasparovs sé að hruni kom-
ið; í annað sinn á stuttum tíma máttu þeir
sjá á eftir efsta sætinu í hendur keppinauta
sinna. I þetta sinn sigruðu þeir Nigel
Short og Valerí Salov, hálfum vinningi á
undan K-unum tveimur. Árangur Jó-
hanns Hjartarsonar sem varð í 6. sæti af
10 keppendum hlýtur að vera íslenskum
skákunnendum gleðiefni og vera honum
gott veganesti í undirbúninginn fyrir
Heimsbikarmótið hér heima í haust.
0
heldur liggur það yfir raunverulega stýri-
kerfinu sem er Ms-DOS ogétur þ.a.l. upp
minnið í tölvunni. Þegar tölvan er ræst eru
stýrikerfisforrit hlaðin í minnið og þar of-
an á bætist síðan Windows kerfið og það
segir sig sjálft að kerfið er frekar gagnslítið
þegar minnið er allt undirlagt og ekkert
pláss fyrir önnur forrit. Að vísu eru fáan-
leg forrit sem laga til í minninu, þ.e. taka
hin ýmsu stýriforrit sem hlaðast hingað og
þangað í minnið og færa þau upp í æðra
minni tölvunnar og auka þar með plássið í
minninu til muna.
Mikið hefur verið rifist um gluggakerf-
in á síðum tölvublaða. Tölvugúrúinn
John C. Dvorak sem skrifar pistla fyrir
PC Magazine er iðinn við að rakka Win-
dows kerfið niður og yfirleitt eru lesenda-
dálkar PC Magazine fullir af mótmæla og
meðmælabréfum frá lesendum. Ritstjórar
tölvublaðsins BYTE voru reyndar svo
vinsamlegir að leyfa lesendum að fylgjast
með rifrildum sín á milli og lögðu nokkrar
síður blaðsins undir skoðanaskipti sín um
kosti og galla kerfanna og sýndist þar sitt
hverjum.
Eins og gefur að skilja eru gluggakerfin
á PC tölvunum góður kostur fyrir þá sem
lítið kunna á tölvur en vilja samt nota þær.
Windows kerfið býður upp á ítarlega hjálp
hvar og hvenær sem er í vinnslunni en það
er þægilegt fyrir byrjendur og jafnvel
lengra komna sem lenda í ógöngum. En
síðan kemur upp þetta leiðinlega vanda-
mál: til þess að geta nýtt kerfið að fullu
þarf stóra og dýra tölvu og það er allt eins
líklegt að gamla PC tölvan taki alls ekki
við Windows án þess að frjósa og þannig er
það til lítils.
0
ÞJÓÐLÍF 17