Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 14
14 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
J
akob Arnarson, hótel
stjóri Hótels Arkar, segir
að mælst hafi sérlega vel
fyrir hjá gestum að njóta
sundlaugarinnar að loknum
vinnudegi:
„Setustofan okkar er einnig
vinsæl en hún er m.a. búin pool
borði, sjónvarpi, pílu spjöld um
og borðtennis borði. Við erum í
samstarfi við Iceland Acti vities
og Proevent sem bjóða upp á
fjölbreyt úrval af afþreyingu
fyrir hópa; surfing, ratleiki og
ýmislegt fleira, allt eftir óskum
viðskiptavinarins hverju sinni.
300 manna salur
Starfsfólk Hótels Arkar er
ávallt reiðubúið að aðstoða með
skipu lagningu og undir búning
fyrir ráðstefnur og/eða veislur,
hvort sem um er að ræða fundi,
ráðstefnur, fermingar veislur,
brúðkaup, árshátíðir eða önnur
einkasam kvæmi. Allt kapp er
lagt á að tilefnið verði í senn
ánægjulegt og eftir minnilegt.
Við getum tekið á móti allt að
160 manns í gistingu en erum
auk þess í samstarfi við aðra
gististaði í nágrenninu þegar við
erum með stærri viðburði. Við
getum tekið á móti 300 manns
í stærsta salnum okkar. Samtals
eru sjö fullbúnir fundarsalir á
hótelinu sem taka frá 12 og upp
í 300 manns og allt þar á milli.
Við stillum svo salina eftir ósk
hvers og eins.
Fundarherbergin eru búin
öllum helsta tæknibúnaði eins
og skjávarpa, tölvu, flettitöflu
og hljóðkerfi, ef eitthvað vantar
upp á erum við í samstarfi við
tækjaleigu EB á Selfossi sem
útvegar okkur það sem óskað
er eftir.
Jólahlaðborðs beðið með
eftirvæntingu
Hótel Örk er einstaklega vel búið hótel í hæfilegri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Hótelið hentar vel fyrirtækjum og hópum sem vilja nýta tíma sinn vel til þess að hrista
hressilega saman hópa með mat og drykk og afþreyingu við kjöraðstæður.
Hótel Örk
Texti: Hrund Hauksdóttir / Mynd: Geir Ólafsson
Jakob Arnarson, hótelstjóri Hótels Arkar.