Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 150
150 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Framtakssjóðs íslands:
StöðugLEiKi EN VAnTAR FJÁrFEStiNgAr
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Á margan hátt hefur tekist að ná stöðug
leika í hagkerfinu. Fjárfesting er forsenda
framfara og hún hefur verið minni en þarf
til að viðhalda góðum lífskjörum í landinu.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Stöðugleikinn hvílir á viðkvæmum grunni
og gjaldeyrishöft hamla því að íslensk fyrir
tæki geti vaxið á grundvelli innri styrkleika.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
Skýr og opin samskipti, hvatning og skapa
andrúmsloft þar sem ríkir bæði metnaður
og gleði.
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Þar sem einkafjármagn er af skornum
skammti og erlend fjárfesting lítil blasir
við að lífeyrissjóðir munu áfram verða
áber andi í viðskiptalífinu næstu misserin.
Sjóð irnir eru stærstu eigendur FSÍ en
starfsmenn þeirra og stjórnarmenn sitja
ekki í stjórn FSÍ né heldur í dótturfélögum
sjóðsins. Þar með koma þeir ekki að
einstökum ákvörðunum hjá sjóðnum eða
dótturfélögum hans. Eftir því sem ég fæ
best séð eru lífeyrissjóðir meðvitaðir um
vægi sitt í atvinnulífinu og fara með áhrif
sín af ábyrgð.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu
sex mánuðum og/eða bæta við sig
starfsfólki?
Verkefni sjóðsins er að fjárfesta, en hvenær
og í hverju verður að koma í ljós. Starfs
mannafjöldi er svo bein afleiðing þess hvert
umfangið er hverju sinni.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Það er sem betur fer fjöldi fólks sem
býr yfir leiðtogahæfileikum sem eru til
eftir breytni. Ég kýs fremur að horfa til
leiðtogahæfileika en stjórnkænsku, enda
eru margir sem búa yfir stjórnkænsku ekki
farsælir leiðtogar eða stjórnendur.
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Ég er almennt á því að hið opinbera eigi
ekki að standa í verslunarrekstri, en ég hef
ekki gefið þessu máli nægjanlegan gaum til
að taka eindregna afstöðu.
„Verkefni sjóðsins er að fjárfesta,
en hvenær og í hverju verður að
koma í ljós. Starfs mannafjöldi
er svo bein afleiðing þess hvert
umfangið er hverju sinni.“
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Framtakssjóðs Íslands.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-2
9
2
0
Meistaraverk
Mercedes-Benz M-Class er mikil meistarasmíð. Afburða hönnun, fjölmargar tækninýjungar, kraftur og
framúrskarandi aksturseiginleikar hafa tryggt honum frábærar viðtökur. Hann er búinn hinu háþróaða
4MATIC aldrifskerfi sem bregst strax við breyttum akstursaðstæðum, t.d. mikilli úrkomu, ísingu eða
snjó. Dráttargetan er heil 3.500 kg og hann eyðir aðeins 5,8 l/100 km í blönduðum akstri.
Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur M-Class til sýnis og reynsluaksturs.
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz M-Class 250 BlueTEC, 4MATIC og
með 7 þrepa sjálfskiptingu. Verð frá 9.980.000 kr.
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?