Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 182
182 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
„Mindfulness merkir að vera með fulla meðvitund og með athyglina hjá sér og upplifa það sem er að gerast
á meðan það er að gerast. Við þekkjum hug ann okkar ótrúlega lítið en hann er oftast eins og ótaminn api.“
Á
sdís Olsen hefur
sérhæft sig í mind
fulness á vinnu
stöð um og kennir
stjórnendum og
starfsmönnum fyrirtækja mind
fulness með góðum árangri.
„Mindfulness merkir að vera
með fulla meðvitund og með
athyglina hjá sér og upplifa það
sem er að gerast á meðan það
er að gerast. Við þekkjum hug
ann okkar ótrúlega lítið en hann
er oftast eins og ótaminn api út
um allar trissur. Mindfulness er
í raun hugar eða heilaþjálfun
sem miðar að því að virkja þau
svæði í heilanum sem geyma
sköpun, tengsl, flæði, vellíðan
og sátt.
Rannsónir sýna ótrúlegan
ár ang ur af því að innleiða mind
fulness á vinnustaði. Starfsmenn
vitna um minni streitu, betri
athygli og meiri ánægju. Þá
kem ur í ljós að vinnustaðamenn
ingin breytist, fólk er öruggara
og einlægara og frekar tilbúið
að viðurkenna mistök og læra
af þeim. Samskipti verða betri,
það er minna um fjarvistir, afköst
aukast og fyrirtækin hagnast.“
Auk þess að kenna mind
fuln ess er Ásdís aðjúnkt í
lífsleikni við menntavísindas
við Háskóla Íslands. Ásdís er
mennt unar fræð ingur með meist
arapróf í upplýsingamiðlun frá
Ohio University í Bandaríkjunum.
Þá lærði hún hugræna atferlis
meðferð og mindfulness og er
með kenn ara réttindi í mindful
ness frá Bangoreháskóla.
Söngur og hlátur
Ásdís á fjórar dætur, tvö barna
börn og að sögn lágmark tvo
tengdasyni. Elsta dóttirin heitir
Bergþóra og er lögfræðingur
hjá Samtökum atvinnulífsins,
næst er Valgerður sem er að
læra gerva og leikhúsförðun
í Ósló, Brynhildur er nemi á
dans listabraut í MH og Álfheiður
er í grunnskóla og fimleikum
og leikur um þessar mundir í
sýningu Borgarleikhússins á
Línu langsokk. Þær tvær yngstu
búa hjá móður sinni.
„Þær eru uppáhaldsfélags
skap urinn minn. Þær hafa alla
hæfi leikana sem ég hef ekki og
eiga svo mikinn söng og hlátur.
Það er mikið staðið á höndum,
sungið og dansað á heimilinu og
þær eru með mér í fjallgöngum
á sumrin og á skíðum á veturna.
Ég fer ekki endilega auðveld
ustu leiðina í lífinu. Ég er
stans laust að ögra sjálfri mér og
sækjast eftir nýrri upplifun og
reynslu og sumu lendir maður
bara í og það þroskar mann
líka. Það erfiðasta sem ég hef
upplifað er að vera viðstödd
skyndilegt fráfall pabba. Það
tók líka á að skilja eftir 25 ára
hjónaband. Þá lenti ég síðasta
vetur í skíðaslysi í Austurríki. Mitt
fyrsta þyrluflug hefði vel mátt
vera við aðrar aðstæður. Ég hef
hins vegar upplifað miklu fleira
ánægjulegt – hef notið þess að
ferðast um Balí með bakpoka,
stýra raunveruleikaþætti í sjón
varpi, vera viðstödd fæðingu
barnabarnsins míns, keppa í
golfi, sigla skútu, læra að sörfa
og nýlega tók ég upp á því að
synda í köldu Atlantshafinu.
Það er ekki annað hægt en vera
fullkomlega „mindful“ í sjónum,
en þá er ég meðvituð um að
ég sé í sama sjó og fiskar, selir
og hákarlar. Það er eitthvað
svo stórkostlegt við það. Meðal
þess sem ég á eftir að gera er
að klára doktorsnám og stofna
hamingjusamfélag eða komm
únu í nágrenni Reykjavíkur.“
– segir Ásdís Olsen, framkvæmdastjóri Mindfulness-miðstöðvarinnar
Hugurinn oftast eins og ótaminn api
Nafn: Ásdís Olsen.
Starf: Aðjúnkt við HÍ og
framkvæmda stjóri Mindfulness -
miðstöðvarinnar.
Fæðingarstaður: Reykjavík, 21.
desember 1962.
Foreldrar: Halldóra Sigurðardóttir og
Alfreð Olsen flugvélstjóri.
Börn: Bergþóra, 30 ára, Valgerður, 28
ára, Brynhildur, 20 ára, og
Álfheiður, 11 ára.
Menntun: B.Ed.-gráða, MA-gráða
í upplýsingamiðlun/skemmtimennt
og kennaranám í mindfulness frá
Bangor-háskóla í Wales. Sérfræðinám
í hugrænni atferlismeðferð frá Endur-
menntun Háskóla Íslands í samstarfi
við Oxford-háskóla.
Ásdís Olsen, framkvæmdastjóri Mindfulnessmiðstöðvarinna
fólk
MARC O’POLO STORE
Kringlan Shopping Center
Kringlan 4-12
Reykjavik
180-4-770_AD_FC_Island_WomenFW14_210x279#.indd 1 21.10.14 16:16
Umsjón: svava jónsdóTTir