Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 165
FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 014 165
„Mér finnst skorta talsvert á
virðingu fyrir þeim leikregl um
sem búið er að samþykkja.“
gestur Pétursson, forstjóri Elkem:
VirðiNg FyRIR LEiKrEgLuM
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Okkur hefur tekist að styrkja bæði við
skiptalífið og samfélagið í heild sinni þrátt
fyrir krefjandi áskoranir, ólgusjó á vinnu
markaði og gjaldeyrishöft.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Mér finnst skorta talsvert á virðingu fyrir
þeim leikreglum sem búið er að samþykkja
og eftirfylgni til þess að eftir þeim sé farið.
Það vantar sem sagt aga að mínu viti og
um leið ákveðna auð mýkt til þess að draga
lærdóm af þeim hremm ingum sem við
höfum gengið í gegn um á undanförnum
árum.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
1) Að allir starfsmenn fari heilir heim í lok
hvers vinnudags.
2) Að hámarka verðmætasköpun og tryggja
samkeppnishæfni þeirra fyrirtækja sem
okkur stjórnendum er treyst fyrir.
3) Að tileinka sér heiðarleg og skýr
samskipti.
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Nei, ég er ekki þeirrar skoðunar. Hins
vegar er mikilvægt að stjórnir og starfsfólk
sjóð anna setji sér hlutlæg viðmið þegar
kemur að ákvörðunum um fjárfestingar
og siðferði stjórnarmanna, stjórnenda og
starfsfólks. Með þessu á ég við að settar séu
skýrar leikreglur, bæði í fjárfestingarstefnu
sjóðanna og tengslum stjórnenda við
atvinnulífið og einstaka hagsmunaaðila.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu sex
mánuðum og/eða bæta við sig starfsfólki?
Elkem mun fjölga fastráðnu fólki á næstu
mánuðum ásamt því að auka fjárfestingar
árið 2015 í samanburði við yfirstandandi ár.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Já, t.d. Bill Clinton sem ég upplifði í
tals verðri nálægð þegar ég dvaldist um
nokkurra ára skeið í Bandaríkjunum. Ég
var í persónulegum tengslum við nokkra
einstaklinga sem unnu nálægt æðstu stjórn
Hvíta hússins og fékk á vissan hátt beint
í æð hrifningu þess fólks á frammistöðu
hans. Þrátt fyrir aukna hryðjuverkaógn
og harða stjórnarandstöðu skilaði hann af
sér einu mesta blóma og framfaraskeiði
Bandaríkjanna í langan tíma, m.a. með
öguðum fjárlögum, verulegum niður
greiðslum á skuldum bandaríska ríkisins og
fjölg un starfa (u.þ.b. 20 milljón ný störf) í
forsetatíð sinni.
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Ekki mín vegna að minnsta kosti. Mér
finnst það þjónustustig, vöruúrval og
verð sem okkur er boðið upp á í dag hjá
Vínbúðunum almennt til fyrirmyndar. Ég
kynntist „norsku leiðinni“ ágætlega fyrir
nokkrum árum og hef svo sem ekkert á
móti henni heldur, en þar er leyft að selja
bjór upp að ákveðnum styrkleikamörkum í
matvöruverslunum.
Gestur Pétursson, forstjóri Elkem.
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?