Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 53
FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 014 53
þinna, foreldra, systkina,
vina eða annarra sem
standa þér nærri? Hversu
oft áttu gæðastundir
með þessum einstakling
um? Forgangsraðar þú
og tekur frá tíma til að
verja með þeim sem
eru þér kærastir? Ert
þú góð fyrirmynd, hvað
varðar heilsusamlegt
líferni, meðferð fjármuna,
umgengni um þann
griðastað sem heimilið á
að vera og þar fram eftir
götunum? Leggur þú þitt
af mörkum til að leysa úr
ágreiningi sem kann að
koma upp í þeim sam
böndum og samskiptum
sem þú átt í, skoðar þú
þinn þátt í málunum?
3. Samfélag
Hvað leggur þú til þíns
nærumhverfis og sam
félags? Tekur þú virkan
þátt í félagsstarfi, íþrótta
félagi hverfisins, sinnir
þú sjálfboðaliðastörfum
eða styrkir góð málefni?
Ert þú leiðbeinandi eða
„mentor“ fyrir þér yngri
eða óreyndari aðila sem
gæti lært af þér og notið
stuðnings af reynslu þinni?
Hugar þú að umhverfinu
með umhverfisvænum
vörum, vistvænum sam
göngumáta, flokkun
sorps o.s.frv.?
4. Þú sjálfur
Ertu leiðtogi eigin árang
urs? Talað er um að
til þess að vera góður
leiðtogi fyrir aðra eða
fyrir einhverjar tilteknar
og æskilegar niðurstöður
þurfir þú fyrst að vera
góður leiðtogi gagnvart
sjálfum þér og þínum
árangri. Það felur í sér
að þekkja sjálfan sig,
styrkleika sína og hæfni,
þekkja lífsgildi sín og vita
hvert maður stefnir. Auk
þess að hafa getu til að
hafa áhrif, samskipta
hæfni, tilfinningagreind
og hegðun sem kemur
þér í það mark sem þú
stefnir á. Hvað gerir
þú til að styrkja þig og
vaxa sem einstaklingur?
Hvernig ertu að vinna
með þig og þróa þig
áfram? Þessi nýja nálgun
við leiðtogaumræðuna
er að mínu mati vel til
þess fallin að ná fram
ýmsum breytingum sem
löngu er kominn tími á,
til að þroska okkur sem
einstaklinga og skapa
það vinnuumhverfi og
samfélag sem við öll
viljum vera í.
Ný og skemmtileg
nálg un við þessa
umræðu snýst um það
að vera leiðtogi allan
hringinn, ef svo má að
orði komast, þann ig að
bæði einstaklingurinn
og vinnustaðurinn
njóti góðs af.