Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 20
20 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
Þegar Netflix fór af stað voru
starfsmenn um 30 talsins; fyrir
tækið einbeitti sér í fyrstu að
sölu og dreifingu á dvddisk
um sem á örskömmum tíma
gjörbreytti bandarískum mynd
bandamarkaði. Með framförum
netsins skipti Netflix um gír
og ein beitti sér að netáskrift
og aðgangi að kvikmyndum
og sjónvarps þátt um í stafrænu
formi. Fyrir tækið sætti færis,
kom inn á hárréttum tíma
og nær samstundis náði það
öruggri og góðri markaðsstöðu
á þessu sviði. Hlutabréf í fyrir
tækinu hafa rokið upp allt frá
aldamótum. Stjórnendur hafa
náð hagstæðum samn ing um
við kvikmynda og sjónvarps
framleiðendur, ráðið til sín
snjallt fólk og fylgst vel með
hin um miklu tækniframförum
og breytingum á fjölmiðlun
síðastliðin ár. Almennt þykir
Net flix vera framúrskarandi
fyrir tæki með afar jákvæða
ímynd.
Áhrif Netflix
Venjulegt sjónvarpsáhorf
minnkaði um 13% á síðasta
ári í Bandaríkjunum hjá fólki
yngra en 56 ára. Það er gífur
legt hrap. Ungt fólk virðist
vera að yfirgefa hefðbundið
sjónvarp. Þar með er ekki
sagt að hefðbundið sjónvarp
sé að deyja út. Það er tvenns
konar markaður að myndast,
tvenns konar notkun. Annars
vegar fylgist fólk með fréttum,
umræðum um samfélagsmál,
beinum útsendingum af
kapp leikjum og stórum við
burð um í hefðbundnu sjón
varpi. En þegar kemur að af
þreyingu, sjónvarpsþáttum og
kvikmyndum notar það veitur
eins og Netflix í síauknum mæli.
Áhrifin eru enn óljós. Í
Frakk landi hefur umræðan
verið á þann veg að sjónvarp
hafi samfélagslega og menn
ingar lega þýðingu. Þar þykja
kvik myndir vera listgrein en
ekki iðnaður. Franskar sjón
varps stöðvar hafa lögbundið
menningarlegt hlutverk í
Frakk landi og 40% af öllu efni
skulu vera innlend. Þær þurfa
svo að borga lögbundin gjöld
til franskrar kvikmyndagerðar,
sem er mikilvæg tekjulind fyrir
greinina.
Þar sem Netflix er skráð í
Lúxemborg og ekki skilgreint
sem venjuleg sjónvarpsstöð
sleppur það við ýmsar lagalegar
skyldur og gjöld. Því spyrja
margir: Á Netflix eftir að ganga
af franskri kvikmyndagerð
dauðri?
Aðrir benda hins vegar á að
öll fjölmiðlun og afþreying
breytist hratt og þar sé sjón
varpið ekki undanskilið; tæki
færin séu ærin. Þeir sem fylgist
ekki með hverfi af markaði og
aðrir komi í staðinn.
Netflix hefur þegar hleypt lífi
í staðnaða sjónvarpsmenningu
og aukið samkeppni. Flestar
sjónvarpsstöðvar eru að laga sig
að breyttum tímum og harðari
samkeppni – það á við um ís
lensku sjónvarpsstöðvarnar
líka.
Hefur innkoma Netflix á íslenskan
sjónvarpsmarkað breytt einhverju?
Þessi óformlega innkoma Netflix hefur
sjálfsagt breytt heilmiklu. Áhrifin hafa þó
líkast til verið minni á sjónvarpsstöðvar
sem senda út í opinni dagskrá en áskriftar
stöðvar. Við erum að tala um stóraukið
framboð af efni, upp að ákveðnu marki
meiri fjölbreytni og breyttar áhorfsvenjur
þar sem hægt er að horfa á hvern þáttinn á
fætur öðrum eða mynd ofan á mynd þegar
viðkomandi hentar.
Stóra breytingin og mögulega sú áhrifa
ríkasta til lengri tíma litið er enn meira
framboð af erlendu efni og það mis góðu
eins og gengur og gerist. Sem er auð vitað
gott og blessað, þ.e. að framboð sjónvarps
efnis aukist, ef þetta efni berst með réttum
hætti til landsins og gengur hér kaupum og
sölum eins og íslensk lög gera ráð fyrir.
Stóra áhyggjuefnið í þessu sambandi
er hins vegar að á meðan Spotify er ekki
með formlega starfsemi á Íslandi verður
litla sem enga innlenda dagskrárgerð þar
að finna, ekkert efni með íslenskum texta
og það sem verra er; ekkert barnaefni
talsett á íslensku. Ekkert efni sérstaklega
ætlað íslenskum áhorfendum, rétt eins
og í þeim löndum þar sem Netflix rekur
opinberlega starfsemi, sbr. í Danmörku,
en á danska Netflix má nálgast fjölmargar
kvikmyndir, sjónvarpsþáttaraðir og annað
efni sérstaklega sniðið að þörfum danskra
áskrifenda.
Hvernig hafið þið á RÚV brugðist við?
Rétt eins og okkur ber að bregðast al
mennt við; með því að leitast við að bjóða
að megninu til upp á annað en það sem
mark aðurinn, hinar einkareknu sjónvarps
stöðv ar, hafa og geta sinnt farsællega. Þegar
Netflix starfar í 40
lönd um og eru áskrif
endur þess þegar
orðnir 50 milljónir,
þar af 37 milljónir í
Bandaríkjunum. Fyrir
tækið er um þess ar
mundir að koma sér
fyrir í Evrópu.
Netflix var stofnað í
Kali forníu 1997 af Marc
Randolph og Reed
Hastings. Saga Netflix
byrjaði á einni vídeóspólu.
Þegar Hastings þurfti að
greiða heila fjörutíu dollara
í sekt á myndbandaleigu
fyrir að skila kvikmyndinni
Apollo 13 nokkrum dögum
of seint fór hann í bræði
sinni að upphugsa nýja
staf ræna myndbandaleigu.
Áskrifendur Netflix á Íslandi eru rúmlega 20.000 sem er svipaður fjöldi og áskrifendahópur Stöð
var 2. Þá má geta þess að í Bandaríkjunum minnkaði venjulegt sjónvarpsáhorf um 13% á síðasta
ári hjá fólki yngra en 56 ára. Það er gífurlegt hrap. Ungt fólk virðist vera að yfirgefa hefðbundið
sjónvarp. En hver eru áhrif Netflix á Íslandi?
Áhrif Netflix Á ÍslaNdi?
Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV:
Mjög breyttar áhorfsvenjur
Traustsins
verðir
Vörður nýtur trausts hjá öflugum íslenskum fyrirtækjum og stofnunum.
Áhersla okkar á einföld og þægileg viðskipti er nokkuð sem fyrirtæki af
öllum stærðum og gerðum kunna að meta.
Hafðu samband og fáðu tilboð í tryggingar þíns fyrirtækis.
VIÐ VILJUM KYNNAST ÞÍNU FYRIRTÆKI BETUR
Við stöndum vörð
um öflug fyrirtæki
RÚV
Til að tryggja landsmönnum
fréttir, skemmtun og fróðleik
þarf fjölda starfsmanna,
tæknibúnað og húsnæði.
Hér er góður staður
fyrir þitt fyrirtæki
Brim
Þrír afkastamiklir frystitogarar
og öflugt starfslið tryggja
Íslendingum hærri útflutnings-
tekjur af gæðahráefni.
Atlantsolía
Með 19 sjálfsafgreiðslu-
stöðvum, birgðastöð og
fjórum olíubílum er hægt að
tryggja aukna samkeppni á
eldsneytismarkaði á Íslandi.
Landsbankinn
Stærsta fjármálafyrirtæki á
Íslandi með víðtækasta útibúa-
netið tryggir trausta og alhliða
fjármálaþjónustu um allt land.
Marel
Eitt af stærstu útflutnings-
fyrirtækjum Íslands tryggir
markaðnum hugvitsamlegar
lausnir til vinnslu matvæla.
Isavia
Það þarf mikil umsvif til
að tryggja öryggi á öllum
flugvöllum landsins og sjá
um nærri 5,5 milljóna km²
flugstjórnarsvæði.
Landsvirkjun
Stærsta fyrirtæki landsins í
orkuvinnslu vinnur 73% allrar
raforku innanlands til að tryggja
fólki og fyrirtækjum rafmagn.
Össur
Rannsóknir og nýsköpun
styrkja stoðir atvinnulífsins með
framleiðslu sem tryggir að fólk
geti staðið á eigin fótum.
Netflix