Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 38
38 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
Jörundur Jörundsson, tölvunar fræðinemi við Há skólann í Reykjavík, vann listann yfir stærstu fyrir tæki
landsins. Hann segir að listinn fáist líka á excel-formi og fjöldi fyrirtækja nýti sér það.
300 stærstu líka á rafrænu formi
Bókin 300 stærstu:
TexTi: jón G. HaUKsson / mynd: Geir ólaFsson
Þ
etta hefur gengið vel
og listinn hefur sjaldan
verið eins þéttur af
upplýsingum og
yfirgripsmikill,“ segir
Jörundur Jörundsson, tölvun
ar fræðinemi við Háskólann í
Reykjavík, en hann vann listann
yfir 300 stærstu fyrirtæki landsins
í sumar fyrir Frjálsa verslun.
Jörundur er ekki alveg ókunn
ugur þessari vinnu; hann kom
að vinnslu listans síðustu tvö
árin. Í fyrra með Hildigunni Önnu
Hall og þar áður með Jóhannesi
Benediktssyni.
„300 stærstulistinn býðst líka á
excelformi,“ segir Jörundur. Und
anfarin ár hafa fjölmargir milli
stjórnendur keypt listann á því
formi. „Ásókn í listann á rafrænu
formi hefur aukist verulega enda
geta stjórnendur unnið með hann
að vild eftir eigin höfði – gert sína
markhópa – og skoðað upplý
singar um fyrirtæki og einstakar
atvinnugreinar í excelskjalinu.“
Rafræna formið er sérstaklega
vinsælt á meðal framkvæmda
stjóra, forstjóra, fjármálastjóra,
markaðsstjóra, mannauðsstjóra
og skrifstofustjóra, svo nokkuð
sé upp talið af stjórnendum sem
nýta sér listann.
Listi Frjálsrar verslunar yfir
stærstu fyrirtæki landsins er
fjörutíu og eins árs. Guðmundur
Magn ússon prófessor vann fyrsta
list ann árið 1973 og var Fortune
fyrirmyndin. Fyrsti listinn náði yfir
50 stærstu fyrirtæki landsins – og
ekki þarf að hafa mörg orð um að
SÍS var þá langstærsta fyrirtæki
landsins.
Upplýsingasöfnun hófst
snemma sumars með því að haft
var samband við á sjötta hundrað
fyrir tækja, stofnana og samtaka
og lauk vinnslunni í endaðan
október. Frjáls verslun byggir
Jörundur Jörundsson, tölvunarfræðinemi við Háskólann í
Reykja vík, vann listann þriðja árið í röð. „listinn hefur sjaldan
verið eins þéttur af upplýsingum og yfirgripsmikill.“
„Ásókn í rafræna
listann hefur aukist
veru lega enda geta
stjórn endur unnið
með hann að vild eftir
eigin höfði – gert sína
markhópa – og skoðað
upplýsingar um fyrir
tæki og einstakar
atvinnu greinar í excel
skjalinu.“
300 stærstu