Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 160
160 FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 2014
heiðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Norðlenska:
hægFArA BATAMERKI
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Undanfarið ár hefur almennt einkennst
af nokkrum stöðugleika og hægfara bata
merkjum sem eru af hinu góða. Fjár
festingar mættu sem áður aukast meir, en
góðir hlutir gerast hægt. Finnst fyrir tæki
almennt vera að byggja sig upp skyn sam
lega, leitast við að hagræða og byggja
upp innri vöxt. Vöxturinn í ferða þjónustu
er þó mun hraðari og vaxtarverkir því
tengdir en það er verið að byggja upp til
framtíðar.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Gjaldeyrishöftin og einhæfni.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
Framtíðarstefna, sveigjanleiki/snerpa og
heiðarleiki
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Lífeyrissjóðirnir eru vissulega áhrifamiklir
á sumum sviðum viðskiptalífsins – þá
ekki síst í skráðum félögum. Þetta er þó
nokkuð mismunandi eftir lífeyrissjóðum
og mér finnst mikilvægt að aðgreina sjóðina
en tala ekki um þá sem eina heild. Á
mörg um sviðum atvinnulífsins er ekki
að sjá mikil áhrif frá lífeyrissjóðum, t.d.
ferðaþjónustu, landbúnaði og sjávarútvegi,
með fáeinum undantekningum. Þetta eru
þó undirstöðuatvinnugreinar okkar. Mikil
vægast er þó hvernig þeir beita áhrif
um sínum, þ.e.a.s. að þeir misbeiti ekki
valdi og tryggt sé að farið sé eftir góðum
stjórnar háttum. Þá er einnig mikilvægt að
skýrt sé eftir hvaða leikreglum er spilað. Það
er mikil ábyrgð sem fylgir völdum.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu
sex mánuðum og/eða bæta við sig
starfsfólki?
Já, í því skyni að viðhalda eðlilegum vexti
– en ekki til að taka mikið stökk eða vaxa
gríðarlega.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Margir.
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Ég hefði ekkert á móti því en er ólíkt
mörgum öðrum nokkuð sátt við núverandi
fyrirkomulag. Getur verið ósköp þægi
legt að grípa með sér eina rauðvín í
matvörubúðum í föstudagsinnkaupum en
það væru eingöngu stærstu verslanirnar
sem gætu boðið upp á gott úrval, væri
erfiðara fyrir smærri verslanir.
„Undanfarið ár hefur almennt
einkennst af nokkrum stöðug leika
og hægfara bata merkjum sem eru
af hinu góða. Fjár fest ingar mættu
sem áður aukast meir, en góðir
hlutir gerast hægt.“
Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Norðlenska.
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?