Frjáls verslun - 01.08.2014, Blaðsíða 139
FRJÁLS VERSLUN 8-9 tbl. 014 139
Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova:
ErFitt Að ByggjA uPP í höFtuM
liv Bergþórsdóttir, forstjóri farsímafélagsins Nova.
Hvernig MEtA ÞAU stöðuna?
1. Hvar finnst þér hafa tekist best til í
viðskiptalífinu undanfarið ár?
Líklega hefur viðskiptalífinu tekist best til í
uppbyggingu ferðaþjónustu en sú starfsemi
hefur skipt sköpun í þróun efnahagslífsins
undanfarin ár. Það hefur verið unnið í því
að byggja upp traust á atvinnulífinu að
nýju og halda áfram eftir erfiðar aðstæður.
Það er ánægjulegt að atvinnulífið virðist að
nokkru leyti vera að taka við sér og fjár
fest ingar fara nú vaxandi í ýmsum greinum.
Bjartsýni er að aukast.
2. Hverjir eru helstu veikleikar íslensks
viðskiptalífs?
Við verðum að gera landið samkeppnis hæf
ara og taka þátt í því sem er að gerast úti í
heimi en ekki byggja upp lokað hagkerfi.
Það er áhyggjuefni að útflutningur er ekki
að aukast og hagvöxtur byggist á aukinni
einkaneyslu.
Hér á landi eru enn miklir erfiðleikar í
efnahagsumhverfinu sem gerir fyrirtækjum
erfitt fyrir, t.d. búa íslensk fyrirtæki við háa
vexti og mörg eru enn mikið skuldsett.
Óskilvirk stjórnsýsla og haftastefna, ein
angrun landsins í ljósi gjaldeyrishafta og fleiri
þættir vinna ekki með okkur til fram tíðar.
Það er ekki gott að fyrirtæki í landinu og
einstaklingar aðlagi sig þessu ástandi hafta.
3. Hvaða þrír lykilþættir í stjórnun finnst
þér mikilvægastir?
Ég held að það sé ekki alveg hægt að nefna
1, 2 og 3. Þetta er alltaf samspil endalaust
margra þátta. Stjórnandinn verður þó aldrei
betri en fólkið sem hann hefur í kring um sig,
skýr sýn, metnaður, gleði og allt hitt!
4. Finnst þér lífeyrissjóðir vera orðnir of
áhrifamiklir í viðskiptalífinu?
Já, það er stórt áhyggjuefni þegar þeir
eru farnir að selja og kaupa af sjálfum
sér. Þetta er eitt af því sem kallar á afnám
gjaldeyrishafta. Lífeyrissjóðirnir verða að
fá tækifæri til að ávaxta fé sitt erlendis.
5. Hyggst fyrirtæki þitt fjárfesta á næstu
sex mánuðum og/eða bæta við sig
starfsfólki?
Fjárfestingar ársins 2014 eru yfir 600 mkr.
hjá Nova, fyrst og fremst vegna öflugrar
uppbyggingar á 4Gfarsíma og netkerfi
fyrirtækisins.
Við höfum fjölgað stöðugildum um átta
það sem af er árinu og áætlum sambærilega
aukningu á næsta ári.
6. Einhver erlendur leiðtogi – lífs eða
liðinn – sem hefur hrifið þig vegna
stjórnkænsku?
Þeir eru auðvitað margir, t.d. Nelson
Mandela, sem var stórbrotinn. Hvernig
hann og Francois Pienaar, fyrirliði suður
afríska rugbyliðsins, nýttu íþróttina til að
sam eina þjóðina.
Myndin Invictus segir sögu þeirra og
hvernig þeir fóru að því að sameina heila
þjóð. Mandela fékk þjóðina til að horfa
fram á veginn í stað þess að festast í for
tíðarvanda.
7. Á að selja áfengi í matvörubúðum?
Já, ég er lítið fyrir boð og bönn. Vín er í
dag orðið hluti af matarmenningunni og
Íslendingar geta umgengist þessar vörur á
sama hátt og aðrar þjóðir.
„Það er ánægjulegt að atvinnulífið
virðist að nokkru leyti vera að taka
við sér og fjár fest ingar fara nú
vaxandi í ýmsum greinum.“