Víkurfréttir - 29.04.2010, Page 2
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR2
Stúlkurnar tvær sem
létust í bíl-
slysi í Reykja-
nesbæ á laug-
a rd a g h é tu
Unnur Lilja
Stefánsdótt-
ir, fædd 25.
ágúst 1991,
og Lena Mar-
grét Hinriksdóttir, fædd 8.
febrúar 1992.
Jeppabifreið hafnaði á ljósa-
staur og valt við Mánatorg
á laugardaginn og er öku-
maður hennar grunaður um
ölvun við akstur samkvæmt
því er fram kemur í frétta-
tilkynningu lögreglunnar á
Suðurnesjum vegna málsins.
„Laugardaginn 24.04.2010,
kl. 06:33, var lögreglan á
Suðurnesjum kvödd út vegna
umferðarslyss á Hringbraut í
Reykjanesbæ, skammt sunn-
an Mánatorgs. Ökumaður
jeppabifreiðar sem ekið hafði
verið norður Hringbraut
hafði misst stjórn á bifreið-
inni með þeim afleiðingum
að hún hafnaði á ljósastaur
norðan akbrautinnar og síð-
an utanvegar
sunnan veg-
arins þar sem
hún valt.
Fjórir voru í
bi f reiðinni,
p i l t u r s e m
ók og þrjár
stúlkur, allt
u n g m e n n i
1 8 - 1 9 á r a
gömul. Stúlkurnar þrjár
sem ekki virðast hafa verið
í bílbelti köstuðust út úr bif-
reiðinni en pilturinn sem ók
var í bílbelti. Stúlkurnar slös-
uðust allar mjög alvarlega og
voru fluttar á Landspítalann
og færðar á gjörgæsludeild.
Tvær stúlknanna létust að
kvöldi sunnudagsins 25.04.
en þriðju stúlkunni er enn
haldið sofandi í öndunarvél.
Pilturinn var fluttur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja
en reyndist lítið slasaður.
Hann er grunaður um ölvun
við akstur en öll höfðu ung-
mennin verið að skemmta
sér um nóttina. Lögreglan
á Suðurnesjum vinnur að
rannsókn málsins.“
Létust í umferðarslysi
í Reykjanesbæ
Unnur Lilja Stefánsdóttir
og Lena Margrét Hinriksdóttir.
Frá vettvangi umferðarslyssins við Mánatorg sl. laugardagsmorgun.
Kæru íbúar Suðurnesja!
Samfélag okkar hefur orðið fyrir miklu áfalli. Fjórar fjölskyldur og fjöldi vina og ættingja takast nú á við
djúpa sorg. Tvær ungar stúlkur látnar, ein alvarlega slösuð
og ungur piltur lítt slasaður en tekst á við þá sorg að hafa
ekið bifreiðinni. Það er eðlilegt að margar og mismunandi
tilfinningar fari um hugann. Doði, afneitun, reiði, samúð,
sektarkennd, depurð, skjálfti, hiti, kuldi og fleiri tilfinn-
ingar gera vart við sig. Sumar staldra lengi við, aðrar stutt.
Sumar koma aftur og aftur en aðrar kannski aldrei.
Nú skiptir máli að við styðjum hvert annað í gegnum þessa
sorg. Nauðsynlegt er að tala um tilfinningar sínar við ein-
hvern sem maður treystir. Fjölskylda og vinir eru oft besta
baklandið við þær aðstæður. Það er áfallahjálp, hjálp til að
vinna úr áfalli. Við prestarnir á svæðinu erum boðnir og bún-
ir til að aðstoða og leiðbeina ef þarf en ekkert kemur í staðinn
fyrir nærumhverfi hvers og eins. Trúin er gott haldreypi í
sorg eins og í gleði. Biðjum fyrir þeim sem sakna og syrgja.
Biðjum Guð að hugga og styrkja. Biðjum Guð að gefa okkur
hugrekki til að tjá tilfinningar okkar svo þær lokist ekki inni.
Það getur enginn borið sorgina fyrir þig en það geta margir
leitt þig áfram.
Í Útskálakirkju eru bænastundir á miðvikudagskvöldum kl.
20.00. Næstu miðvikudagskvöld verða bænastundirnar helg-
aðar þjónustu við þá sem vilja eiga samtals- og fyrirbænavett-
vang vegna slyssins. Guð geymi ykkur öll.
Sigurður Grétar Sigurðsson,
sóknarprestur í Útskálaprestakalli.
„Það er ekkert vitað á þess-
ari stundu hver framtíð SpKef
verður en ég get alla vega sagt
fyrir víst að starfsemi verður
hér áfram, þó ég geti ekki sagt
í hvaða mynd það verður,“
sagði Ásta Dís Óladóttir, for-
maður nýrrar stjórnar SpKef
sparisjóðs.
Kristján Gunnarsson fráfarandi
formaður stjórnar Sparisjóðs-
ins í Keflavík klökknaði í ræðu
sinni með starfsfólki sjóðsins sl.
mánudagsmorgun en fundurinn
var haldinn vegna yfirtöku rík-
isins á sjóðnum sem heitir nú
Spkef sparisjóður. Samningar
við kröfuhafa gengu ekki upp og
því skilaði Kristján inn starfsleyfi
Sparisjóðsins til Fjármálaeft-
irlitsins á sumardaginn fyrsta.
Stjórnarformaðurinn greindi
starfsfólki Sparisjóðsins frá
stöðu mála á fundi með þeim
á mánudagsmorgun og sagði
það ömurlegt að 102 ára sögu
þessarar stofnunar væri nú lok-
ið. Kristján þurfti að gera hlé á
ræðu sinni þar sem hann átti
erfitt með þessi erfiðu tíðindi.
Nokkir starfsmenn brotnuðu
niður á fundinum en öðrum
létti því erfiðri björgunarsögu
er lokið og nýtt upphaf handan
hornsins. Undir það tók Guðný
Bachmann, starfsmannastjóri
þegar hún gekk með konfekt-
skálar til að bjóða með kaffinu.
Fáir viðskiptavinir voru í Spari-
sjóðnum í Keflavík þegar VF
leit þar við en þó nokkrir, flest-
ir furðu jákvæðir. Þó ekki allir.
Einn þeirra sagði að þetta væri
ömurleg staða eftir hundrað ár
fyrir peningastofnun sem hefði
verið lífæð Suðurnesja. „Það
hlýtur að verða uppstokkun,“
sagði hann.
„Erfiðasti þáttur í svona yfirtök-
um er mannlegi þátturinn gagn-
vart starfsfólkinu sem margt
hefur unnið hér í tugi ára. Fólkið
tók þessu með miklu æðruleysi.
Það hjálpaði eflaust til að starfs-
fólk var ekki eins sjokkerað að
við náðum að hafa samband við
alla daginn fyrir fundinn. Ég
held að það sé í fyrsta skipti í
öllum bankayfirtökum sem það
hefur náðst,“ sagði Ásta Dís.
Það vekur athygli í fréttatil-
kynningu Fjármálaeftirlitsins að
við yfirtöku SpKef og Byrs er
síðarnefndi sjóðurinn með hf.
fyrir aftan nafnið. Það eiga for-
ráðamenn ríkisins eflaust eftir
að útskýra en ekki er ólíklegt í
ljósi þess að Byr hf. verði seld-
ur en SpKef sparisjóður (eins
og hann er nefndur hjá FME)
verði hryggjarstykki í stofnun
nýs sparisjóðasambands. Í þeirri
björgunarvinnu sem staðið hef-
ur yfir vegna erfiðrar stöðu hjá
SpKef og Byr undanfarið hefur
verið horft mikið til allsherjar
sameiningar sparisjóðanna með
Byr og SpKef sem lang stærstu
aðila þar inni. Samkvæmt lög-
um um sparisjóði geta þeir ekki
verið hlutafélög og því velta
menn því nú fyrir sér hvað rík-
inu gangi til með þessari óvæntu
hlutafélagsvæðingu Byrs. Þeir
sem VF hefur talað við telja þetta
lang líklegustu hugmyndina.
Talið er að nokkrir möguleikar
verði skoðaðir í framtíð Spkef. Í
fyrsta lagi að hann verði rekinn
í óbreyttri mynd. Í öðru lagi yf-
irtaki SpKef aðra sparisjóði og í
þriðja lagi verði hann yfirtekinn.
Síðan er spurningu ósvarað um
það hvort ríkið ætli sér að eiga
SpKef en ríkið á sem kunnugt
er Landsbanka Íslands. Einhver
samlegðaráhrif gætu legið þar.
Ásta Dís sagði að verið væri að
ræða við yfirmenn og stjórnend-
ur SpKef um framtíð þeirra en
engin breyting yrði hjá almenn-
um starfsmönnum SpKef.
- en ekki vitað í hvaða mynd. Hugsanlega hryggjarstykki í nýju
sparisjóðasambandi. Stjórnarformaðurinn klökknaði.
Aldargamalli sögu Sparisjóðsins í Keflavík lokið:
SPKEF HELDUR ÁFRAM