Víkurfréttir - 29.04.2010, Blaðsíða 15
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 15VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 29. APRÍL 2010
www.heilsuhusid.is
Hringbraut 99 • Keflavík • Sími 578 5560
Opið: mánud. - föstud. 10 -18 og laugard. 10 -14
Ásdís Ragna
Einarsdóttir
grasalæknir
veitir ókeypis ráðgjöf
um mataræði og
bætiefnanotkun
í Heilsuhúsinu,
Hringbraut 99,
Reykjanesbæ
þriðjudaginn 4. maí
milli kl. 15.00 – 18.00.Þann 17. apríl var haldinn aðalfundur kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi. Þar voru lagðir fram reikningar Kjör-
dæmisfélagsins fyrir kosningaárið 2009. Niðurstaða reikn-
inganna voru rekstrarútgjöld upp á tæplega þrjár milljónir
króna. Lang stærsti kostnaðarliðurinn var auglýsingar og
skilti kr. 1.720.000. Kostnaður við fundi var um kr. 80.000 og
forvalið kostaði innan við kr. 200.000.
Framlög frá einstaklingum og fyrirtækjum voru aðeins kr.
307.000. 90% af tekjunum komu af opinberum styrkjum.
Kjördæmisfélagið er skuldlaust núna.
Þessi niðurstaða er umhugsunarverð þegar fréttir berast af
milljónastyrkjum til prófkjörsbaráttu einstakra þingmanna og
borgarfulltrúa frá ýmsum hagsmunaaðilum.
Ég skora á aðra stjórnmálaflokka að leggja fram samsvarandi
lykiltölur úr sínum ársreikningum fyrir kosningaárið 2009.
Þorsteinn Ólafsson gjaldkeri
Kjördæmisfélags VG í Suðurkjördæmi.
Þrátt fyrir erfiðan rekstur Reykja-neshafnar árið 2009 og skuldir
sem nema um 5 milljörðum króna,
mun eignastaða Reykjaneshafnar
styrkjast fljótt, að sögn Péturs Jó-
hannssonar hafnarstjóra.
Það byggir á því að virði lóðargjalda á óúthlutuðum lóðum í
Helguvík, samkvæmt gjaldskrá, er um 4 milljarðar kr. Þá er áætl-
að að tekjur eftir fimm ár vegna hafnargjalda, lóðarleigu og fast-
eignaskatta í Helguvík nemi um 500 milljónum kr. á hverju ári.
Áður var talið að aðeins hafnargjöld myndu greiða skuldir upp á
17 árum, en ef framangreint gengur eftir munu skuldirnar verða
greiddar upp mun hraðar.
Kosningabarátta VG í Suðurkjör-
dæmi kostaði þrjár milljónir
Góðar framtíðarhorfur
Reykjaneshafnar
RAÐAuglýsingAR?
- auglýsingadeild Víkurfrétta er í síma 421 0001 / gunnar@vf.is