Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.04.2010, Side 24

Víkurfréttir - 29.04.2010, Side 24
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR24 Skólamál á Suðurnesjum Kosningaskrifstofa VG í Reykjanesbæ Opnar 1. maí kl. 14:00, pylsur og drykkir fyrir gesti og gangandi Atli Gíslason, þingmaður Suðurkjördæmis, verður á staðnum ásamt frambjóðendum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður alla velkomna á kosningaskrifstofu framboðsins að Hafnagötu 36a, við hliðina á Paddys.   Málefnastofur, 3.- 5. maí frá kl. 16:30. Mánudaginn, 3. maí, atvinnumál og umhverfismál Þriðjudaginn, 4. maí, velferðarmál Miðvikudaginn, 5. maí, lýðræðismál Niðurstöður samræmdra prófa í 10. bekk sl. haust hafa verið til um- fjöllunar að undanförnu. Samræmd könnunarpróf eru vissulega einn þáttur af mati á skólum en hann er aðeins einn þáttur og sjaldan er fjallað um mat á öðrum þáttum skólastarfsins. Við skoð- un á niðurstöðum samræmdra prófa í 10. bekk sl. haust þarf að hafa í huga að stuttu fyrir prófin í haust kom tilkynn- ing um það frá menntamálaráðuneyt- inu að: „Þeir nemendur sem hafa lokið grunnskólanámi í íslensku, stærðfræði eða ensku og stunda nú nám í fram- haldsskólaáfanga í viðkomandi grein, geta valið hvort þeir taka samræmd könnunarpróf í þeirri grein eða ekki.“ Í Njarðvíkurskóla var þarna um þó nokkra nemendur að ræða sem ákváðu að þreyta ekki prófin þrátt fyrir hvatn- ingu frá kennurum. Við viljum nota þetta tækifæri og hvetja nemendur til að taka þessi próf alvarlega og sýna þannig hvað í þeim býr og foreldra þeirra til að leggja þeim lið við undirbúning fyrir þau. En niðurstöður samræmdra prófa í tveim- ur til þremur námsgreinum getur aldrei gefið heildarmynd og dregið nemendur í dilka sem góða eða slæma nemendur. Þrír skólar í Reykjanesbæ hafa á undan- förnum árum lagt mikla áherslu á stuðn- ing við jákvæða hegðun (PBS) þar sem gildi eins og virðing, ábyrgð, vinsemd, virkni, ánægja, jafnrétti og árangur eru kennd og æfð með nemendum. Meistara- nemar í félagsfræðum við HÍ mæla verk- efnið og eru vísbendingar um að við séum að ná góðum árangri. Vonandi verða nið- urstöður þessara mælinga teknar til um- fjöllunar í fjölmiðlum og hjá yfirvöldum og vekja jafnmikla athygli og niðurstöður samræmdra prófa. Í ljósi alls þess sem að undanförnu hefur gengið á í samfélagi okkar þá skiptir mannrækt miklu máli í menntun barna og unglinga, það skiptir máli hvernig manneskjur við erum og hvernig samskipti og framkomu við temj- um okkur. Við erum er stoltir skólastjórnendur. Nemendur okkar hafa staðið sig frábær- lega á þessu skólaári í mörgum grein- um. Þeir unnu spurningakeppni grunn- skólanna, Gettu ennþá betur, stóðu sig frábærlega í Mælsku- og rökræðukeppni grunnskóla Reykjanesbæjar og Fjörheima, og mikill metnaður var hjá nemendum sem tóku þátt í Skólahreystikeppninni í ár. Við eigum afreksfólk í íþróttum m.a. Íslandsmeistara í körfubolta í 10. flokki drengja, drengir sem eru til fyrirmyndar í samskiptum, ástundun náms og fram- komu hvar sem þeir koma. Á föstudaginn fylgdist ég með skemmtun í Stapa þar sem nemendur grunnskólanna í Reykjanesbæ sýndu brot af því besta frá árshátíðum skólanna í vor. Greinilegt er að mikill metnaður og vinna er lögð í þessi atriði krakkanna. Gaman var að sjá nemendur hins nýja skóla á Ásbrú, Háa- leitisskóla, taka þátt í skemmtuninni og þeir stóðu sig með prýði eins og allir sem þarna komu fram. Þá má nefna afrakstur vinnu nemenda í verk- og listgreinum sem eru til sýnis um allan bæ á Barnahá- tíðinni og lýsir fagmennsku í kennslu þessara greina í skólunum. Við þurfum að styðja og hvetja börnin okkar, kynda undir heilbrigðum metnaði í námi, standa saman um að efla skólana og vekja athygli á því sem vel er gert í skóla- starfi hvers skóla. Lára Guðmundsdóttir, skólastjóri Njarðvíkurskóla/Háaleitisskóla Ásgerður Þorgeirsdóttir, aðstoðarskólastjóri Njarðvíkurskóla/Háaleitisskóla FRÉTTIR Góðir nemendur / samræmd próf Frá stjórnendum Njarðvíkurskóla og Háaleitisskóla í Reykjanesbæ Fræðslufundur um mikilvægi hreyfingar Félag nýrnasjúkra, Parkinsonsamtökin á Íslandi og Samtök syk- ursjúkra halda sameig- inlegan fræðslufund um mikilvægi hreyfingar og þjálfunar fyrir langveika í kvöld, fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00. Fund- urinn er öllum opinn og hvetja félögin alla félagsmenn til að mæta og taka með sér gesti. Bein útsending verður frá fundinum í Heiðarskóla í Keflavík þar sem hægt verður að fylgjast með honum á sýningartjaldi. Fyrirlesarar eru: Ólafur Skúli Indr- iðason, nýrnalæknir Jóna Hildur Bjarnadóttir, íþróttafræðingur hjá ÍSÍ Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.