Víkurfréttir - 29.04.2010, Page 28
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR28
VEL LUKKUÐ BARNAHÁTÍÐ Í REYKJANESBÆ
Fuglarnir fá þak yfir höfuðið
Nemendur í leikskólunum Akri og Holti og Akurskóla gengu
fylktu liði að tjörnunum í Innri Njarðvík en þar tóku þau þátt
í formlegri vígslu á nýjum fuglahúsum sem komið hefur verið
fyrir í hólmunum við tjarnirnar fuglunum og jafnframt börn-
um og fjölskyldum þeirra til ánægju og yndisauka. Krakk-
arnir sungu sumarlög í tilefni dagsins en vígsla fuglahúsanna
var liður í dagskrá Barnahátíðar í Reykanesbæ. Nú verður
fróðlegt að sjá hvað fuglunum við tjarnirnar finnst um þetta
nýja húsnæði en nemendurnir munu fylgjast vel með því í
framtíðinni.
Mikilvægt að gefa börnum færi á návist við dýrin
Svipmyndir frá barnahátíð í Reykjanesbæ - sjá einnig á vef Víkurfrétta, vf.is
„Það er mikilvægt að gefa
börnum færi á návist við dýr-
in, sérlega ungviðið. Þetta
er einn að þeim þáttum sem
mun framvegis gera lífið
litríkara hér í Reykjanesbæ“
segir Árni Sigfússon bæj-
arstjóri í tilefni af því að
litlum húsdýragarði hefur
verið komið upp í Víkinga-
heimum í Innri Njarðvík.
Kálfar, lömb, kiðlingar, land-
námshænur, geitur og kanínur
eru komnar í garðinn. Garð-
urinn opnaði sl. laugardag og
verður opinn framvegis frá
sumarbyrjun og fram á haust.
Börnin kunnu strax vel að
meta ungviði landnámsdýr-
anna eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum sem teknar
voru á barnahátíð í Reykja-
nesbæ.
Listahátíð barna stendur nú yfir í DUUS-
húsum í Reykjanesbæ en hátíðin opnaði
samhliða Barnahátíðinni í Reykjanesbæ.
Leikskólabörn fjölmenntu á setningu hátíð-
arinnar og voru við opnun sýningar um
hafið sem leikskólabörn í Reykjanesbæ
hafa unnið að á undanförnum vikum.
Ljósmyndir: Ellert Grétarsson
Sýningin um hafið í Listasafni Reykjanesbæjar.
Ljósmyndir: Ellert Grétarsson og Sölvi Logason