Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2008, Page 27
VÍSINDAÞING SKÍ/SGLÍ
FYLGIRIT 55
Ályktanir: Brottnám á miðblaði er örugg meðferð við miðblaðs-
heilkenni og fylgikvillar eftir aðgerð oftast minniháttar. Enda
þótt efniviður í þessari rannsókn sé lítill og samanburðarhópur
ekki til staðar, þá virðast flestir af sjúklingunum ná bót á ein-
kennum sínum eftir að miðblaðið er fjarlægt og langtímalífs-
horfur eru ágætar.
V-14 Notkun gervilunga við alvariegri öndunarbilun á
grunni lungnablæðinga vegna smáæðabólgu
Unnur Cuðjónsdóttir', Guðmundur Klemenzson1, Runólfur Pálsson2,
Bjami Torfason3, Aðalbjöm Þorsteinsson1
‘Svæfinga- og gjörgæsludeild, 2nýmalækningadeild, 3hjarta- og lungna-
skurðdeild Landspítala
unnurg@hotmail. com
Inngangur: Notkun gervilunga við alvarlegri öndunarbilun hjá
fullorðnum fer vaxandi. Ávinningur var lengi vel óviss. Betri
tækjabúnaður og markvissari ábendingar hafa bætt árangur
meðferðar. Við greinum frá 19 ára gamalli stúlku með dreifðar
blæðingar í lungum af völdum ANCA (anti-neutrophilic cyto-
plasmic antibody) -jákvæðrar smáæðabólgu sem meðhöndluð
var með góðum árangri.
Tilfelli: Nítján ára stúlka með tveggja vikna sögu um hita,
slappleika og útbrot auk loftvegaeinkenna. Versnar snögglega
innlagnardag með aukinni mæði og blóðhósta. Við komu er
slagæðamettun (SaO,) 94% og hlutþrýstingur súrefnis í slag-
æðablóði (Pa02) 71 mmHg með 15 L O, í sarpmaska. Dreifðar
íferðir í lungum á röntgenmynd. Þvagskoðun sýnir merki um
gauklablóðmigu. Öndunarbilunin versnar hratt og komin á
hátíðniöndunarvél 5 tímum eftir komu. Þrátt fyrir það er hlut-
fall Pa02 á móti hlutfalli súrefnis í innöndunarlofti (Pa02/FI02)
=86. Nær hvít lungu á röntgenmynd. Próf fyrir ANCA jákvætt
og hafin innleiðslumeðferð gegn smáæðabólgu með blóðvökva-
skiptum auk barkstera og cýklófosfamíðs í æð. Þremur dögum
síðar er Pa02/FI0, =50 og ákveðið að tengja sjúkling við gervi-
lunga (bláæð-bláæð). Notað var heparín-húðað kerfi og reynt að
halda virkum storkutíma (ACT) 160-200 sek. með smáskammta-
heparíni. Fer strax upp f Pa02/FI02 60 og SaO, 100%. Greiðlega
gekk að draga úr þrýstingsstuðningi og tveimur dögum síðar
dugði hefðbundin öndunarvél. Gervilungameðferð stöðvuð
eftir 8 daga og rúmum sólarhring síðar var sjúklingur komin af
öndunarvél. Fjórum mánuðum síðar er lungnastarfsemi orðin
svo til eðlileg.
Umræða: Til þessa hefur lungnablæðing verið talin frábending
gervilungameðferðar vegna blóðþynningar sem óhjákvæmilega
fylgir. Við héldum blóðþynningu í lágmarki og ekki varð vart
við auknar blæðingar. Mögulega hefur minni þrýstingsstuðn-
ingur á öndunarvél hindrað frekari skemmdir á lungunum og
þannig minnkað blæðingar.
V-15 Bráðaflokkun og áverkamat
Brynjólfur Mogensen’-3, Haraldur Briem2J
'Slysa- og bráðadeild Landspítala, 2landlæknisembættinu, 3læknadeild
Háskóla íslands
brynmog@landspitali.is
Inngangur: í slysum, hópveikindum, hryðjuverkum, stríði
og hamförum eru skjót og markviss viðbrögð samfélagsins
nauðsynleg þegar margir slasast eða veikjast. Það verður m.a. að
bráðaflokka hina slösuðu eða veiku og gera nánara áverkamat
ef nauðsyn krefur. Líflæknir Napóleons, Baron Dominique Jean
Larrey, innleiddi bráðaflokktmina til þess að flokka þá sem voru
lítið slasaðir frá þeim sem voru mikið særðir. Markmiðið var að
koma lítið særðum sem fyrst aftur á vígvöllinn. Bráðaflokkunin
hefur síðan verið í stöðugri þróun. Flokkunarkerfið fyrir slasaða
og veika verður að vera heildstætt, einfalt, fljótlegt og áreiðan-
legt. Sérmerkingar eru nauðsynlegar fyrir eiturefni, smithættu
og geislun m.a. til að fyrirbyggja smitun, auðvelda hreinsun
og bæta meðferð. Markmiðið í dag er að koma þeim sem hafa
mestu áverkana sem fyrst í meðferð til þess að auka lifun og
minnka örkuml.
Efniviður og aðferðir: Undanfarin misseri hefur verið unnið að
því að taka í notkun einfalt en áreiðanlegt bráðaflokkunarkerfi
fyrir slasaða á íslandi sem heilbrigðisstarfsmenn og aðrir vel
þjálfaðir geta notað þegar á reynir. Á vettvangi eru viðmiðin í
bráðaflokkun: Göngugeta, öndun, öndunartíðni, púls og með-
vitund.
Læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraflutningsaðilar, lögregla og
björgunarsveitir eiga að geta framkvæmt bráðaflokkunina. Á
söfnunarsvæði slasaðra er áverkamatið nákvæmara og byggir
m.a. á Glasgow coma scale, öndunartíðni og blóðþrýstingi
ásamt nákvæmri líkamsskoðun. Læknar og hjúkrunarfræðingar
gera yfirleitt áverkamatið. Sérmerkingar fyrir eiturefni, lífrænt
eitur eða sýklavá og geislun eru hluti af bráðaflokkuninni.
Sérmerkingar eru eingöngu notaðar ef grunur er um slíka vá.
Umræða: í endurskipulagningu á bráðaflokkun vegna slysa,
hópveikinda hryðjuverka, stríðs og hamfara er m.a. verið að
taka í notkun nýja bráðaflokkun, áverkamat og sérmerkingar
vegna eiturefna, smithættu og geislun. Matið á hinum slösuðu á
að taka skamman tíma. Þjónustan við hina slösuðu verður mark-
vissari og áreiðanlegri. Bráðaflokkun er líka hægt að nota dags-
daglega þótt um fá slasaða sé að ræða. Bráðaflokkunarkerfið
verður tekið í notkun á vormánuðum 2008.
V-16 Serum-lipid predictors of hemodynamic instability
after noncoronary heart surgery with cardiopulmonary
bypass
Petru Liuba', Tomas Gudbjartsson2, Sune Johansson3
’Departments of paediatric cardiology and 3paediatric cardiac surgery,
Lund University Hospital, Lund, Sweden, 2Department of cardiothoracic
surgery, Landspitali - University Hospital, Reykjavik, Iceland
tomasgud@landspitali. is
Background: Hemodynamic instability in the early postop-
erative phase after open heart surgery is related to the use of
LÆKNAblaðið 2008/94 27