Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Síða 10
föstudagur 4. júlí 200810 Helgarblað DV Davíð Oddsson, formaður banka- stjórnar Seðlabanka Íslands, seg- ist skilja óánægju almennings með viðbrögð ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans, við versnandi efna- hagsástandi í landinu. Blaðamanna- fundur var haldin í Seðlabankanum í gær, þar sem bankastjórnin færði rök fyrir ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum óbreyttum um sinn, eða í 15,5 prósentum. Davíð var spurð- ur á fundinum út í niðurstöðu nýrr- ar könnunar þar sem fram kom að sjö af hverjum tíu eru óánægðir með viðbrögð Seðlabankans. „Var það ekki enn meira?“ svaraði Davíð að bragði. „Ég held að átta prósent að- spurðra hafi verið ánægð með við- brögðin og ég sé ekkert athugavert við það.“ Hann segir sjálfur að ef hann hefði verið spurður þessarar spurningar hefði hann verið í hópi þeirra rúmlega 90 prósenta sem eru ekki ánægð með þann árangur sem Seðlabankinn hefur náð. Hann benti þó á að menn skyldu spyrja að leiks- lokum. Slæmar horfur Á vaxtaákvörðunarfundinum í gær kom fram að Seðlabankinn telji mik- ilvægt að auka traust á fjármálakerfið og tryggja virkni markaða. Peninga- stefna bankans snúist um að byggja upp traust sem tekur langan tíma að festa í sessi. Brýnasta viðfangsefnið er að ná tökum á verðbólgunni, sem rokið hefur upp á þessu ári. Á meðan það er gert muni draga úr kaupmætti á landinu. Samdráttur er óumflýj- anlegur en takist það vel upp sem Seðlabankinn leggur upp með, mun það flýta fyrir lækkun stýrirvaxta og efnahagsbata. Verðbólga hefur verið langt um- fram spár síðustu þrjá mánuði og í júní mældist hún 12,7 prósent eða um fjórum prósentum meiri en í mars. Miðað við fyrstu verðbólgu- spár ársins, hafa horfurnar versnað verulega. Spár Seðlabankans ganga út á að verðbólga lækki á næstunni en samkvæmt svartsýnustu útreikn- ingum bankans gæti hún farið í allt að átján prósent. Davíð var spurður hvað hann vildi segja við þá sem telja að hann væri kominn góða leið með að eyðileggja efnahagslífið hér á landi. „Ég held að fólk eigi ekki að persónugera hlut- ina. Mér finnst að ég sé töluvert fyrir- ferðarmikill í hausnum á sumum og ég skil það ekki. Ég hef sagt það áður að sumir menn séu með mig á heil- anum og ég held að það sé voðalega óhollt,“ sagði Davíð. Bjartsýnn sem fyrr Seðlabankinn er sem fyrr bjart- sýnn á að verðbólgumarkmiðin um 2,5 prósenta verðbólgu muni nást á næstu tveimur árum. Spár gera áfram ráð fyrir hárri verðbólgu og gæti mögulega farið upp í tæp 17 prósent, samkvæmt svartsýnustu spám. Þess má geta að verðbólgan hefur á síð- ustu mánuðum hækkað umfram það sem svartsýnustu spár gerðu ráð fyr- ir. Um mitt næsta ár mun verðbólgan byrja að hjaðna hratt og í árslok 2010 gerir Seðlabankinn ráð fyrir því að verðbólgumarkmiðum verði náð með því að lækka stýrivexti síðar. Mikið var spurt um stöðu íslensku krónunnar á fundinum í gær og var Davíð inntur eftir viðbrögðum um orð formanns Samtaka atvinnulífsins að krónan væri búið spil. Svar Davíðs var stutt: „Ég veit ekki hvaða spil hann er að spila.“ Hann sagði jafnframt að engar niðurstöður lægju fyrir um það hvort bankarnir hefðu haft áhrif á hið mikla gengisfall krónunnar, þó vissulega væri athyglisvert að gengi krónunn- ar hefði fallið hratt skömmu áður en ársfjórðungsuppgjör bankanna voru kynnt. Spurður um hvort hann tæki undir hugmyndir Geirs Haarde, sem útilokar ekki upptöku bandaríkjadoll- ara hér á landi, svaraði Davíð: „Þetta hefur ekki komið sérstaklega á okkar borð en ég hef þá meginskoðun að forsætisráðherra tali af miklu viti. Ég er í klúbbnum.“ Svar Davíðs var stutt: „Ég veit ekki hvaða spil hann er að spila.“ valGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valur@dv.is ÁFRAM VERÐBÓLGA Stýrivextir verða óbreyttir og verðbólgan mun ekki hjaðna fyrr en um mitt næsta ár. Davíð Oddsson, bankastjóri Seðlabankans, segist skilja að almenn- ingur í landinu sé ósáttur við viðbrögð ríkisstjórn- arinnar og Seðlabankans við versnandi efnahags- ástandi. Samdráttur og minnkandi kaupmáttur eru óhjákvæmilegir fylgifiskar þeirra aðgerða sem hafa það að markmiði að ná tökum á efnahagsástandinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.