Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Page 16
föstudagur 4. júlí 200816 Helgarblað DV
Ísland smæsta útibú VÍtisenglanna
Ísland verður smæsta útibú Vítisenglanna í heiminum fái Fáfnir MC formlega inngöngu í samtökin. Svo virð-
ist sem Vítisenglarnir verði að veruleika hér á landi. Alríkislögreglan í Bandaríkjunum kallar þá útlaga á
meðan kanadísk yfirvöld segja þá alþjóðleg glæpasamtök. Vítisenglarnir hafa einu sinni teki þátt í gengja-
stríði á Norðurlöndum en þá var flugskeyti skotið inn í vistarverur Vítisenglanna.
Greiningardeild ríkislögreglustjórans
óttast þau og nágrannaþjóðir okkar
vakta þau eins og haukar; Hells Ang-
els eru kölluð alþjóðleg glæpasam-
tök á Íslandi. Foringi Vítisenglanna
í Noregi, Leif Ivar Kristiansen, neitar
þeim ásökunum og segir þá vera fjöl-
skyldumenn. Vítisenglarnir skráðu
sig heldur betur á spjöld sögunnar
á Norðurlöndum í upphafi tíunda
áratugarins þegar þeir háðu blóð-
ugt gengjastríð við Banditos í Dan-
mörku. Stríðið snérist um fíkniefna-
markaðinn á Norðurlöndum. Ellefu
manns létust í átökunum, þar á með-
al foringi Banditos. Núna vilja félagar
í Fáfni MC gerast meðlimir. Þeir eru
enn „hangarounds“, en komist þeir
inn í samtökin verður Ísland minnsti
armur Vítisenglanna í veröldinni.
Ísrael og Vítisenglar
Ársins 1948 verður ekki aðeins
minnst fyrir þau merkilegu tíðindi
að Ísraelsríki var stofnað, heldur
voru hin goðsagnakenndu samtök
Vítisenglanna stofnuð sama ár. Það
var í Fontana í Kaliforníu sem vél-
hjólasamtökin Hells Angels voru
stofnuð upphaflega. Samkvæmt vef-
síðu samtakanna var það fyrrverandi
flugmaður þeirrar sveitar og vinur
eins stofnfélaganna sem stakk upp á
nafninu.
Verulegs misræmis hefur gætt í
frásögnum af upphafsárum sam-
takanna og að sögn Ralphs Barger,
stofnfélaga Oakland-deildarinn-
ar, voru einar fyrstu deildir sam-
takanna stofnaðar í San Franc-
isco, Gardena, Fontana og víðar
sem sjálfstæðar deildir og höfðu
meðlimir þeirra jafnvel enga
vitneskju um að aðrar deildir
væru til. Núna eru starfandi fleiri
en hundrað deildir Vítisengla, í
tuttugu og níu löndum, en árið
1961 var á Nýja-Sjálandi stofnuð
opinberlega fyrsta deildin utan
Bandaríkjanna. Fyrsta deildin í
Evrópu var stofnuð á Englandi árið
1969 í kjölfar þess að Bítlarnir buðu
nokkrum meðlima Vítisenglanna í
San Francisco til London.
Opin öllum nema þeldökk-
um
Að verða fullgildur meðlimur
Vítisenglanna er langt og tíma-
frekt ferli, en samtökin eru ekki öll-
um opin. Samkvæmt heimildum
dómsmálaráðuneytis Banda-
ríkjanna þarf sá sem æskir að-
ildar að vera hvítur eða af
rómönskum eða asískum
uppruna, vera tuttugu og
eins árs eða eldri og eiga
Harley Davidson-mót-
orhjól. Blökkumenn
eiga ekki möguleika
á að verða félag-
ar og samkvæmt
skjali sem not-
að var í dóms-
máli í Kanada
eru reglur þar
að lútandi
mjög strang-
ar. Í skjalinu
kemur fram
að Oshawa-
deildin hafi
leyft blökku-
manni að
verða stuðn-
ingsaðili,
en þegar
sú vitneskja barst yfirstjórn samtak-
anna til eyrna varð að reka hann á
brott, því aðild hans braut í bága við
alþjóðareglur samtakanna.
Fjölskyldusamtökin Vítisenglar
Samtökin hafa verið til á Norður-
löndum í talsverðan tíma en það var
ekki fyrr en 1992 sem þau voru stofn-
uð í Noregi. Foringi þeirra þar er Leif
Ivar Kristiansen. Hann hefur tekið
Fáfnismenn undir sinn verndarvæng
og aðstoðar þá við umsóknarferlið til
þess að verða hluti af englunum al-
ræmdu. Sjálfur sagði Leif í viðtali við
DV í gær að stjórnvöld þyrftu ekk-
ert að óttast; samtökin gengju út á
að keyra á Harley Davidson-hjólinu
sínu. „Íslensk stjórnvöld þurfa ekki
að óttast okkur,“ sagði hann.
Leif hefur engu að síður verið
handtek- inn fimm
sinn-
um. Eitt skiptið var hann handtekinn
og hnepptur í gæsluvarðhald fyrir til-
raun til þess að smygla 350 kílóum af
hassi frá Danmörku til Noregs. Hann
var fyrst dæmdur í níu ára fangelsi
fyrir glæpinn, síðar var hann sýknað-
ur af hæstarétti þar í landi.
Blóðugt stríð á Norðurlöndum
Vítisenglarnir urðu fyrst al-
ræmdir á Norðurlöndum eftir
að þeir háðu blóðugt stríð við
Banditos en bæði gengin
eru skilgreind sem glæpa-
samtök. Ástæðan fyrir
átökunum var barátta
um fíkniefnamarkað-
inn í Danmörku. Ellefu
manns fórust í stríð-
inu en meðal annars
áttu þeir í skotbar-
dögum á götum úti
fyrir utan Kastrup,
alþjóðaflugvöll
Danmerkur.
Stríðið náði
hámarki
þegar
liðs-
maður Banditos
skaut flugskeyti
inn í félagsheim-
ili englanna við
Nörrebro í Dan-
mörku. Mildi var
að enginn lést en
árásin var tákn um
alvarleika stríðs-
ins. Gengin voru vel
vopnuð og tilbúin
að skaða hvert annað
með öllum tiltækum
ráðum. Að lokum eiga
Vítisenglarnir að hafa
myrt leiðtoga Banditos og
þar með lauk stríðinu.
Útlagar undir eftirliti
Greiningardeild ríkislög-
reglustjórans lítur á
tengsl Fáfn-
is við
Valur grettissON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Vítisenglarnir urðu
fyrst alræmdir á Norð-
urlöndum eftir að þeir
háðu blóðugt stríð við
Banditos en bæði geng-
in eru skilgreind sem
glæpasamtök.“
Foringinn leif ívar Kristiansen
er grjótharður Vítisengill. Hann
segir stjórnvöld hér á landi hafa
ekkert að óttast.