Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Side 24
föstudagur 4. júlí 200822 Menning DV Mýs og menn í kilju Bókaforlagið Veröld hefur gefið út í kilju skáldsöguna Mýs og menn eftir nóbelsskáldið John Steinbeck í sígildri þýð- ingu Ólafs Jóhanns Sigurðs- sonar. Sögunni fylgir formáli eftir Einar Kárason. Mýs og menn fjallar um farandverka- mennina Georg og Lenna og draum þeirra um að eignast jarðarskika með svolitlu húsi. Þeir ráða sig á stóran búgarð og draumurinn virðist loksins ætla að rætast, en þá breytist allt. Mýs og menn er einhver kunnasta skáldsaga 20. aldar og hefur hún fengið einróma lof um víða veröld. Hún hefur ekki áður komið út í kilju á íslensku. Sagan hefur margsinnis verið kvikmynduð og sett á svið. Namita Kapoor opnar sýningu í Gel galleríi á laugardaginn: Freyðandi gleði Bandaríski listmálarinn Namita Kapoor opnar sýninguna Effervescent delights, eða Freyðandi gleði, í Gel galleríi á Hverfisgötu 37 á laugardag- inn klukkan 20. Þetta er fyrsta einka- sýningin sem Namita heldur utan Bandaríkjanna en þar í landi hefur hún með- al annars sýnt í Chelsea Art Museum í New York, Pro Arts Gallery í Oakland og tekið þátt í samsýningum víða um Bandaríkin. Á sýningunni má sjá valin verk úr stærri seríu sem ber sama titil og sýn- ingin. Verkin eru unnin á striga með blandaðri tækni þar sem listamaður- inn íhugar bakgrunn sinn sem Suð- austurasíubúi uppalinn í Bandaríkj- unum. Á milli ýmissa indverskra efna, svo sem sari-kjóla, hringlaga spegla og henna-húðflúrs, liggur þykkt lag olíu- og akríllita sem svo blandast úr- klippum úr blöðum og auglýsingum, sóttar í „kitschy“ indverskar teikni- myndasögur og amerísk poppíkon. Namita er af suðausturasískum ættum, fædd og uppalin í San Franc- isco. Hún er útskrifuð úr UCLA með BA-gráðu í World Art and Cultures og hefur þar að auki stundað nám í myndlist í Flórens á Ítalíu. Síðan Namita útskrifaðist hefur hún unnið með ýmsum leikhús- og danshópum, til dæmis á Broadway-sýningunni Bombay Dreams sem farið var með um gjörvöll Bandaríkin. Þá dansar hún í næstu mynd Mikes Myers, The Love Guru. Ný bók Ing- unnar Snæ- dal Í fjarveru trjáa – vega- ljóð heitir ný ljóðabók eftir Ingunni Snædal. Bók hennar Guð- lausir menn – hugleiðing- ar um jökul- vatn og ást kom út hjá Bjarti árið 2006, hlaut bókmenntaverð- laun Tómasar Guðmundssonar, var tilnefnd til Íslensku bók- menntaverðlaunanna og heill- aði bæði ljóðelska og þá sem ókunnugri eru ljóðum. Hún hefur verið prentuð fimm sinn- um. Í þessari nýju bók ferðast skáldið um landið vítt og breitt, sagt frá nýjum Flóabardaga, topp tíu sólsetrum og bæjar- nöfnum, hamingjublettum og vestfirskum ævintýrum. Hornstranda- bók fáanleg á ný Ferðahandbókin Horn- strandir: Gengið um eyðibyggðir frá Snæfjallaströnd til Ingólfs- fjarðar eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson er nú fáanleg á ný eftir að hafa verið uppseld um tíma. Bókin er ómetanlegt hjálpartæki fyrir þá sem vilja ferðast á eigin vegum um Hornstrandir. Í henni er fjall- að um allar helstu gönguleiðirn- ar á svæðinu, jafnt þær vinsælustu sem minna þekktu, og farið yfir öll þau atriði sem tengjast undirbúningi ferðar um svæðið. Skáldsagan On the Road eftir Jack Kerouac kom fyrst út í Bandaríkj- unum árið 1957 og hefur engin bók þótt lýsa betur rótleysi kynslóðar- innar sem ólst upp eftir seinna stríð. Í grunninn fjallar hún um ferðalag Kerouacs um vegi og víðáttur Am- eríku í kringum miðja tuttugustu öldina. Andrúmsloftið í sögunni er forboði þess æsilega glundroða sem áratug eftir útkomu bókarinn- ar setti mark sitt á öll Vesturlönd. Nú er þessi einstaka saga talin meðal helstu verka amerískra nútímabók- mennta og Kerouac skipað á bekk með fremstu rithöfundum þjóðar sinnar. Ólafur Gunnarsson segir það mjög góða tilfinningu að sjá þýðingu sína á On the Road koma út að nýju í kilju, nú tuttugu árum eftir að hún kom fyrst út undir nafninu Á vegum úti. „Ég hafði nú reyndar oft reynt að fá menn til að setja bókina í kilju. Það kom til tals í kringum árið 2000, en þá byrjuðu sviptingar í útgáfuheim- inum og þetta hefur því tafist. En nú er hún sem sagt komin, og það er al- veg prýðilegt því hún hefur ekki verið fáanleg í tíu, tólf ár held ég.“ Fólk fer að spyrja um bókina Bíthátíðin sem Ólafur hélt á heim- ili sínu í vor og sagt var frá í fjölmiðl- um skipti líka ákveðnum sköpum um það að bókin var endurútgefin. „Þá komust bítskáldin, og sérstak- lega þetta höfðuðverk þessarar kyn- slóðar, inn í umræðuna. Ég held að það hafi ýtt undir að bókin kemur nú í kilju að fólk fór í framhaldinu að spyrjast fyrir um hana. Ég heyrði það líka á fornbókasölum að það var mikið um hana spurt.“ Að sögn Ólafs hentaði líka vel að Forlagið hefur nýverið sett á laggirn- ar ritröð sem kallast erlend klassík. Bókin hafi fallið vel inn í hana, það stórvirki sem hún sé. „Ég hef alltaf vitað að hún er klassík. Mér fannst því sjálfsagt að hún lenti þar,“ segir hann og kímir. Þýðingin sem nú kemur út er nákvæmlega eins og hún var 1988. Engu orði hnikað til. „Það er í raun- inni ágætt vegna þess að ég þýddi hana eins og ég reikna með að Ker- ouac hefði sjálfur þýtt bók, hefði hann á annað borð verið þýðandi,“ segir Ólafur. „Ég þýddi hana í geysilega miklu stuði. Ég las hana fyrst og fékk svo nokkurs konar sýn af því hvernig bókin ætti að líta út á íslensku, frekar en að ég færi að þýða hana orð fyr- ir orð. Ég rúllaði henni því í raun yfir á ástkæra ylhýra í gífurlega mikilli hamingju og stuði. Það féll ágætlega undir þessa teoríu Kerouacs sjálfs sem hann kallaði „spontaneous prose“. Þessi ritstíll er undir svipuð- um áhrifum og við getum séð í mál- verkum hins mikla meistara, Jack- sons Pollock. Hann var drippmálari og Kerouac ákvað að skrifa þannig.“ Seldi handritið fyrir 500 dollara Kerouac, sem var fæddur árið 1922 í bænum Lowell í Massa- chusetts, byrjaði að semja sínar skáldsögur sem hefðbundinn höf- undur. Hans fyrsta bók, The Town and the City (1950), var samin undir áhrifum bandaríska rithöfundarins Thomas Wolfe. „Wolfe var í raun og veru megin- uppspretta bítkynslóðarinnar,“ út- skýrir Ólafur. „Hann er höfundurinn sem inspírerar Kerouac til að fara að skrifa. Stíll Wolfes, sem er kominn frá klassískum bókmenntum – Shake- speare, Biblíunni, Melville – er and- stæðan við stíl til dæmis Heming- ways. Á meðan Hemingway skrifar mjög hnitmiðaðan og knappan stíl er Wolfe kannski fyrsti höfundur- inn sem skrifar það sem nú er kall- að flæði. Þennan geysilega orkuríka og mælska stíl. Það er það sem hrífur Kerouac.“ Ólafur segir það í raun hafa ver- ið sér mjög auðvelt að þýða On the Road. „Ég fílaði bókina alveg í botn. Ég hafði líka lesið allan Wolfe fram og til baka, og ekki einungis allt sem hann hafði skrifað heldur allt um hann líka. Uppspretta okkar Ker- ouacs er því sú sama. Það var þar af leiðandi mikið skemmtiverk fyr- ir mig að þýða bókina. Mesti ham- ingjutíminn í mínu rithöfundastarfi held ég að hafi verið sumarið sem ég þýddi On the Road. Ég rúllaði þessu yfir á bókrollu, þótt ég hafi reyndar ekki verið með ritvél og samanlímda bókrollu eins og Kerouac. Svo átti ég auðvitað góða að ef ég þurfti upp- fræðslu um músíkheiti og annað.“ Mörgum árum eftir að Ólafur hafði snarað bókinni yfir á íslensku barst honum bréf frá bandarískum safnara. „Hann spurði hvort ég væri ekki þýðandi On the Road og sagð- ist vilja kaupa handritið að íslensku þýðingunni á fimm hundruð doll- ara. Ég átti það í kassa einhvers stað- ar og seldi honum það,“ segir Ólaf- ur og hlær. Þú hefur ekki viljað eiga handritið í ellinni? „Nei, ég var miklu hrifnari af því að fá fimm hundruð dollara fyrir það heldur en að hafa þetta uppi á háalofti einhvers stað- ar.“ Uppnuminn af Neal Cassady Eftir að The Town and the City var komin út kynnist Kerouac mörg- um þeirra sem seinna kölluðust bít- skáldin, þar á meðal Allen Ginsberg og William Burroughs. Einnig kynn- ist hann töffaranum, kvennabósan- um og smákrimmanum Neal Cass- ady. „Neal er fyrirmyndin að Dean Moriarty í On the Road,“ segir Ólaf- ur. „Þetta var ákaflega sérstæður og merkilegur maður. Ég sá það samt eiginlega ekki fyrst fyrr en árið 2006 þegar ég keyrði með vini mínum, Einari Kársyni, yfir Ameríku. Ein- ar fann þá bók sem heitir The Lett- ers of Neal Cassady og þar sér maður að Neal hefur haft gífurleg áhrif á stíl Kerouacs, líkt og Wolfe. Úr því verður til þessi frægi stíll Kerouacs.“ Og Ólafur segir að Kerouac sjálf- ur verði nánast til eftir að hann kynn- ist Neal. Hann verði fyrir svo miklum áhrifum af þessum öra manni. „Hann verður uppnuminn af þessum geysilega mikla hæfileika að geta talað endalaust, sagt sögur og upplifað veröldina eins og hún hafi verið sköpuð í gær. Kerouac breytir um taktík og fer að lýsa lífi sínu beint, því sem gerist í því frá degi til dags, í stað þess að reyna að semja hefð- bundin skáldverk. Hann er því alltaf að skrifa um ævi sína. Allt sem hann sér verður honum að skáldskap. On the Road er í rauninni ekkert annað en þessi ferðalög hans og Neal eft- ir Route 66, frá New York, út á Vest- urströndina og til baka. Upplifun þeirra af veröldinni, kvenfólki og því sem heillar og leitar á unga menn.“ Þrátt fyrir að vera vel ritfær, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, skrifaði Neal á hinn bóginn aldrei skáldsögu. „Hann var svo mikilll ...“ segir Ólaf- ur og gerir hlé á máli sínu örstutta stund. „Ég held að faðir minn hefði notað orðið „dindilbrokkari“. Hann var ekki maður sem sat kyrr lengi á sama stað. Ég hugsa að hann hefði Namita Kapoor listakonan er af suðausturasískum ættum en fædd og uppalin í san francisco. Íslensk þýðing hinnar frægu og tímalausu sögu, On the Road, eftir bítskáldið Jack Kerouac kom út í kilju í vikunni. Ólafur Gunnarsson þýddi söguna árið 1988 og er afar ánægður með að hún skuli nú endur- útgefin, tuttugu árum síðar. Ólafur sagði Kristjáni Hrafni Guðmundssyni frá bók- inni frægu og bítskáldinu goðsagna- kennda. Hetjuskapur Keiths Richards og ný skáldsaga Ólafs koma einnig við sögu. Me ing Mesti haMingjutíMi rithöfundarferilsins MYNDLIST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.