Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 26
Helgarblað DVföstudagur 4. júlí 200826
HIN HLIÐIN
Sviðið er uppáhalds-
staðurinn minn
Nafn og aldur?
„Ingólfur Þórarinsson, nýorðinn 22 ára.“
Atvinna?
„Fyrst og fremst tónlistarmaður en einnig nemi í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.“
Hjúskaparstaða?
„Er á lausu en finnst ég jafnvel vera að festast aðeins.“
Fjöldi barna?
„Á engin en hef þó tekið litla frænda minn upp á
mína arma og fer oft með hann í pylsuvagninn á Sel-
fossi.“
Áttu gæludýr?
„Nei, en mig langar í hund. Gamli hérna heima þver-
tekur fyrir það.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Held það hafi verið Nýdönsk í Borgarleikhúsinu.
Þetta voru klassatónleikar og brandari fékk að fjúka
eftir hvert lag. Björn Jörundur og Jón Ólafs voru eins
og Lennon og McCartney.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Nokkur umferðarlagabrot en ekkert alvarlegra.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju?
„Peysan sem hún skildi eftir því hún kom laginu Bah-
ama af stað.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei, aldrei. Keypti samt einu sinni magabelti en
notaði það tvisvar. Það fæst hér með á fimm þúsund
krónur.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já, ég og bróðir minn pöntuðum einu sinni pitsu og
borðuðum hana í stofunni þegar mamma var með
hrísgrjónaréttinn í matinn. Þessi mótmæli skiluðu
sínu og mamma nennir ekki orðið að hafa hrísgrjóna-
réttinn.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Já, ég trúi að lífið sé þjáning og framhaldslífið verði
fullkomið.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Ég skammast mín ekkert fyrir að halda upp á nein
lög. Það eru eitthvað svo margir að rembast við að
vera frumlegir og móðins.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Ég hlakka til að fara í hljóðver og klára lag númer tvö
og auk þess hlakka ég til að taka mér frí í haust og fara
í sólina. Ég hlakka líka til að fara að leggja mig aðeins
á eftir.“
Afrek vikunnar?
„Það að ég vaknaði klukkan fimm mínútur yfir átta
þrjá morgna, það var gríðar erfitt enda er sólarhring-
urinn yfirleitt á reiki.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já. Það var fjör. Ég hef mikinn áhuga á dulspeki og
stjörnumerkjum. Það kom merkilega mikið fram hjá
spámanninum en ég held samt hann hafi eitthvað
verið búinn að gúgla mér.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Já, kassagítarinn minn er fastur við mig. Svo get ég
reddað bassanum og jafnvel trommunum eða alla-
vega snerlinum. Svo syng ég ef ég er í stuði.“
Styður þú ríkisstjórnina?
„Styð ýmislegt en sumt ekki. Er óflokksbundinn enda
er ég ósammála mörgum sem kjósa alltaf það sama
og halda að það eigi að styðja flokk eins og fótboltalið,
sama hvað flokkurinn gerir.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Svona heilt yfir finnst mér mikilvægt að reyna að
njóta þess að lifa.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og
af hverju?
„Hef oft spáð í þetta og það eru tvö goð sem hafa
verið í uppáhaldi lengi, það eru Zach de la Rocha
úr Rage against the Machine og Steve McManaman
fyrrverandi kantari Liverpool. Ég hugsa að ég myndi
tárast við að hitta þá.“
Ertu með tattú?
„Nei, ekkert tattú, ennþá allavega.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, skrifa oft texta sem eru ljóð fyrst og sem svo lag-
línu við.“
Hverjum líkist þú mest?
„Ekki gott að segja. Mér hefur verið líkt við pabba
minn Þórarin Ingólfsson skólastjóra, afa heitinn Guð-
mund Axelsson póstbera og trommara og svo líka
hina og þessa í Hollywood og síðast en ekki síst Jens
Lehmann.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Nei - ég reyni alltaf að opinbera alla hæfileika mína
og fá borgað fyrir þá. Leyndi hæfileikinn er þá senni-
lega að ég er bissnessmaður.“
Af hverju stafar mannkyninu mest hætta?
„Offjölgun, græðgi, menntunarleysi og ýmsum vímu-
gjöfum.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Þjáning þeirra sem lenda í vanda með áfengi og
vímuefni er án efa meiri en ánægja þeirra sem geta
notað þau svo það væri best að banna þetta allt. Ég vil
ekki að það sé verið að leyfa fólki að velja hvað sem
er og þess vegna segi ég nei við að það fáist heróín í
Lyfju.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Á sviðinu, kófsveittur, korter í þrjú með gítarinn og
allir hoppandi fyrir framan sviðið. Algjörlega solid
tilfinning.“
Ingólfur ÞórarInsson er betur Þekktur sem Ingó úr hljómsveIt-
InnI veðurguðunum. hann syngur sumarsmellInn í ár, lagIð
bahama. Ingó lærIr stjórnmálafræðI vIð háskóla íslands og
hefur mIkInn áhuga á dulspekI og stjörnumerkjum.
Opið: Mán-Fös 12-18, lau 11-16
Dalvegi 16a, Kóp.,
rauðu múrsteinshúsunum
s: 517 7727
Rómantík í
lautarferðinni
www.nora.is