Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 50
föstudagur 4. júlí 200850 Helgarblað DV
Sakamál
Vopnað rán eða þannig
Það er alþekkt að glæpamenn noti afsagaðar haglabyssur
við atvinnu sína, en nú hefur nýtt vopn rutt sér til rúms.
ræningi einn notaði afsagað pálmatré þegar hann gerði
tilraun til að ræna sólarhringsverslun í flórída í síðustu
viku. Merkilegt nokk fannst afgreiðslufólkinu ekki mikil
ógn stafa af pálmatrénu og rak hinn frumlega ræningja
öfugan út úr versluninni. sennilega mun hinn misheppnaði
ræningi nota hefðbundnari vopn þegar hann gerir tilraun til ráns næst. Ef hann
gerir aðra tilraun, því atvikið náðist á öryggismyndavél.uMsjón: KolbEinn ÞorstEinsson kolbeinn@dv.is
Barði
barnaníðing
Austurrískur barnaníð-
ingur hugsar sig sennilega
tvisvar um áður en hann lætur
til skarar skríða næst. Hann
ákvað að leita fanga á meðal
drengja sem voru á ferðalagi
og gistu á farfuglaheimili. Níð-
ingurinn fann fórnarlamb sitt,
ellefu ára dreng sem var að
koma af salerninu um miðja
nótt. Það sem öfugugginn ekki
vissi var að drengurinn var
útlærður í karate og enduðu
þreifingarnar með því að gutt-
inn tók hann í bakaríið, eins
og stundum er sagt, og mátti
maðurinn þakka fyrir að kom-
ast undan með því að skríða
út um glugga. Samkvæmt frétt
í dagblaðinu Austrian News
hafði lögreglan hendur í hári
barnaníðingsins áður en nótt-
in var á enda.
Réttlætið sigRaði
að lokum
Morðingi Crystal Surell gekk laus í þrettán ár eftir að hafa myrt hana í skóglendi í Suð-
ur-Karólínu. En réttvísin hafði ekki gleymt Crystal og tíminn vann með réttlætinu.
Bryan Lamb fékk lífstíðardóm fyrir morðið.
Crystal Surell var ekki þekkt fyr-
ir að komast í vandræði og þegar
hún fékk áminningu fyrir að standa
upp í skólarútunni áður en rútan var
stöðvuð vildi hún ekki valda foreldr-
um sínum vonbrigðum. Refsingin
sem hin þrettán ára stúlka fékk vegna
brotsins var eins dags bann í skóla-
rútunni.
Næsta dag afþakkaði hún boð
föður síns um að skutla henni í skól-
ann. Þetta var fagur nóvembermorg-
unn árið 1990 og Crystal ákvað að
rölta þennan tæpa kílómetra sem var
í skólann, frá heimili hennar í Lad-
son í Suður-Karólínu. Móðir Crystal
kvaddi hana með áminningu um að
taka til í herbergi hennar. En Crystal
átti aldrei eftir að taka til í svefnher-
bergi sínu því hún skilaði sér ekki í
skólann þennan morgun.
Crystal Surell mætti örlögum sín-
um þennan dag og lík hennar fannst
innan við sólarhring eftir að hennar
var saknað. Hún fannst nakin neð-
an mittis og hafði nærbuxunum ver-
ið troðið ofan í kok hennar, skyrtan
var rifin og brjóstahaldarinn opinn.
Þrátt fyrir að hún hefði verið stungin
nokkrum sinnum í hálsinn var dán-
arorsökin köfnun.
Vísbendingar í tjaldi
skólafélaga
Skammt frá þeim stað þar sem
lík Crystal fannst var tjald í eigu Bry-
ans Lamb, fjórtán ára skólafélaga
hennar, sem átti heima í nágrenn-
inu. Við rannsókn fann lögreglan
armbandsúr Crystal í tjaldinu og
litla blóðbletti, en blettirnir voru of
mengaðir til að hægt væri að rann-
saka þá nánar. Einnig kom í ljós að
hnífstungur á hálsi Crystal samsvör-
uðu hnífsblaði á hníf sem Bryan
hafði „týnt“ skömmu fyrir morðið.
Samsvörun við kattarhár í tjaldi Bry-
ans hafði fundist á líki Crystal.
Bryan hafði skrópað í skólanum
þann dag sem Crystal var myrt, 7.
nóvember, og hélt því fram að hann
hefði sofnað uppi í tré, einnig fullyrti
Bryan að hann hefði fundið úrið. En
allt voru þetta óbeinar sannanir og til
að flækja málið enn frekar hafði ver-
ið teiknuð fimmarma stjarna og orð-
in „hail satin“ skrifuð til hliðar við lík-
ið. Misritun orðsins „satan“ (satin)
vakti athygli lögreglunnar og var talin
staðfesta að djöfladýrkendur hefðu
ekki átt hlut að máli.
ekki nægar sannanir
Þrátt fyrir að flestir væru vissir
um sekt Bryans Lamb voru sönnun-
argögnin sem lágu fyrir ekki næg til
að leggja fram ákæru á hendur Bry-
an og þar sem ekkert nýtt kom í ljós
gekk hann út í frelsið og rannsókn á
morði Crystal kólnaði. Bryan Lamb
komst í kast við lögin á næstu árum
fyrir fíkniefnabrot og smáglæpi.
Ekkert markvert gerðist næstu
þrettán ár, en þá smullu saman nokk-
ur atriði, nýr vitnisburður kom fram
og árið 2003 var lögð fram morð-
ákæra á hendur Bryan Lamb, sem þá
var orðinn tuttugu og átta ára. Þrátt
fyrir að hann hefði verið fjórtán ára
þegar morðið var framið var réttað
yfir honum sem fullorðnum.
Einnig voru lagðar fram kærur á
hendur Eric Castro, þrjátíu og eins
árs, fyrir að hafa þagað yfir atriðum
sem hefðu getað varpað ljósi á málið
á sínum tíma.
nýjar vísbendingar
Serena Barbaris, vitni saksóknara,
sagði að hún hefði heyrt til einhvers
þegar hún hefði verið á göngu í skóg-
inum daginn sem morðið var fram-
ið og að Eric Castro hefði sagt henni
mörgum árum síðar að hann hefði
vitað það.
Annað vitni, Barabara Boatright,
vitnaði um að Castro hefði gefið í skyn
einhverjum árum síðar að hann vissi
hver hefði framið morðið. Og 1998
gerði skilorðsfulltrúi Lambs upptæk-
an vasahnífinn sem hann hafði „glat-
að“ skömmu áður en morðið var
framið. Þegar rithandasérfræðingur
var fenginn til að rannsaka rithönd
Lambs kom í ljós að hann misritaði,
sem fyrr orðið „satan“ og skrifaði
„satin“.
Til að kóróna nýju vísbendingarn-
ar sögðu tveir uppljóstrarar úr fang-
elsi einu að þeir hefðu heyrt Lamb og
Castro ræða morðið sín á milli.
Að lokum var svo komið að kvið-
dómarar þurftu ekki fleiri vitnanna
við og komust að þeirri niðurstöðu
að Bryan Lamb væri sekur um morð-
ið á Crystal Surell og að Castro hefði
hindrað framgöngu réttlætisins.
Bryan Lamb var dæmdur til lífs-
tíðarfangelsis og það er kaldhæðnis-
legt að hugsa til þess, að ef hann hefði
verið dæmdur fyrir morðið þegar
það var framið, er hann var fjórtán
ára, hefði hann losnað út úr fangelsi
þegar hann var tuttugu og eins árs og
væri frjáls maður í dag.
robert Burck höfðar mál gegn sælgætisframleiðanda:
NakiNN kúreki misNotaður
Nakti kúrekinn, Robert John Burck, hefur
hlotið blessun dómstóls í New York til að halda
áfram með málshöfðun gegn sælgætisfram-
leiðandanum Mars, sem meðal annars fram-
leiðir M&M. Burck höfðaði mál gegn Mars og
auglýsingastofunni Chute Gerdeman í febrúar.
Ástæða málshöfðunarinnar er að Mars notaði
í auglýsingaherferð sinni persónu í líki M&M-
súkkulaðikúlna, sem var íklædd kúrekastígvél-
um, hvítum nærbuxum og með hvítan kúreka-
hatt á höfði. Burck telur yfir allan vafa hafið að
hann sé fyrirmynd fígúrunnar.
Robert Burck fer fram á eitt hundrað milljón-
ir bandaríkjadala í skaðabætur, en það samsvar-
ar rúmlega einum milljarði króna, því Mars hafi
misnotað persónu og ímynd hans án leyfis. „Ég
hef eytt tíu árum í alls kyns veðri í að byggja upp
nafngift mína, og ég hef uppfyllt öll skilyrði til að
verða skrásett vörumerki,“ sagði Burck í viðtali
við fréttastofu CNN.
Götuferill Burcks hófs árið 1998 í kjölfar
myndbirtinga í tímaritinu Playboy. En það var
ekki fyrr en eftir að að fylgdi ráðum vinar síns
um að koma fram á nærbuxum einum fata að
stjarna hans fór að rísa.
Robert Burck fór í áheyrnarpróf í fyrstu Am-
erican Idol-keppninni, en hafði ekki erindi sem
erfiði og komst ekki upp úr fyrstu umferð. Hann
hefur komið fram í hinum ýmsu sjónvarpsþátt-
um og á ýmsum skemmtunum víða í Bandaríkj-
unum. Hann er fastur liður á Mardi Gras-hátíð-
inni þar sem hann spígsporar um götur Franska
hverfisins á nærbuxunum einum fata.
má ekki heita
Fuck
Manni einum frá Nýju-
Mexíkó hefur verið meinað að
skipta um fornafn. Maðurinn
heitir Variable (breytilegur),
en vildi breyta nafninu í Fuck
Censorship. Það þótti dómara
í bænum Bernalillo í það gróf-
asta og taldi
að það gæti
einnig mis-
boðið fólki.
Ekkert er
því til fyr-
irstöðu að
Variable kalli
sig Fuck, en
hann fær
ekki leyfi
til að breyta því opinberlega.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Variable vill breyta nafni sínu,
því hann hét áður Snaphappy
Fishsuit Mokiligon. Í ljósi þess
er kannski ekki að undra að
dómaranum hafi fundist nóg
komið af slíku.
Húfan kostaði
höfuðið
Sautján ára drengur varð
höfðinu styttri í skemmtigarð-
inum Six Flags í Georgíu-fylki
í Bandaríkjunum í síðustu
viku. Óhappið varð þegar hann
hugðist ná í húfu sem hann
hafði misst þegar hann hafði
verið í ferð á Batman-rússi-
bananum.
Að sögn vitna klifraði
drengurinn yfir tvær girðing-
ar í tilraun til að endurheimta
húfuna sína, en staðfesta hans
varð dýrkeypt því hann varð
fyrir rússibanavagni og lét lífið
samstundis.
Þetta er ekki fyrsta fórnar-
lamb Batman-rússibanans.
Árið 2002 lést starfsmaður
skemmtigarðsins þegar hann
varð fyrir fótum eins farþeg-
ans.
þoka í skóginum lík Crystal surell
fannst í skógi nærri heimili hennar.
Bryan Lamb Hlaut lífstíðardóm í stað
sjö ára.
Crystal Surell Enginn veiðimaður
kom surell til bjargar, líkt og
rauðhettu ævintýrisins.eric Castro Þagði yfir vitneskju sinni
og saup af því seyðið.
En Crystal átti aldrei eftir að taka til í
svefnherbergi sínu því hún skilaði sér
ekki í skólann þennan morgun.
nakti kúrekinn skrásett vörumerki eftir tíu ára vinnu.