Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Qupperneq 56
Með 33 atkvæðum gegn einu voru drög að stórmerkilegri skýrslu samþykkt hjá menning- armálanefnd Evrópusambands- ins á dögunum. Plagg sem inn- an tíðar verður lagt fyrir þingið í endanlegri mynd til samþykktar. Það sem vekur sérstaka athygli við skýrsluna er að þar er lagt til að bloggarar sem búsettir eru innan Evrópusambandsins þurfi sérstakan gæðastimpil frá sam- bandinu til að geta haldið áfram úti bloggsíðum sínum. Grasrót tjáningar ESB ætlar þannig að ná hönd- um utan um tjáningargrasrót netsins, skipta bloggurum upp í tvo hópa - æskilega og óæskilega, skilgreining sem verður líklega byggð á mati stjórnmálamanna, lögfræðinga og annarra sérfræð- inga sem kallaðir verða til um hin ýmsu málefni. Sambandið virðist samkvæmt skýrslunni hafa mikl- ar áhyggjur af bloggurum þessa dagana og þau neikvæðu áhrif sem þeir geta haft á alla um- ræðu í þjóðfélaginu þannig að netheimar hreinlega mengist af ósannindum og tilhæfulausum vangaveltum illa gerðra einstakl- inga eða félagasamtaka. Einlægni og sannindi Höfundur skýrslunnar, Evr- ópuþingmaðurinn Marianne Mikkon segir: „Mín tilfinning er sú að almenningur treysti enn á að það efni sem finna má á bloggsíðum sé byggt á einlægni og sannindum. Og þannig ætti það að vera. Þess vegna þurfum við gæðastimpil á bloggsíður, til að upplýsa hver sé ástæðan á bak við skrifin og hver sé raunveru- legur höfundur efnisins.“ Það er nokkuð merkilegt að þingmaðurinn talar hér um al- menning og bloggara í sömu hendingu líkt og um tvo ólíka hópa sé að ræða. Sem segir okk- ur að auðvitað vill skrifræðis- bákn ESB vernda almenning fyrir sjálfum sér eins og góðu foreldri sæmir og passa upp á að eng- ir óæskilegir sauðir jarmi innan hjarðarinnar. palli@dv.is Eistneski Evrópuþingmaðurinn Marianne Mikko fékk drög að skýrslu sinni um bloggsíður samþykkt með nær öllum atkvæðum hjá Menningarmálanefnd ESB. Viagra er ein- tóm Vandræði Vírusvarnarfyrirtækið McAfee setti á laggirnar áhugaverða tilraun í apríl síðastliðnum. Um 50 sjálfboðaliðar víðs vegar að úr heiminum voru fengnir meðal annars til smella í þau fríu tilboð, nýju vefsíður og önnur áhuga- verð fyrirbæri sem kæmu í pósthólfið þeirra um mánaðar- skeið. Sjálfboðaliðarnir máttu einnig viðhafa eigin aðferð og sumir þeirra einbeittu sér að stinningarlyfinu Viagra eða fríum og fyndnum myndskeiðum. Árangurinn lét ekki á sér standa, þrátt fyrir klausur um að netfang viðkomandi yrði ekki notað í ólöglegum tilgangi eða selt öðrum aðilum varð aukning á ruslpósti þátttakendanna sem nam mörgum þúsundum eftir mánuðinn. Samkvæmt uppgjörum hinna ýmsu aðila í afþreyingariðnaðum í Bandaríkjum kemur berlega í ljós að tölvuleikjaiðnaðurinn þar í landi sækir enn í sig veðrið sem og um allan heim. Oft er því haldið fram að tölvuleikjabransinn þéni meira en kvikmyndabransinn en það er eins rangt og það er rétt. Tölvuleikjaiðnaðurinn þénaði tæplega 19 milljarða bandaríkjadala árið 2007 en kvikmyndaiðnaðurinn 9,6 milljarða dala með miðasölu kvikmyndahús- anna. Þá hljóðuðu sölutölur DVD-mynda upp á tæplega 16 milljarða dala. Á þessum tölum sést að einn og sér er tölvuleikja- iðnaðurinn stærstur en séu lagðar saman sölutölur bíómiða, DVD-mynda og síðan leigðra mynda sést að kvikmyndaiðnaðurinn er enn mun stærri en samanlagt þénaði hann 33 milljarða bandaríkjadala árið 2007. Eins og alltaf í svona málum reyna báðir aðilar að túlka tölurnar sér í hag. Báðir aðilar hafa margt til síns máls en kvikmyndaiðnaðurinn er ennþá stærri og verður það sennilega næstu árin. Í það minnsta í Bandaríkjunum. asgeir@dv.is StærStur og ekki FöSTUDagUr 4. júlÍ 200856 Helgarblað DV Tækni UmSjón: PÁll SVanSSOn palli@dv.is NæriNGArErfðAfræði Á UpplEið nýjar rannsóknir í erfðafræði hafa leitt í ljós lítil eða engin virkni ákveð- ins ensíms í líkama sumra einstaklinga getur leitt til fæðingargalla og hjartasjúkdóma barna þeirra en með réttum skammti af vítamínum og steinefnum er hægt að koma í veg fyrir áhrifin. niðurstöðurnar eru enn ein fjöður í hatt nýrrar fræðigreinar, svokallaðrar næringarerfðafræði sem byggist á því að rannsaka hvernig erfðir og mataræði hafa áhrif á líf okkar. Vísindamenn vonast til að með tíð og tíma verði hægt að greina betur hvaða skammta af vítamínum og steinefnum hver einstaklingur þarfnist þar sem hinn ráðlagði dagskammtur eigi ekki við nema hluta mannkyns. CastleVania- bardagaleikur Castlevania Judgment sem er væntanlegur á Nintendo Wii verður með öllu óhefðbundnara sniði en forverar hans. Um er að ræða bardagaleik þar sem spilendur munu kljást á stórum leikvöngum. leikurinn mun innihalda persónur úr allri 22 ára sögu leiksins og að sjálfsögðu verður notast við Wii-stýrikerfið til þess að gefa þeim líf. Hægt verður að leggja gildrur, gera hin ýmsu brögð, beita fjölbreyttum vopnum og fá skrímsli í lið með sér. Gæðastimpil esbþarfábloGGarasoulCalibur á XboX liVe fyrsti Soulcalibur-leikurinn er nú fáanlegur á Xbox liVE Arcade á Xbox360. leikurinn, sem kom upprunalega út árið 1999 á SEGA-tölvuna Dreamcast er hæst dæmdi bardagaleikur allra tíma. ekki nóg með það heldur er leikurinn í 8. sæti yfir best dæmdu leiki allra tíma á gamerankings.com. Grafík leiksins er nú í HD og í styður HDTV. DVD Samanlagt er þó kvik- myndaiðnaðurinn ennþá stærri. MAriANNE Mikko góður ásetningur stjórnmálamanna getur hreinlega endað sem martröð fyrir almenning. leikjaiðnaðurinn stækkar og stækkar af leikjatölvun- um selst nintendo DS best.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.