Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2008, Blaðsíða 70
föstudagur 4. júlí 200870 Síðast en ekki síst DV Bókstaflega „Það hlýtur að vera erfitt fyrir þau að ímynda sér eitthvað annað en ál- ver, það er bara of útópískt.“ n Björk um viðbrögð Árna johnsen og fleiri við baráttu hennar gegn stóriðju á íslandi. - 24 stundir „Til hamingju, hr. og frú Zorba.“ n Heillaóskir frá Þráni Bertelssyni rithöfundi til Egils Helgasonar og konu hans sem giftu sig á grískri eyju í fyrradag. - eyjan.is/ silfuregils „Guðjón er miklu sætari en ég.“ n Björgólfur takefusa um hver sé munurinn á honum og guðjóni Baldvinssyni félaga hans hjá Kr. - dV „Það gerist allt miklu hraðar í allri þjónustu á Íslandi, kannski er það út af stressinu í þjóðfélag- inu.“ n Kári Árnason, atvinnumaður í knattspyrnu, í dan- mörku. - dV „Það er lit- ið á okkur sem úr- hrök. Ein- faldast að láta okk- ur deyja hjálparlaust af völdum sjúkdómsins.“ n jenný gísladóttir fyrrverandi vistmaður Byrgisins um aðgerðarleysi stjórnvalda eftir að meðferðarheimil- inu var lokað. Hún segir 15 vistmenn hafa látið lífið í neyslu síðan. - dV „Krafturinn úr vestfirsku fjöllunum og eilíf forvitni.“ n Helgi Björnsson um hvað drífi hann áfram í lífinu. - dV „Við get- um varið okkur að hluta til með því að taka lýsi en það minnkar að ein- hverju leyti áhrif trans- fitusýranna.“ n siv friðleifsdóttir alþingismaður um baráttuna gegn transfitusýrum en neysla þeirra má ekki fara yfir 2% á dag. - dV „Ef þeir vilja stríð getum við mætt þeim af fullri hörku.“ n leif Ivar Kristiansen, leiðtogi norskra vítisengla, um hörku stjórnvalda í garð samtakanna hér á landi. - í dV Hver er maðurinn? „Garðar Thór Cortes, söngvari.“ Hvað drífur þig áfram? „Gleði sem kemur af því sem ég er að fást við. Það er svo skemmtilegt.“ Hver er helsti hæfileiki þinn? „Það verður að spyrja einhvern annan að því. Ég vona að ég sé ágætur söngv- ari, stefni alltaf á að verða betri.“ Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill? „Ég ætlaði alltaf að verða söngvari eða leikari.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Ég spila á cornett, það er aðeins minna en trompett. Þegar ég var lítill sá ég spilað á svoleiðis í sjónvarpinu og sagði við mömmu að mig langaði til að læra á þetta hljóðfæri. Ætli ég hafi ekki lært á það í ein sjö ár, en ég hef ekki spilað í langan tíma.“ Hvaða bók lastu síðast? „Bók sem heitir Bréfin hans Mozart. Hún er samansafn af bréfum sem Moz- art skrifaði til föður síns og fleiri.“ Ertu pólitískur? „Get ekki sagt það, pólitík pirrar mig stundum en ég hef voða lítið vit á henni.“ Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi? „Heima á Íslandi. Þegar ég er svona mikið í burtu verður Ísland ósjálfrátt uppáhaldsstaðurinn minn.“ Hvernig tónlist hlustar þú á? „Nánast alla tónlist. Samt aðallega klassíska tónlist og óperur. Það fer eft- ir því hvernig ég vakna hvað mig langar að hlusta á. Ég fór á tónleika með Bon Jovi um daginn, það var æðislegt, alveg geðveikt.“ Fyrir hverja er skemmtilegast að syngja? „Bara alla, held ég. Það er skemmtileg- ast að syngja fyrir þá sem finnst gaman að hlusta.“ Áttu þér draumaóperuhlutverk? „Ég á voðalega mörg, það er erfitt að velja eitthvert eitt því sum hlutverk henta núna og önnur seinna á söng- ferlinum þegar röddin er orðin nógu þroskuð. En svona heilt yfir, þá væri það Otello eftir Verdi, en það eru mörg, mörg ár í það.“ Ertu að læra einhver óperuhlut- verk núna? „Já, ég er að læra Memorino úr Ástar- drykknum. Ég er alltaf að kíkja á eitt- hvað, það heldur mér við.“ Hittir þú enn fólk sem sem man eftir Nonna og manna? „Já, það kemur fyrir. Var samt algengara áður, get ekki sagt að það sé til vand- ræða. Það eru helst Þjóðverjar sem muna eftir mér, þetta var rosalega vin- sælt í Þýskalandi. Reyndar fékk ég ný- lega tölvupóst frá Afríku, það er nýbúið að sýna þættina þar.“ Finnur þú fyrir því að þú sért þekktur í Bretlandi? „Nei, alls ekki.“ Hvort stefnir þú á að syngja óperur eða poppklassík í framtíð- inni? „Ég stefni á að syngja óperur því það er mín ástríða. Ég ólst upp við óperur og þær hrífa mig mest en auðvitað er líka gaman að syngja hitt. Það er gaman að syngja á tónleikum, en það er eitthvað allt annað að standa á sviði í óperu- uppfærslu. Það er nær hjartanu.“ Hvað er fram undan hjá þér? „Platan var að koma út á Íslandi og í Bretlandi svo það er mikið kynning- arstarf fram undan. Um næstu helgi verð ég með tónleika í Bretlandi og svo eru tónleikar fram undan í New Port á Road Island, tónlistarhátíð í Banda- ríkjunum. Seinna í sumar syng ég svo með Kiri Te Kanawa á eyjunum Jersey og Isle of Man milli Bretlands og Frakk- lands.“ Hver er draumurinn? „Betri heimur.“ MaÐUR DagsINs Bon Jovi var æðis- legur á tónleikum Garðar Thór Cortes er nýbúinn að gefa út annan sólódisk- inn sinn í Bretlandi og á íslandi. sá heitir When You say You love Me og hefur að geyma þekkta slagara í bland við óperutónlist. sjálfur hlustar söngvarinn á allar tegundir tónlistar og fór nýlega á tónleika með Bon jovi. AustlægAr áttir Í dag verður fremur austlæg átt með vætu austanlands, en þurrt og víða bjartviðri vestan til. Hiti á bilinu 10 til 20 stig, hlýjast inn til landsins. Á morgun verður hæg austlæg eða breytileg átt. Súld suð- austanlands fram eftir degi, annars bjartviðri að mestu. Hiti á bilinu 12 til 19 stig, en 19 til 23 norðanlands. Á sunnudag verður hæg norðaust- læg átt eða breytileg átt. Yfirleitt skýjað við norður- og austurströnd- ina og sums staðar þoka, en annars bjartviðri. Lau Sun Mán Þri vindur í m/s hiti á bilinu stykkishólmur vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu Lau Sun Mán Þri vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu vindur í m/s hiti á bilinu <5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst, fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu. Höfn reykjavík Egilsstaðir Ísafjörður Vestmannaeyjar Patreksfjörður Kirkjubæjarkl. Akureyri selfoss sauðárkrókur Þingvellir Húsavík Keflavík Fös Lau Sun Mán hiti á bilinu Kaupmannahöfn hiti á bilinu Osló hiti á bilinu stokkhólmur hiti á bilinu Helsinki hiti á bilinu london hiti á bilinu París hiti á bilinu Berlín hiti á bilinu Palma Fös Lau Sun Mán hiti á bilinu tenerife hiti á bilinu róm hiti á bilinu Amsterdam hiti á bilinu Brussel hiti á bilinu Marmaris hiti á bilinu ródos hiti á bilinu san Francisco hiti á bilinu New York hiti á bilinu Barselóna hiti á bilinu MiamiVE ðr ið ú ti Í HE iM i Í d Ag O g Næ st u dA gA n Vindaspá á hádegi á morgun. n Hitaspá á hádegi á morgun. VEðurstofa íslands 2-3 13/15 4-3 12/13 2 12 2-3 13/12 3-4 13/14 1-3 15/17 2-4 13/15 2-5 9/16 4-6 12/15 1 13/15 4-6 10 2-1 11/19 4-2 12/18 3-4 11/12 1-2 14/16 2 11/12 3-2 10/12 2-3 12 2-5 12/16 2-1 16/17 1-3 14/13 2-4 15/17 3-6 12/16 3-1 11/18 1-3 10/12 1-2 16/21 2 13/20 2-4 10/12 1-3 14/16 2 12/14 3-2 10/13 2-3 13 4-5 11/15 2-1 14/16 1-3 10/11 2-4 13/16 4-5 11/15 2-1 11/16 3 11/10 1-2 17/21 2-3 14/20 2-3 10/13 1-3 14/15 2-1 12/14 3-1 11/13 2-3 14 3-5 11/15 2-1 14/17 1-3 10/12 1-3 12/15 2-4 10/15 1 11/16 2 10 2 15/21 2-4 12/19 2-3 10/12 15/23 17/26 16/20 16/25 14/21 16/23 16/21 23/25 22/28 21/23 19/30 13/20 13/21 16/38 23/27 13/26 22/29 26/32 15/23 14/23 12/18 10/18 13/20 15/22 17/24 23/25 22/28 21/23 19/32 14/25 14/24 19/37 23/26 14/28 21/26 27/31 15/20 12/19 11/14 7/14 13/19 15/23 17/24 23/25 20/26 22/24 22/33 14/20 14/20 19/39 23/27 13/31 23/26 27/32 16/17 11/16 10/13 8/15 13/19 14/21 17/24 21/24 21/27 21/23 21/30 15/17 12/16 17/41 23/28 12/33 24/27 27/32 15 VEður VEðrið Í dAg Kl. 18 ...Og Næstu dAgA 16/17 11/16 10/13 8/15 13/19 14/21 17/24 21/24 21/27 21/23 21/30 15/17 12/16 17/41 23/28 12/33 24/27 27/32 11 15 14 16 10 1339 6 104 5 14 3 5 1 8 6 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.