Fréttatíminn - 22.05.2015, Blaðsíða 10
FLUTTIR
Velkomin í einn stærsta sýningarsal
notaðra bíla á landinu að Kletthálsi 13.
Enn betri þjónusta í enn betra umhverfi.
HeklaNotadirBilar.is
Klettháls 13
590 5040
Audi A5
2.0T Quattro
8.290.0002013
40
Toyota
Land Cruiser 150 L
6.250.0002010
30
Skoda Octavia
Ambiente 1.6 TDI
3.140.0002011
51
Mercedes-Benz
E200 CGI
4.980.0002009
68108
Skoda Yeti
2.0 TDI 140 Hö
3.950.0002013
61
VW Tiguan
Trend&Fun
5.190.0002014
31
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
Vorbasar til styrktar
iðjuþjálfun geðsviðs
V orbasar iðjuþjálfunar geð-sviðs Landspítalans verður haldinn miðvikudaginn 3.
júní milli klukkan 12 og 15. Mikið af
fallegum hlutum verða þar til sölu,
til að mynda handgerð dúkkuhús
með húsgögnum, koddar, dúkkur-
úm og margt fleira. Allt sem selt er
á basarnum er gert í iðþjuþjálfun
geðsviðsins.
Iðjuþjálfun er einstaklingsmið-
uð þjálfun þar sem leitast er við að
auka færni og þátttöku einstaklinga
í að takast á við daglegt líf innan
sem utan spítalans. Í iðjuþjálfun er
notuð margskonar iðja sem tengist
daglegu lífi á heimili, í vinnu eða við
leik og tómstundir. Iðjan er þannig
nýtt til að ýta undir eins sjálfstætt
og innihaldsríkt líf einstaklinga
sem aðstæður leyfa hverju sinni.
Basarinn verður haldinn í iðju-
þjálfuninni á geðsviði Landspítal-
ans við Hringbraut og rennur allur
söluágóðu til uppbyggingar aðstöð-
unnar. - eh
É g er hvorki bjartsýnn né svartsýnn á að samningar náist áður en allsherjar-
verkfall hefst. Staðan er mjög
óljós og menn eru bara að fara
yfir málin,“ segir Þorsteinn Víg-
lundsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins. Eftir
að slitnaði upp úr samningavið-
ræðum virðist kjaradeilan í hnút
og ef ekki næst að semja fyrir 6.
júní, þegar allsherjarverkfall er
áætlað, verða þetta mestu deilur
á íslenskum vinnumarkaði í ára-
tugi. „Ég vonast til að við náum
að leysa þetta. Það er á ábyrgð
allra sem að málinu koma að
finna farsæla lausn,“ segir Þor-
steinn.
Forystumenn VR, Eflingar
og BHM hafa sagt að ekki verði
lengra haldið í kjaraviðræðunum
nema að SA og ríkið setji hug-
myndir um breytt fyrirkomulag
vinnutíma og launa til hliðar.
Spurður hvort það komi til greina
að víkja frá þessum hugmynd-
um segir Þorsteinn þessi mál í
skoðun eins og önnur.
Í síðustu viku var tekin sú
ákvörðun á fundi samninga-
nefndar Bandalags háskóla-
manna að fara ekki af hörku í
verkföll til að liðka fyrir samn-
ingaviðræðum. Páll Halldórs-
son, formaður samninganefndar
BHM, segir að sú vonarglæta
sem þá hafi vaknað sé nú orðin
að engu. „Það er nákvæmlega
ekkert að gerast og engir samn-
ingafundir hafa verið boðaðir.
Þetta er stóralvarlegt mál og ef
Kjaramál Kjaradeilan er í hnút og engir samningafundir boðaðir
Stóralvarleg
staða í samn-
ingamálum
Engir samningafundir hafa verið boðaðir í kjaradeilunni og
hefst allsherjarverkfall 6. júní ef ekki næst að semja fyrir þann
tíma. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, segir það
ábyrgð allra sem að málinu koma að finna farsæla lausn. Páll
Halldórsson, formaður samninganefndar BHM, segir stöðuna
grafalvarlega.
Helgin 22.-24. maí 2015