Fréttatíminn - 22.05.2015, Page 12
N
Ný skýrsla Innri endurskoðunar Reykjavíkur-
borgar, þar sem finna má niðurstöður úttektar
á aðdraganda, innleiðingu og framkvæmd
breytinga á ferðaþjónustu fatlaðra, opinberar
samskipti sjálfkeyrandi byggðasamlags,
Strætó bs og eigenda þess, sveitarfélaganna
á höfuðborgarsvæðinu. Skýrslan sýnir veika
og leiðitama stjórn Strætó bs, sem skipuð er
fulltrúum sveitarfélaganna, gagnvart ráðrík-
um framkvæmdastjóra sem virðist hafa farið
sínu fram.
Öllum er í fersku minni hve
hörmulega tókst til með breyt-
ingar á ferðaþjónustu fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu síðast-
liðið haust þar sem Strætó bs.
tók við þjónustunni eftir útboð,
með aðkomu undirverktaka.
Að verkefninu standa sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu
nema Kópavogur, sem kaus að
skipta áfram við sama verktaka
og sinnt hefur akstri fatlaðra í
bænum um árabil.
Niðurstaða skýrslunnar er að stjórnun breyt-
inga á ferðaþjónustu fatlaðra, eftir innleiðingu,
hafi misfarist í veigamiklum atriðum og rof
komið í samráð við hagsmunasamtök notenda.
Tímasetning hafi verið slæm og þekking glatast
er starfsmönnum þjónustuvers og bílstjórum
Ferðaþjónustu fatlaðra var sagt upp. Starfs-
mennirnir upplifðu það sem fjandsamlega
yfirtöku þegar skipt var um yfirmann ferða-
þjónustunnar og breytingaferlið hófst. Þess er
jafnframt getið að eftirlit velferðarráða sveitar-
félaganna hafi brugðist.
Við lestur skýrslunnar sést að innleiðing svo-
kallaðrar Flex-þjónustu, erlends tölvukerfis,
var stjórnendum Strætó bs. keppikefli og að
ferðaþjónusta fatlaðra yrði þar hryggjarstykki.
Sú þjónusta er skilgreind sem þjónusta þar
sem farþegi er sóttur á upphafsstað og ekið
á áfangastað að eigin vali innan skilgreinds
þjónustusvæðis en megi búast við öðrum far-
þegum, en greiði fyrir stystu leið. Fram kemur
að undirbúningshópi Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu um útboð vegna aksturs
fatlaðra hafi borist nokkuð óvænt ósk Strætó
bs. um að taka að sér umsýslu á ferðaþjónustu
fatlaðs fólks fyrir sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu. Strætó bs. myndi ekki annast akstur-
inn en legði til að hann yrði boðinn út og væri
fyrirtækið reiðubúið að hafa umsjón með útboð-
inu. Stjórn Strætó bs. hafði þó ekkert fjallað um
ferðaþjónustu fatlaðs fólks en í skýrslunni seg-
ir m.a.: „...það var ekki stjórn Strætó sem tók
ákvörðun um að sækjast eftir þessu verkefni,
heldur var það í raun frumkvæði og ákvörð-
un stjórnenda fyrirtækisins að ná í verkefnið.
Margir viðmælendur innri endurskoðunar eru
þeirrar skoðunar að meginástæðan fyrir því að
þeir sóttu það svo stíft að fá ferðaþjónustuna til
Strætó hafi verið áhugi þeirra á að koma Flex-
þjónustu á í almenningssamgöngunum.“
Síðan segir: „Strætó bs. var í þeirri einkenni-
legu stöðu að hafa ráðríkan framkvæmdastjóra
sem virðist hafa farið sínu fram, en að því er
virðist frekar veika stjórn...“ ...„Stjórn Strætó
bs. var ekkert áhugasöm um að fyrirtækið tæki
þetta verkefni að sér en leyfði framkvæmda-
stjóranum að fara sínu fram og samþykkti síðan
gerðir hans eftirá.“
Skýrsluhöfundar segja aðkomu Strætó bs.
að breytingum á ferðaþjónustu fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu vekja undrun „í því ljósi að allt
frumkvæði virtist koma frá framkvæmdastjórn
fyrirtækisins. Tilgangur framkvæmdastjórnar
Strætó bs. með því að sækjast eftir að taka að
sér umsýslu ferðaþjónustu fatlaðs fólks er í raun
að byggja undir Flex-þjónustuna og tryggja
henni öruggan rekstrargrundvöll. Því má í raun
segja að Strætó bs hafi tekið ferðaþjónustuna að
sér á röngum forsendum. Flex-þjónustan hafði
ekki komið fram í stefnumótun stjórnar fyrir-
tækisins og virðast stjórnendur þarna taka yfir
stefnumótunarhlutverk stjórnar.“
Við lestur skýrslunnar vakna spurningar um
hvað hafi ráðið áhuga framkvæmdastjórnar
Strætó bs. á kaupum Flex-kerfisins fyrir akst-
ur fatlaðra, án þess að þarfagreining hafi farið
fram áður, en önnur sambærileg tölvukerfi ekki
skoðuð.
Fram kom hjá bæjarstjóra Hafnarfjarðar í
mars síðastliðnum að kostnaður við ferða-
þjónustu fatlaðra hefði aukist um 100% eftir að
Strætó bs. tók við rekstrinum. Önnur sveitar-
félög á svæðinu hljóta að skoða sambærilegt
kostnaðarhlutfall og bera saman við hið sama
hjá Kópavogsbæ, sem nýtir sér ekki þessa þjón-
ustu Strætó bs.
Ráðríkur framkvæmdastjóri og veik stjórn Strætó bs.
„Fjandsamleg yfirtaka“ á akstri fatlaðra
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Metsölulisti
Eymundsson
Handbækur Vika 20
1.
Metsölulisti
Eymundsson
Handbækur Vika 20
2.
Mik i l vægar
bækur
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Metsölulisti
Eymundsson
Handbækur Vika 20
3.
12 viðhorf Helgin 15.-17. ágúst 2014