Fréttatíminn - 22.05.2015, Side 17
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
Með biðpósti sleppurðu við að pósturinn
hlaðist upp heima hjá þér meðan þú ert í fríi.
Pantaðu biðpóst á www.postur.is eða á næsta
pósthúsi og þú velur hvar pósturinn þinn bíður
eftir þér.
www.postur.is
PANTAÐU BIÐPÓST
FYRIR SUMARFRÍIÐ!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
3
-1
5
4
8
tíð. Á næstu þremur dögum varð ég
ástfanginn af rússneskri listakonu
og viku seinna var ég kominn til Úk-
raínu til þess að búa með henni. Svo
ákváðum við að fara til Berlínar og
þar náði ég botninum,“ segir Helgi.
„Ég var byrjaður að finna fyrir því í
Úkraínu því þar gat ég ekki leyft mér
sömu hluti og heima. Gat ekki stolið
úr búðum og slíkt.
Þegar ég kom svo til Berlínar
var dópið hætt að virka og það var
bara erfitt að klæða sig í sokka. Svo
ég tók ákvörðun um að fara heim
og harka af mér,“ segir Helgi. „Þá
endaði ég í rosalegu þunglyndi og
sjálfsmorðshugleiðingum. Því þetta
er ekki eitthvað sem maður harkar
af sér. Ég reyndi að láta leggja mig
inn á geðdeild, en það er ekki hægt
því maður verður að hafa sýnilegar
sjálfsmorðshugleiðingar. Ég var á
þessum tímapunkti tilbúinn að fá
alla þá hjálp sem mér bauðst,“ segir
hann. „Ég fór á Vog og á Staðarfell
og gerði þetta af heilum hug. Síðan
þá hefur lífið bara orðið betra og
betra. Ég passa líka að gera allt rétt.
Hreyfi mig og slíkt. Ég finn að ef ég
hætti því þá verð ég þungur,“ segir
Helgi. „Ég hef ekkert sveiflast í þess-
ari maníu eftir að ég varð edrú.“
Lætur draumana rætast
Helgi Valur ögraði fólki með tónlist
sinni á síðustu tveimur plötum og
það er alveg hægt að segja það að
margir hafa ekki alltaf verið alveg
með á hreinu hvort hann er að meina
eitthvað með tónlistinni sinni, eða
hvort hann sé bara að reyna að ögra
fólki. Hann segist alltaf verið að
meina það sem hann hefur sungið
um. „Ég var 100 prósent að meina
það sem ég var að semja, en um leið
var ég líka að rugla í og ögra fólki,“
segir hann. „Framsetningin er bara
ögrandi og eitthvað af því er auðvitað
litað af maníunni. Black Man Is God
ýtti auðvitað undir kannabisneysl-
una hjá mér. Mér fannst hræsni fólg-
in í því að gera rapptónlist og reykja
ekki gras,“ segir Helgi og hlær. „Í
dag get ég þó notið þessara hluta án
þess að nota efni.“
Hvaðan hefur mesta hjálpin komið
í þinni endurhæfingu?
„Það hefur heilmikil vinna átt sér
stað,“ segir Helgi.
„Ég fór í gegnum SÁÁ og hef verið
mikið í Hlutverkasetrinu þar sem ég
hef verið að stjórna kór og er með
jóga þar í dag,“ segir Helgi. „Þetta er
mjög góður staður fyrir alla þá sem
eru með geðsjúkdóma, eða eiga erf-
itt með að komast á vinnumarkað-
inn. Þetta eru svona þessir helstu
staðir,“ segir Helgi. „Hjálpa öðrum,
hreyfa sig og vinna í áhugamálunum
sínum.
Í dag finnst mér í fyrsta sinn á
mínum fullorðinsárum, edrú og alls-
gáður, að ég geti látið alla drauma
mína rætast,“ segir Helgi. „Það er
ég að gera með útgáfunni á þessari
nýju plötu.“
Loksins kominn með svarta
konu
Helgi byrjaði að vinna að plötunni
Notes From The Underground um
leið og hann varð edrú og samdi
flest lögin hálfu til einu ári eftir að
hann hætti að drekka. „Ég var far-
inn að finna tilfinningaskalann aftur
sem hafði verið deyfður í 6 eða 7 ár,“
segir Helgi. „Ég samdi voða lítið á
þessu neyslutímabili, en eftir á er
það tímabil sem ég get nýtt mér. Ég
tók plötuna upp á svona árstímabili
og er gríðarlega sáttur við útkom-
una,“ segir hann.
Helgi Valur hefur fundið ástina og
er í sambandi við enska konu sem
býr í London.
„Ég er loksins kominn með svarta
konu,“ segir hann kíminn. „Hún
var hér í heimsókn og við fórum á
stefnumót og nú förum við fram og
til baka til hvors annars. Við erum
ólík á þann hátt að hún er hönn-
unarstjóri hjá byggingarfyrirtæki
og er viðskiptasinnuð, en við erum
með sama húmorinn og eigum vel
saman,“ segir Helgi. „Ég fór aftur
að rækta sambönd eftir að ég varð
edrú, við fjölskyldu og vini sem
maður hafði lokað á í neyslunni.
Maður hafði búið sér til nýjar fjöl-
skyldur hér og þar, og vini sem mað-
ur hélt að væru góður félagsskapur.
Ég bjó kannski á tíu stöðum á einum
mánuði. Það góða við að finna fyr-
ir botninum er að það er bara ein
leið frá honum og hún er upp á við,“
segir Helgi Valur tónlistarmaður.
Hann heldur útgáfutónleika á Húrra
á miðvikudaginn næsta, 27. maí.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
viðtal 17 Helgin 22.-24. maí 2015