Fréttatíminn - 22.05.2015, Qupperneq 26
frekar stór á þessum tíma,“ segir
Helga. „Til dæmis var ég alltaf látin
syngja í einhverjum tóntegundum
sem hentuðu mér alls ekki,“ segir
hún. „Ég mundi aldrei syngja svona
í dag og segi bara nei. Á þessum tíma
var bara búið að taka upp grunninn
og maður átti bara að gjöra svo vel
og syngja í þeirri tóntegund. Maður
þorði ekki að andmæla fyrir sitt litla
líf,“ segir Helga og hlær. „Andmæla
Gunna Þórðar? Þess vegna syng ég
allt svona rosalega hátt á þessum
tíma, ekki það að ég næði ekki þang-
að en þetta hljómaði ekki vel, fannst
mér, og ég get ekki hlustað á þetta í
dag,“ segir Helga.
„Mig hefur alltaf vantað „Ég um
mig frá mér til mín,“ hugsunarhátt-
inn. Ég á mjög erfitt með þetta.
Ég er bara Helga fyrst og fremst.
Jú, ég kann að syngja en alltaf er
ég með áhyggjur af því að enginn
muni koma á tónleikana mína. Þetta
er mun meira kvenlægt vandamál,“
segir Helga. „Strákarnir ganga bara
í málið og er alveg sama ef það mis-
tekst. Við konur fáum áfall og viljum
bara hætta að syngja ef þetta ger-
ist. Svo tekur maður sig á og gerir
alveg fullt, en þetta veldur mér svo
mikilli streitu og kvíða að ég legg
það ekki á nokkurn mann í kring-
um mig,“ segir Helga. „Örn Árna-
son sagði einu sinni við mig að ef
einhver biður mig um að syngja, þá
er verið að biðja um Helgu Möller,
ekki einhvern sem getur sungið
eitthvað ákveðið lag. Ef það er bara
verið að biðja um það þá biður það
bara frænku sína um að syngja. Hún
er örugglega frábær en hún er ekki
búin að skapa sér nafn í 40 ár. Það er
þetta sem maður er alltaf að berjast
við hjá sjálfum sér, kannski næ ég
því fyrir áttrætt,“ segir Helga.
„Nú er ég bara búinn að leggja
þetta í hendurnar á almættinu. Ef
fólk vill hlusta á mig, þá hefur það
bara samband.“
Að vera flugfreyja er lífsstíll
Helga hefur verið flugfreyja hjá Ice-
landair með söngkonustarfinu síðan
hún var tvítug og hefur því verið í
tæp 40 ár í loftinu með íslenskum
ferðamönnum, en hún er 58 ára
gömul. Það átti að vera sumarstarf
til þess að byrja með en enn er hún
að fljúga. „Ég er oft búin að hætta,
en að vera flugfreyja er lífsstíll,“
segir Helga. „Það hentar ekki öllum
en það hentar öðrum. Það velst, sem
betur fer, alveg gríðarlega góður
hópur í þetta starf og þetta hentar
mér gríðarlega vel og ég nýt þess.“
Hefur samt ekki verið stundum
erfitt að vera Helga Möller sem flug-
freyja? Við þekkjum alveg Íslend-
inga á ferðalögum.
„Ekki erfitt. Frekar skemmti-
legt,“ segir Helga. „Flestir segja
samt: Á ekki að taka lagið? En ég
hef sungið fyrir fólk í flugi, en það
þarf að vera eitthvað sérstakt. Síð-
ustu jól var ég að fljúga með fólk
sem hafði verið erlendis yfir hátíð-
arnar og sagðist hafa misst af því
að heyra Aðfangadagskvöld. Svo
ég tók smá brot úr nokkrum lögum
fyrir þau í miðri vél, sem var mjög
skemmtilegt,“ segir Helga og hlær.
„Svo hef ég líka lent í því að einn
maður vildi taka mig með sér til
Mallorca eftir eitt flug og hótaði
því að fara ekki úr vélinni nema
ég kæmi með, en það fór allt vel á
endanum,“ segir hún. „Allir kalla
mig samt Helgu Möller, ég er aldrei
kölluð bara Helga, ég veit ekki af
hverju. Fólk er samt yfir höfuð kurt-
eist,“ segir hún. „Í dag er ég orðin
með þeim reyndustu hjá félaginu og
í mínu starfi sem fyrsta freyja vil
ég bara hafa góðan anda í kringum
mig. Það er mikið traust hjá okkur
og það verður að vera gaman. Við
erum öryggisverðir um borð. Við
erum ekki að djóka með það, eins
og sum flugfélög gera,“ segir Helga.
„Það er háalvarlegt mál.“
Endar kannski á Jan Mayen
Hvað gerir Helga Möller í frítíma
sínum, ef hann er einhver?
„Ég gríp hvert tækifæri til þess að
fara í golf,“ segir Helga. „Svo er það
fjölskyldan. Ég á þrjú börn og eitt
barnabarn og hann er mikið með
mér í golfinu. Hann er að verða tíu
ára og er rólegur og þægur, sem ég
átta mig ekki á hvaðan hann hefur
því þetta er mjög hávær fjölskylda,“
segir hún og hlær. „Söngurinn er
líka mitt áhugamál þó hann sé líka
mín atvinna. Ég er að setja saman
hljómsveit um þessar mundir og
hlakka ofboðslega til þess að fara
að vinna með þeim,“ segir Helga.
„Við Jói vorum að gera nýtt lag
undir nafni Þú og ég, sem heitir Ég
og þú. Svo um daginn hafði japansk-
ur listamaður samband við mig og
vildi fá mig til þess að gera íslenska
útgáfu af lagi sem upprunalega var
með portúgölskum texta. Ljóðið
heitir Bréf til minna kæru barna,
og fjallar um það hvernig það er að
breytast úr ungri manneskju yfir í
gamla, og hvernig eigi að taka tillit
til þess. Það er mér mjög hjartfólgið
því mér finnst ekki nógu vel séð um
gamalt og fullorðið fólk í dag,“ segir
Helga. „Okkar kynslóð er að hugsa
um þetta fólk og við erum ekki að
gera það nógu vel. Ég er á því að
einhver æðri öfl hafi komið þessum
listamanni í samband við mig. Nú er
verið að íslenska japanska textann
og ég ætla að taka lagið upp. Það
fer svo á YouTube og slíkt, en ekk-
ert í einhverja sölu. Mig langar samt
að syngja þetta lag um allt land og
vekja fólk til umhugsunar um þetta
mál. Gamalt fólk fær ekki það sem
það á skilið og við verðum að taka á
þessu,“ segir Helga.
Óttast þú að verða gömul?
„Nei alls ekki,“ segir Helga. „Ég
er samt ekkert í einhverri keppni
um að verða svakalega gömul. Ég
vil bara halda heilsu og lifa lífinu lif-
andi. Ég á svo miklar breddur sem
dætur að þær sögðust ætla að senda
mig til Jan Mayen ef ég verð leið-
inlegt gamalmenni,“ segir Helga.
„Maður veit aldrei, kannski endar
maður þar,“ segir Helga Möller og
hlær sínum dillandi hlátri.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
„Það er lífsstíll að vera flugfreyja,“ segir Helga Möller. Ljósmynd/Hari
26 viðtal Helgin 22.-24. maí 2015
Prófaðu heilsurúmin
í Rúmfatalagernum
Þú sefur betur á Gold heilsurúmi frá okkur, bæði vegna þægind-
anna og verðsins. Þú átt það skilið! Komdu og prófaðu úrvalið hjá
okkur og láttu gæðin koma þér þægilega á óvart!
www.rumfatalagerinn.is
Láttu gæðin koma þér
þægilega á óvart
Rafmagsnrúm – verð frá 99.950 kr.
Rúm á mynd
Höie rafmagnsrúm
verð pr. stk. 299.950
Gerið gæða-
og verðsamanburð!